Fréttatíminn - 25.03.2017, Qupperneq 10

Fréttatíminn - 25.03.2017, Qupperneq 10
10 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017 HVAÐ NÚ? Trump og málefni Mið-Austurlanda Okkar helsti sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, Magnús Þorkell Bernharðsson, heldur fyrirlestur um utanríkisstefnu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum á 21. öldinni. Fyrirlesturinn fer fram í Norræna húsinu, þriðjudaginn 28. mars nk. kl. 17.00 Katrín Jakobsdóttir, formaður VG stýrir umræðum. VG og VGR Hverjum treystir þú? ÖLL VELKO MIN! Þrír karlmenn um fimmtugt sem allir hafa unnið í því að brjótast úr félagslegri einangrun settust niður til að ræða sína upplifun af einmanaleikanum. Þegar Tryggvi fann að hann var að einangrast ákvað hann að fara í klúbbinn Geysi, sem var stofnaður líkt og aðrir svokallaðir Fountain house klúbbar til að koma í veg fyrir einangrun og einmanaleika þeirra sem höfðu útskrifast af sjúkrahús- um. „Þegar maður kynnist svona athvörfum á borð við Geysi eða Hlutverkasetri þá hefur maður stað til að fara á. Þegar maður byrj- ar að loka sig af þá verður maður einmana en maður á ekki að þurfa að skammast sín fyrir að vera ein- mana. Ég fer sérstaklega á þessa staði til þess að hitta fólk.“ Evrópumet í sjálfsvorkun Georg segist hafa átt góða vini í grunnskóla en þegar hann flosn- aði upp úr skólanum missti hann af vinunum sem flestir eru lang- skólagengnir í dag. „Ég fór að drekka og einangraði mig þannig. Það hættu allir gömlu vinirnir að tala við mig enda eigum við lítið sameiginlegt í dag. Það er samt einn úr þessum hópi sem ég lít á sem vin í dag. Hann hætti aldrei að hafa samband og við tölum saman nokkrum sinnum á ári. Ég get alltaf hringt í hann svo ég á hann að og svo á ég líka eina vinkonu.“ „Ég hef oft skammast mín fyrir að vera ekki eins og margir. Eins og þetta fólk sem hittist og fer í klúbba og matarboð. Ég hef aldrei verið þannig, ég hef alltaf verið einn. Ég hef verið að berjast við alkóhólisma í þrjátíu ár og finnst oftast best að liggja bara uppi í rúmi og horfa á dramatískar myndir og vorkenna sjálfum mér og gráta. Ég á örugg- lega Evrópumet í sjálfsvorkun,“ seg- ir Georg og hlær. „Ég þurfti alltaf að drekka til að hitta fólk og þá var ég hundleiðin- legur svo fólk hætti að nenna að vera í kringum mig. Ég passa mig alltaf að hringja ekki í neinn og fara ekki á Facebook þegar ég er á þessum stað í munstrinu,“ segir Georg sem um þessar mundir er í bata þó að hann hafi litla líkamlega orku eftir síðasta drykkjutúr. Hann mætir í Hlutverkasetur til þess að hitta fólk því með því að hitta annað fólk finnst honum ólíklegra að hann detti aftur í sjálfsvorkun og lendi í kjölfarið á nýju kojufylleríi. „Ég var á góðum stað þegar ég ákvað að koma hingað og ganga inn í óttann, þó að ég hafi að sjálfsögðu verið skíthræddur. Ég sá fullt af fólki sem ég þekkti ekki en ákvað að fá mér samt kaffi og setjast niður. Svo var það bara allt í lagi og smám saman fór mér bara að líða vel hérna.“ Fer út í búð til að hitta fólk Björgvin segist lengi hafa þekkt ein- angrunina vel. „Það er svo auðvelt að festast í einangruninni og gera hana að vana. Ég á nokkra æsku- vini en vináttan hefur verið upp og ofan því ég er svo lokaður. Ég hef átt erfitt með að tengjast fólki því ég er svo félagsfælinn. Ég hef alltaf verið svona, ég man hvað mér fannst yfir- þyrmandi erfitt að fara í fjölskyldu- boð þegar ég var lítill. Ég verð svo þreyttur andlega á því að vera inn- an um margt fólk. En það er allt öðruvísi að vera einn og vilja það en að upplifa einmanaleika. Mér líður betur þegar ég er einn en ég byrjaði ekki að upplifa einmanaleika fyrr en ég varð eldri. Þá byrjaði ég að hugsa til baka og rifja upp eineltið og ofbeldið sem ég varð fyrir í æsku, og þá var best að reykja bara kanna- bis til að sefa sársaukann. Í dag er ég að vinna í því að rækta vináttu við systkini mín og svo kem ég hing- að