Fréttatíminn - 25.03.2017, Page 2
2 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. MARS 2017
Fyrir ekki ýkja löngu hverfðist öll stjórnmálaumræða á Ís-landi um sóknarfærin á miðj-unni. Nú er hin áður yfirfulla
miðja nærri tóm. Ríkisstjórnar-
flokkarnir Viðreisn og Björt framtíð
næðu ekki manni á þing og Fram-
sóknarflokkurinn er í 7 prósentum.
Þráðu þá kjósendur ekki hófsama
miðjuflokka eftir allt saman? Er
kannski verið að kalla eftir átök-
um um grundvallaratriði, til dæmis
heilbrigðiskerfið, velferðarkerfið og
skólana?
Hægri miðjuflokkunum, Viðreisn
og Bjartri framtíð hefur mistekist
að tala við kjósendur. Þeir tala ekki
skýrt í grundvallarmálum.
Í margar vikur hefur heilbrigð-
isráðherrann dregið lappirnar í að
taka ákvörðun um hvort leyfa skuli
tvöfalt heilbrigðiskerfi sem þó er í
algerri andstöðu við vilja þorra al-
mennings sem vill heilbrigðisþjón-
ustu fyrir alla óháð efnahag.
Viðreisn hefur talað fyrir sérvisku-
legu áhugamáli Sjálfstæðisflokksins
sem er að selja áfengi í matvöruversl-
unum. Þá fá kaupmenn fleiri aura
í vasana en ríkið minna, sem á þó
að standa straum af afleiðingunum,
þurrka upp fíkla, lækna sjúka, koma
börnunum fyrir þegar áfengissjúkir
foreldrar geta ekki annast þau og svo
framvegis. Lófatakið frá miðjunni
lætur eitthvað standa á sér, almenn-
ingur virðist ekki hafa neinn áhuga a
þessu réttlætismáli.
Miðjumenn innan verkalýðshreyf-
ingarinnar hafa líka á stundum gerst
ákafari talsmenn atvinnurekenda en
launafólks. Kannski ættu ástríðu-
fullir miðjumenn að kynnast al-
menningi betur. Miðjan í íslenskum
stjórnmálum á ekki að vera undir-
gefin fjölskylda freka kallsins, þar
sem hann situr jafnan undir stýri og
keyrir þangað sem hann langar til,
en makinn er klæddur samkvæmt
nýjustu tísku og stjórnar tónlistinni í
útvarpinu og hefur hemil á börnun-
um sem fá eitthvað gott í munninn ef
þau trufla ekki pabba.
Þóra Kristín
FJÖLSKYLDA
FREKA KALLSINS
Stjórnmál Framkvæmdastjóri
Klíníkurinnar í Ármúla er ósáttur
við að hafa ekki fengið formleg svar
frá Óttari Proppé um synjun hans
á því að Sjúkratryggingar Íslands
kosti aðgerðir hjá fyrirtækinu.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra
mun ekki ætla að útskýra ákvörðun
sína frekar um að heimila Kíníkinni
ekki að gera vissar læknisfræðilegar
aðgerðir með kostun Sjúkratrygginga
Íslands. Þetta segir aðstoðarmaður
hans, Unnsteinn Jóhannsson, að-
spurður.
Óttarr sagði frá ákvörðun sinni á
Alþingi en hann var þráspurður um
málið af þingmönnum stjórnarand-
stöðunnar. Hann sagði óæskilegt að
umræddar aðgerðir, meðal annars
mjaðmaskipti, yrðu gerðar utan
ríkisrekinna sjúkrahúsa: „Ég
sé ekki að það yrði til heilla
að dreifa kröftum heilbrigð-
iskerfisins með því að fela í
auknum mæli flóknari og
meiri sjúkrahúsþjónustu
aðilum annars staðar en
á þeim sjúkrahúsum og
spítölum sem fyrir eru.“
Klíníkin bíður hins
vegar eftir formlegu
svari um ákvörðun Óttars og forsend-
ur hennar að sögn Hjálmars Þor-
steinssonar, framkvæmdastjóra fyr-
irtækisins: „Ég hef ekkert um það
að segja fyrr en ég fæ formlegt svar.
