Fréttatíminn - 25.03.2017, Page 14
14 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017
volundarhus.is · Sími 864-2400
GARÐHÚS 14,5 m²
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
RÝMINGARSALA
20% aukaafsláttur af öllum
GARÐHÚSUM
á meðan byrgðir endast
V
H
/1
6-
05
GARÐHÚS 4,7m²
44 mm bjálki / Tvöföld nótun
GARÐHÚS 4,4m²
GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
GARÐHÚS 9,7m²
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
· Allt á að seljast
· Fyrstur kemur fyrstur fær
· Ekki missa af þessu
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu
okkar volundarhus.is
og í síma 864-2400.
Guðlaug Sæmundsdóttir segir
erfiðast af öllu hafa verið að missa
bílinn. Þá hafi einmanakenndin
komið yfir hana.
„Ég ákvað að fara í dagdvöl af því
að mér leiddist heima. Dagarnir eru
svo langir, segir Guðlaug Sæmunds-
dóttir. Guðlaug er áttatíu og þriggja
ára gömul og býr ein.
„Ég vann sveitastörf þegar ég
var að alast upp á Vopnafirði og
við ýmislegt eftir að ég fór í nám
í húsmæðraskólanum. Ég vann
í mötuneytum og sá um að gefa
allt að 200 manns að borða, við
bjuggum til allan mat frá grunni.
Svo vann ég lengi á skrifstofu og
sem sölumaður, það fannst mér
mjög skemmtilegt. Svo vann ég á
saumastofu og það fannst mér líka
gaman. Síðustu átta árin vann ég á
Landspítalanum, á sótthreinsunar-
deild, við að raða í læknabakka,“
segir Guðlaug sem var sjötug þegar
hún hætti að vinna.
„Ég er búin að búa ein í mörg,
mörg ár en það var ekki fyrr en ég
hætti að vinna sem mér fór að leið-
ast. Og svo þegar ég missti bílinn
þá fór ég að vera einmana. Það er
með því verra sem maður lendir í,
því þó maður noti bílinn ekki endi-
lega mikið þá er svo gott að vita af
honum. Að geta bara farið eitthvað
þegar manni dettur í hug, í búð eða
í heimsókn er svo gott. Maður verð-
ur svo innilokaður og einangraður
þegar maður missir bílinn.“
„Eldra fólk er oft mjög einangrað
og þess vegna er svo gott að hafa
svona staði eins og Þorrasel,“ segir
Guðlaug en hún fer fjóra daga vik-
unnar í Þorrasel sem er dagdvöl
fyrir eldri borgara á vegum Reykja-
víkurborgar. Hún er sótt á morgn-
ana og keyrð heim seinnipartinn
eftir að hafa eytt deginum með hópi
fólks við hverskyns dægradvöl. „Ég
heyri það á fólki að þetta sé algjör
lífsbjörg. Annars væri tíminn bara
svo afskaplega lengi að líða. Ég hef
trú á því að fólk gæti orðið þung-
lynt ef ekki væri fyrir svona staði
sem bjóða upp á félagsskap. Það á
ekki að þurfa að gerast að fólk verði
þunglynt. Með fjölgun svona staða
ættum við að geta hjálpað sem flest-
um. Sumir reyndar vilja ekki fara á
svona staði, þó að þeim leiðist. En
það er svo gott að hafa eitthvað að
stefna að.“
Guðbjörg segist hafa verið farin
að finna fyrir miklum einmanaleika
þegar hún ákvað að taka skrefið og
sækja um dvöl í Þorraseli.
„Einmanaleikinn er slæmur.
Maður verður svo niðurdreginn
og fer að líða illa. Það er ekki gott
að finna fyrir einmanakennd. En
einmanaleikinn er ekkert til að
skammast sín fyrir, hann er eðli-
legur. En hann fer ekkert ef maður
gerir ekkert.“
„Þegar ég missti bílinn þá
fór ég að vera einmana.
Það er með því verra sem
maður lendir í.“
Einmanaleikinn
er ekkert til að
skammast sín fyrir
Guðlaug Sæ-
mundsdóttir
mætir fjórum
sinnum í viku
í dagdvöl fyrir
eldri borgara.
Mynd | Rut
EINMANALEIKI