því það er svo gott fólk hérna. Mig langar núna að koma hingað á hverjum degi. Það skiptir svo miklu máli að fara úr gamla farinu og reyna að byrja upp á nýtt. Í dag er ég farinn að geta horft í augun á fólki,“ segir Björg- vin sem hefur búið sér til sína eigin aðferð til að komast úr einangruninni. „Ég fer í hverfisbúðina bara til að hitta fólk. Og þar hitti ég alltaf fullt af skrítnu og skemmtilegu fólki. Svo fer ég í Tólf tóna til að hlusta á tónlist og spjalla við fólk en þetta hefur verið mikil vinna,“ segir Björgvin og Ge- org tekur undir. „Ég fer á ákveðna staði og reyni markvisst að lenda á spjalli við fólk. Í dag fór ég til dæmis í sjósund og þar hitti ég fólk sem ég lenti á löngu spjalli við. Mér sýndist allir bara mjög glaðir að fá að tala. Ég geri þetta í strætó líka. Stundum á ég erfitt með að tala en svo þegar maður er búinn að ganga inn í ótt- ann þá er alltaf gaman að lenda á spjalli.“ „Íslendingar eru samt svo lokað- ir,“ segir Björgvin. „Ég heilsa fólki oft í strætó og þá finnst mér sumir bara hugsa; hver andskotinn!“ Fólk hætt að fara í heimsókn Eitt sem félagarnir segja hafa breyst er að fólk er hætt að fara í heimsókn. Fólk tali meira saman á netinu en augliti til auglits. „Ég hitti stundum fólk og fer að tala um fréttir en þá segist fólk bara vera búið að heyra þetta allt á Face- book. En mér finnst allt öðruvísi að tala við fólk á Facebook,“ segir Björgvin. „Í dag fer fólk ekkert í heimsókn án þess að hringja á undan sér, hér áður fyrr mætti maður bara og gekk inn án þess að hringja bjöll- unni,“ segir Trausti. „Það þarf að vinna í að halda vinskapnum við. Það er sjaldnast þannig að vin- ir hafa sama áhugamál. Við erum öll ólík, það fer ekkert allur vina- hópurinn í sama námið og þess vegna fer fólk í sitthvora áttina.“ Getur verið einmana í hópi fólks Hvað með áhugamál, er það sniðug leið til að kynnast fólki? „Já, það er gott að hafa áhugamál því þá hefur maður eitthvað til að hlakka til. En fólk sem er mjög fast í einmannaleika er mjög líklega búið að koma sér frá öllum áhuga- málum. Finnst það vera tímasóun frekar en annað,“ segir Georg. „Já, það finna sér margir áhuga- mál sem eru búnir að tapa gömlu vinunum En tómstundir eru dýrar, það hafa ekkert allir efni á að vera í golfi,“ segir Trausti sem ákvað að skrá sig í hjólaklúbb því hann hefur mjög gaman að hjólreiðum. „Ég hitti þar fólk einu sinni í viku og ég þetta er stórskemmtilegt. En vandinn með áhugamálin er að það hafa ekkert allir efni á að ástunda áhugamál. Ég hefði til dæmis al- veg áhuga á því að fara í golf en ég hef bara ekki efni á því. Það kostar 70.000 á ári að vera í Golfklúbbi Reykjavíkur. Ég væri líka til í að vera í skotfélagi en byssur eru rán- dýrar. Svo gæti ég hugsað mér að vera í sprikltímum, þeir eru dá- samlega skemmtilegir.“ „Já, ég hef líka reynt það en mað- ur er dáldið einn þar líka,“ segir Georg. „Ef þú ert ekki með neinn með þér þá ertu bara aleinn innan um fullt af fólki. Ég finn fyrir raun- verulegum einmanaleika þegar ég er nýbúinn að vera með fólki og það er ekkert annað framundan en að fara heim. Svo opna ég dyrnar heima og það er bara ekkert. Þegar mig langar að eiga samskipti við einhvern en hef ekki möguleika á því, þá verð ég raunverulega ein- mana. Það gerist ekkert svo oft fyrir mig í dag en þegar það ger- ist þá er það rosalega óþægileg tilf- inning. Það er erfitt að vera aleinn þegar maður er ungur en það venst með aldrinum, þá er maður kom- inn með reynslu til að bara sitja og hlusta á lífið.“ Tryggvi Garðarsson, Björgvin Eðvaldsson og Georg Jónasson hafa allir upplifað það að vera einmana. Mynd | Hari Skammast mín fyrir að vera ekki eins og margir „Ég finn fyrir raunverulegum einmanaleika þegar ég er nýbúinn að vera með fólki og það er ekkert annað framundan en að fara heim. Svo opna ég dyrnar heima og það er bara ekkert.“ EINMANALEIKI

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.