Mér finnst þetta eðlileg krafa í sið-
menntuðu samfélagi, alveg sama
þó einhver segi eitthvað einhvers
staðar þá er svarið ekki komið
fyrr en formlega svarið er komið.
Mér finnst allur þessi mála-
tilbúnaður mjög merki-
legur: Er ekki eðlilegt
að málsaðila sé fyrst svarað?“ Í máli
Unnsteins kemur fram að Óttarr hafi
einfaldlega ákveðið að semja við rík-
isrekin sjúkrahús um að gera þær að-
gerðir sem Klíníkin vildi fá leyfi til
að gera með kostun Sjúkratrygginga
Íslands en þessar aðgerðir eru liður í
biðlistaátaki heilbrigðisyfirvalda á Ís-
landi. Svarið til Klíníkurinnar virðist
því ekki vera á leiðinni.
Birgir Jakobsson landlæknir segist
heldur ekki vilja tjá sig um ákvörðun
Óttars og skoðun sína á henni. „Ráð-
herra er búinn að taka ákvörðun um
Klíníkina og ég hef ekkert meira um
það að segja að svo stöddu.“
Klíníkín súr yfir að fá ekkert svar
Hjálmar Þorsteinsson
heyrði fyrst um niður-
stöðu Óttars Proppé í
fjölmiðlum.
Velferð „Foreldrar mínir og við
systkinin upplifum vanmátt, sorg
og reiði yfir þessu ástandi,“ segir
Lísa Björg Ingvarsdóttir en faðir
hennar, Ingvar Daníel Eiríksson
sem er með Parkinson-sjúkdóm-
inn, hefur verið á dvalarheimili
á Vík í Mýrdal frá því 20. nóvem-
ber en móðir hennar, Eygló Jóna
Gunnarsdóttir býr á Selfossi.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Pabbi á erfitt með aðskilnaðinn
enda hálf mállaus af sjúkdómnum
og erfitt að eiga samskipti við hann í
síma og móðir mín heyrir illa,“ seg-
ir hún. „Ég skil vel af hverju pabbi
minn spyr: Af hverju er ég hér, ég
vissi ekki að þetta myndi verða
svona. Þetta er búin að vera ein
sorgarsaga.“
Foreldrar Lísu Bjargar Ingvars-
dóttur eru búnir að vera saman í 59
ár, síðan mamma hennar var 15 ára
og pabbi hennar 18. „Þetta er því
mjög erfiður og sár aðskilnaður fyr-
ir þau bæði. Við héldum upphaflega
að þetta yrðu einungis þrjár til fjór-
ar vikur, og hann kæmist á Selfoss
fyrir jólin en núna eru liðnir margir
mánuðir. Fyrst vonuðumst við eft-
ir að koma honum að á Kumb-
aravogi en því heimili var lokað, þá
á hjúkrunarheimili að rísa á Selfossi
en þótt talað sé um að það sé rétt
handan við hornið er staðreyndin
sú að enn hefur ekki verið dregið
pennastrik á blað,“ segir Lísa Björg.
– gerir lífið bjartara
Stækkunarglerslampar
Ármúla 19 · Sími 568 1620 · www.gloey.is · gloey@gloey.is
Vandaðir stækkunar
glerslampar í föndur
og fína vinnu.
Góð birta.
kr. 14.990,-
kr. 19.900,-
kr. 39.990,-
Hún fékk far á Hellu og
þar var hún stranda-
glópur seint um kvöld í
svartasta skammdeginu.
