Fréttatíminn - 25.03.2017, Síða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. MARS 2017
Alda Lóa Leifsdóttir
aldaloa@frettatiminn.is
Fyrir f lutningana fyrir fjórum árum þá rann upp fyrir Aniku að hún var umkringd dóti sem hún hafði enga þörf fyr-
ir. Hún tæmdi íbúðina í Hamborg
og gaf allt dótið sitt og flaug til Ís-
lands. „Það rann upp fyrir mér
að það er byrði frekar en ánægja
að eiga allt þetta dót. Þess vegna
á ég ekki bíl. Auðvitað getur ver-
ið hagstætt að eiga bíl, en þá þarf
ég að hirða hann og gera við þegar
eitthvað bilar. Eftir að ég eignaðist
börnin mín þá veit ég hvað tíminn
er dýrmætur. Þú horfir á börnin
þín og sérð á sama tíma hvað tím-
inn er hverfull. Ég vil ekki þurfa
að vinna aukavinnu ofan á þessar
40 stundir til þess að eiga fyrir bíl,
íbúð, fötum og mat og koma heim
þreytt og eiga þá eftir að laga til og
búa til mat og eiga enga orku af-
lögu fyrir barnið mitt.“
Raunverulegar þarfir okkar
Að vinna bara sínar 40 stundir og
þéna minna færir Aniku dýrmæt-
an tíma með fjölskyldunni sem er
hennar fjársjóður og meira ríki-
dæmi gæti hún ekki hugsað sér.
Fyrir utan það vill hún taka þátt í
því að skapa betri heim fyrir börn-
in sín og önnur börn. „Ég held að
það sé gott að endurnýta og nota
og það er gott fyrir okkur að skipt-
ast á hlutum. Halda haus og vera
meðvituð um hverjar þarfirnar
eru raunverulega. Ekki það að ég
sé búin að að ná þessu en æfingin
skapar meistarann“ segir Anika
með átta vikna gamla dóttur sína
sofandi á bringunni.
Anika er leikskólakennari og býr
með námsmanni á Hjónagörðum.
Hún segir vel hægt að lifa nægju-
sömu lífi ef þú ert í lágri leigu sem
er hinsvegar erfitt núna. Hún fæddi
dóttur sína í uppblásinni sundlaug
á stofugólfinu á Hjónagörðum fyr-
ir átta vikum. Hún er í fæðingar-
orlofi sem hún segir stutt hér, sex
mánuðir, miðað Þýskaland þar
sem það er 14 mánuðir. Anika kom
kona einsömul til landsins en núna
upplifir hún annarskonar Reykja-
vík sem er borg ungra barna og
foreldra.
Fjölskyldufundir alla daga
Anika segir fjölskyldunetið vera
sterkt á Íslandi og til þess að upp-
fylla þá þörf sem útlendingur með
barn, neyddist hún til þess að fara
út meðal fólks og sækja sér hjálp
utan heimilisins þegar hún eign-
aðist eldra barnið sitt fyrir tveimur
árum. Anika notfærði sér barna-
morgna til þess að kynnast fólki
og styrkja netið og spyrja spurn-
inga varðandi uppeldið á nýja
fjölskyldmeðliminum. Nú er hún
í sambandi við foreldra sem hún
kynntist á þessum morgnum og
þau bjóða hvert öðru í barnaaf-
mælin. Anika segir að þessir for-
eldra- og barnamorgnar hafi komið
ennþá sterkari inn afþví að barns-
faðir hennar er erlendur.
HELGAR-
TILBOÐ
Gildir til og með 27.mars
ROGUE
15,45 kW - 45.000 BTU.
139.995kr.
506600038
Almennt verð: 169.995kr.
PRESTIGE 500
23,0 kW - 80.000 BTU.
239.995kr.
506600060
Almennt verð: 299.995kr.
PRO 500
23,4 kW - 80.000 BTU.
329.995kr.
506600066
Almennt verð: 399.995kr.
Q3200
6,35 kW/h – 21.700 BTU.
74.895kr.
50650021
Almennt verð: 82.995kr.
70þúsund
króna
afsláttur!
60þúsund
króna
afsláttur!
30þúsund
króna
afsláttur!
Einfalt líf er
einfaldlega
betra líf
Anika Noack flutti til landsins frá Hamborg
með einn bakpoka á öxlunum fyrir
fjórum árum. Í dag á hún tvö börn og
kærasta í Reykjavík en tekst samt að halda
einfaldleikanum í hversdagslífi sínu. Hún
þekkir ókeypis og ódýra Reykjavik sem hefur
ótrúlegt nokk upp á margt að bjóða.
Anika Noack og dóttir hennar, Lucy Sól, kjósa frekar strætó en einkabílinn til
þess að koma sér á milli staða. Myndir | Alda Lóa
Foreldra- og barnamorgnar
Foreldra- og barnamorgnar eru
einhversstaðar í borginni alla virka
daga vikunnar. Þeir eru ókeypis,
og þarna hittast ungir foreldrar
með börnin sín og spjalla saman
í tvo tíma og drekka kaffi. Anika
segir þessa morgna vera ýmist í
kirkjunum þar sem eina kristilega
athöfnin er að kveikja á kerti og
signa sig. „Sem er nokkurra sek-
úndna athöfn á móti tveggja tíma
samveru,“ segir Anika og signir
sig. Bókasöfnin og Rauði Kross-
inn eru líka með foreldrafundi og
þá er jafnvel skipulagðari dagskrá
með næringarfræðingi eða svefn-
fræðingi einsog á fjölskyldufundin-
um hjá Rauða krossinum í Hamra-
borg sem hún sótti. En sökum þess
að hún er bíllaus urðu fundirnir í
Hallgrímskirkju oftast fyrir valinu.
Þeir voru frekar alþjóðlegir og fjöl-
mennastir.
Hún segir bókasöfn borgarinnar
vera með marga viðburði fyrir fjöl-
skyldur og börn sem eru ókeypis.
Einn viðburður er í uppáhaldi hjá
henni þar sem börn lesa upp fyrir
hunda en það er Borgarbókasafnið,
í samstarfi við félagið Vigdísi –
Vini gæludýra á Íslandi, sem bjóða
börnum sem heimsækja safnið
að lesa sér til ánægju fyrir hunda
sem eru sérstaklega þjálfaðir til að
hlusta á börn lesa.
Næsta lestrarstund verður 3.
apríl og hefst hún kl. 15. Foreldr-
ar þurfa að bóka tíma fyrirfram
fyrir börnin með því að senda á
netfangið thorbjorg.karlsdottir@
reykjavik.is.
Notar skiptimarkaði
Anika segir alltof mikið af fötum
vera í umferð á Íslandi. Algjör
óþarfi sé að kaupa öll þessi föt. Sér-
staklega ungbarnaföt sem slitna
Skiptimarkaður á vegum Swapp var síðast í janúar á Loft Hostel en er að öllu
jöfnu þrisvar á ári. Mynd | FacebooksíðaGreen Messengers.