Fréttatíminn - 18.02.2017, Page 8

Fréttatíminn - 18.02.2017, Page 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 18. febrúar 2017 Heimilisleg og kósí stemning í Verkó Fyrstu verkamannabústaðir landsins voru ekki aðeins byggðir úr góðri steypu og efnum sem hafa staðist tímans tönn. Þeir voru byggðir af hugsjón þeirra sem trúðu því að almennilegt og heilsusamlegt húsnæði væru mannréttindi. Íbúar í fjórum af hundrað sjötíu og tveimur íbúðum bústaðanna eru sammála um að byggingin sé engri lík. Kósí stemning, notagildi, traust og fegurð einkenni sambýlið. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Bryndís Silja Pálmadóttir bryndis@frettatiminn.is Í iðnbyltingunni hófust miklir fólksflutningar frá sveitum og til borga sem sköpuðu gríðar-lega húsnæðiskreppu í flest-um höfuðborgum Evrópu. Fólk flykktist til borganna í von um bættari efnahag og betri lífs- gæði og var Reykjavík þar engin undantekning. Fólk sem flutti til borgarinnar þurfti oft á tíðum að sætta sig við að búa í heilsuspillandi húsnæði fyrir okurverð, í kjallar- geymslum, riskompum og jafnvel hænsnakofum. Um aldamótin voru um 1000 manns í þörf fyrir hús- næði í Reykjavík og ljóst að yfirvöld þurftu að finna leið til að bregðast við vandanum. „Þetta voru gífurleg átök á sínum tíma og alls ekki all- ir sammála um hvort að ríkið ætti að koma að uppbyggingu húsnæðis eða ekki,“ segir Jón Rúnar Sveins- son félagsfræðingur. „Þrátt fyr- ir víðtæka húsnæðisneyð á 19. öld ríkti alla þá öld sú meginstefna að húsnæðismál lægju utan verksviðs ríkisins og láta ætti markaðinn um að leysa þau,“ segir Jón Rúnar en það var einmitt stemningin í bæn- um þegar Héðinn Valdimarsson talaði fyrir umbótum í húsnæðis- málum Reykjavíkur á fyrsta aldar- fjórðungi síðustu aldar. Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy. Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum - hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi). Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku eða erfiðu færi. Volkswagen Caddy kostar frá 2.550.000 kr. (2.056.452 kr. án vsk) www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Góður vinnufélagi HEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu. Volkswagen Caddy Fyrstu verkamannabústaðirnir voru reistir af Byggingarfélagi alþýðunnar árið 1931. Íbúar lýsa góðum anda og trausti í Verkamannabústöðunum enda má enn finna frumbyggja sem hafa búið þar frá upphafi. Myndir | Hari

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.