Fréttatíminn - 25.03.2017, Page 16
16 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. MARS 2017
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Fiskibollur í dós
„Það er eitthvað við fiskibollur
í dós sem fá mig til að verða lítil
aftur. Ég man eftir því að hafa
borðað mikið af þessu hjá dag-
mömmunni minni og svo er þetta
einn af fyrstu réttunum sem ég
eldaði sjálf, sem sagt fiskibollur í
karrísósu,“ segir Hrefna sem var
farin að elda sjálf þegar hún var
sex ára gömul og hikaði ekki við
að gera tilraunakenndar útfærslur
af klassískum réttum. „Ég þróaði
fiskibollusósuna áfram en var nú
alltaf hrifnust af karríútgáfunni.
Ég alveg elskaði fiskibollur sem
barn og mamma var rosalega dug-
leg að hafa það í matinn sem ég
elskaði svo það voru mjög oft fiski-
bollur, alveg þar til ég sagði hingað
og ekki lengra!“
„Þegar ég varð aðeins eldri fór
ég að nota kókosmjólk í stað-
inn fyrir venjulega mjólk og það
er mjög gott. Það auðveldar líka
matargerðina því þá þarftu ekki
að gera smjörbollu. En ég verð að
viðurkenna að ég elda ekki mik-
ið af þessu í dag, enda er þetta
kannski ekkert sérstaklega hollt,
ég reyni frekar að gera fiskibollur
frá grunni. Börnin mín eru mjög
hrifin af fiskibollum og við erum
oft með allskonar útfærslur af
þeim.“
Annar réttur sem stendur upp
úr í æskuminningabanka Hr-
efnu er ekki ósvipaður bollunum,
bara með öðru lagi. „Ég var líka
rosalega hrifin af fiskbúðing og
eldaði heilan helling af honum,“
segir Hrefna sem opnaði ósjaldan
eina dós þegar hún kom heim úr
skólanum. Þá skar ég búðinginn
örþunnt og steikti vel á pönnu þar
til hann varð stökkur og borðaði
hann svo bara eins og snakk.“
Tartalettur með hangikjöti
Hrefna fór ung að prófa sig áfram
með jólamáltíðir og þegar hún
var níu ára reiddi hún fram ham-
borgarhrygg með ananas, að
hætti Sigga Hall. „Ég elskaði alltaf
matreiðsluþætti og byrjaði ung að
herma eftir Sigga Hall. Við vorum
aldrei með neinn hefðbundinn
jólamat á mínu heimili en mamma
gerði alltaf tartalettur á þrettánd-
anum. Tartalettur með hangiköti,
kartöflum, grænum baunum og
uppstúf verða alltaf uppáhalds
hjá mér. En það kom dálítið upp
Heitasti rétturinn í dag er af Youtube
Uppáhaldsréttir fara
og koma en það eru
samt alltaf nokkrir
sem eiga sérstakan
stað í hjartanu.
Hrefna Sætran
deilir með okkur
réttum frá ólíkum
tímabilum lífsins.
á núna í ár,“ segir Hrefna svekkt.
„Mágur minn ákvað að halda upp
á afmælið sitt sama dag svo við
fengum engar tartalettur í ár. En
við erum farin að hlakka til næsta
árs.“
Pakkapasta
„Þegar ég var að læra að verða
kokkur var ekki mjög gott kaup
og ég var flutt að heiman svo
ég var mjög mikið í því að elda
pakkanúðlur,“ segir Hrefna en hún
var átján ára þegar hún byrjaði
í kokkaskólanum og vann á Ap-
ótekinu meðfram náminu. „Það
var brjálað að gera á Apótekinu,
þetta var heitasti staðurinn í þá
daga, vaktirnar voru mjög langar
og maður gerði lítið annað en að
vinna. Á þeim tíma var mikið um
asísk áhrif svo ég var dáldið að
gera ódýra núðlurétti á wokpönnu
en mest var ég í því að elda ódýran
mat úr pökkum en gera hann voða
góðan. Ég keypti mjög mikið af
pakkanúðlum með dufti og man
að pakkinn kostaði 19 krónur á
þeim tíma. Ég náði að gera þetta
mjög gott með því að blanda smá
kryddum eða sojasósu eða sætri
chilisósu og kannski baunaspír-
um.“
Saltfiskur með waldorf-salati
Í dag er Hrefna komin langan veg
frá pakkapastaárunum. Eftir nám-
ið vann hún á Michelin-stjörnu
stað í Lúxemburg, opnaði svo sína
eigin staði í Reykjavík, hefur búið
til bækur, sjónvarpsþætti og sína
eigin matvörulínu auk þess að
stofna fjölskyldu. Á þessum mjög
svo uppteknu árum hefur hún búið
til endalaust magn rétta en það er
samt einn sem á sérstakan stað í
hjartanu. „Það er einn réttur sem ég
gerði fyrir jólamatseðil á Fiskmark-
aðinum fyrir mörgum árum sem
verður alltaf uppáhalds. Rétturinn
kemur úr æskunni því pabbi gerði
alltaf waldorf-salat með fiski þegar
ég var lítil, og oft með saltfiski. Ég
hugsa mjög mikið til æskunnar
þegar ég er að prófa mig áfram með
rétti því ég var alltaf að prófa eitt-
hvað sem barn, var mjög duglega að
smakka allt og var aldrei matvönd.“
„Rétturinn er nætursaltaður
þorskur og með honum ákvað ég
að setja waldorf-salat með sell-
erí, eplum, hnetum og þurrkuð-
um kirsuberjum og svo er kirsu-
berjasósa með þessu. Þetta átti að
vera algjör jólaréttur en svo æxlað-
ist það þannig að hann fór ekkert af
matseðlinum og hann er þar enn.
Við tókum hann einu sinni út en
það varð bara allt brjálað og hann er
ennþá einn af vinsælustu réttunum
hjá okkur. Þetta er mjög djúsí réttur,
með smá súru og líka sætu, og mér
sjálfri finnst hann alltaf jafn góður.“
Taco-spagettí
Börnin hennar Hrefnu hafa erft
áhuga mömmu sinnar á elda-
mennsku og sýna að hennar sögn
áhrifamikil tilþrif í eldhúsinu. En
í stað sjónvarpsþátta með Sigga
Hall horfa þau á Youtube-þætti og
finna þar uppskriftir sem þeim líst
vel á. Og þar fann yngri dóttirin
einn girnilegan rétt sem hún eldar
óspart við mikla lukku. „Dóttir
mín er þriggja ára og hún er alveg
svakaleg í eldhúsinu. Hún gerir til
dæmis salat frá grunni alveg sjálf.
Við vorum að leita að auðveldum
réttum á netinu og þá rakst hún
á þennan og vildi endilega gera
hann. Þetta er mjög auðveldur
réttur sem öll börn fíla. Þú steik-
ir nautahakk með tacokryddi og
svo setur þú dós af tómötum út í,
og svo brýtur þú spagettí út í og
þrjá bolla af vatni og sýður allt í
tuttugu mínútur. Svo hendir þú
rifnum osti út í þegar kássan er til.
Þetta er það allra heitasta í dag á
okkar heimili.“
Hrefna Sætran byrjaði ung að stunda tilraunir í eldhúsinu. Hún reiddi fram hamborgarhrygg með ananas a la Siggi Hall
þegar hún var níu ára, enda matreiðsluþættir hennar uppáhaldssjónvarpsefni. Í dag reiðir hún fram Youtube rétti með
börnunum sínum sem hafa erft áhugann á eldamennsku. Mynd | Heiða