Þegar ég hringdi í hana
fyrir algera tilviljun stóð
hún á brú á þjóðveginum
og var að reyna að húkka
sér far. Þetta er bara
dæmi um örvæntingafull-
ar ákvarðanir eldra fólks
sem vill hittast.
75 ára á puttanum til Víkur
að heimsækja eiginmanninn
„Áður en pabbi minn fór í burtu var
mamma búin að vera í fullu starfi
heima við að annast pabba og gefa
lyf sjö sinnum á dag. Hún var ger-
samlega úrvinda á líkama og sál.
Hún er að upplagi ofboðslega sterk
manneskja, hún útskrifaðist til að
að mynda sem djákni 59 ára og var
útnefnd heiðursborgari Selfoss fyrir
skömmu. Ég óttast þó stundum að
ástandið sé að buga hana. Þeim líð-
ur báðum eins og honum hafi verið
úthýst og þetta er mikið tilfinninga-
flóð. Okkur líður öllum illa.“
Á fjórða tug fólks bíða eftir hjúkr-
unarheimili á Selfossi og ríflega
300 í Reykjavík þar sem faðir Lísu
Bjargar er á biðlista á átta stöðum.
„Núna hefur pabbi fengið vilyrði
fyrir að komast á heimili á Hellu en
það er aðeins styttra þangað en þó
mjög langt,“ segir hún.
„Við systkinin höfum skipst á
að fara með mömmu til Víkur, en
auk þess hefur hún fengið far með
fólki sem á aðstandendur þar til
að heimsækja pabba,“ segir Lísa
og bendir á að aðeins sé ein rúta
sem gangi fram og til baka á ein-
um degi. „Hún kemur til Víkur kl.
16 og fer strax til baka. Í eitt skipti
þegar mamma tók rútuna, þá ákvað
að hún að treysta á að geta fengið
far til baka frá Vík en það gekk ekki
eftir. Hún fékk far á Hellu og þar var
hún strandaglópur seint um kvöld í
svartasta skammdeginu. Þegar ég
hringdi í hana fyrir algera tilviljun
stóð hún á brú á þjóðveginum og
var að reyna að húkka sér far. Þetta
er bara dæmi um örvæntingafullar
ákvarðanir eldra fólks sem að vill
hittast.“
MT:
MT.
Lísa Björg Ingvars-
dóttir segir að foreldr-
um sínum líðí báðum
eins og honum hafi
verið úthýst. Þetta sé
mikið tilfinningaflóð.
Vilhjálmur Birgisson
segir að lífsviðurværi
bæjarbúa verði varið
með kjafti og klóm.
Ingvar Daníel og Eygló Jóna Gunnarsdóttir hafa verið aðskilin síðan í nóvember. Hann er á Vík í Mýrdal þar sem hann fær
ekki hjúkrunarheimili nærri heimili sínu en getur ekki lengur dvalið heima vegna veikinda.
Óveðursský og
eldingar á Akranesi
32732
Verkalýðsmál „Í gærkveldi
hrönnuðust upp óveðurský yfir
Akranesi sem endaði með gríðar-
legum þrumum og eldingum sem
lýsti upp allan bæinn,“ skrifar
verkalýðsforinginn Vilhjálmur
Birgisson á Akranesi á Facebook-
-síðuna sína. Tilefnið er sögusagn-
ir þess efnis að HB-Grandi hyggist
loka útibúi sínu í bænum.
„Það hefur enginn sagt mér að
þetta standi til. Ég segi bara pass,“
segir Þröstur Reynisson frystihús-
stjóri á Akranesi. Vilhjálmur segir
að lífsviðurværi bæjarbúa verði
varið með kjafti og klóm, en málið
muni skýrast á mánudag. „Ég veit
bara það, að ég var á Akranesi og
engin elding lýsti upp mína íbúð,“
segir Þröstur Reynisson við Frétta-
tímann. | þká
Sögusagnir eru um að
HB-Grandi hyggist loka
útibúi sínu í bænum