Fréttatíminn - 25.03.2017, Page 22

Fréttatíminn - 25.03.2017, Page 22
22 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. MARS 2017 ekki, það er best að fara með þau á fataskiptimarkað sem Anika sæk- ir og fá ný föt í staðinn. Anika segir að ekki sé alltaf krafa um að koma með föt á móti á öllum skiptimörk- uðum. Hún hefur farið á skiptifata- markað hjá Rauða krossinum og heldur upp á samtök sem kalla sig Green Messengers (með síðu á Feis- búkk) sem hún segir vera mjög vin- sæl og halda góða skiptimarkaði með föt, leikföng og bækur. Þeir eru einsog nafnið gefur til kynna mjög umhverfisvænir og meðvit- aðir og skipuleggja viðburði fyr- ir börn og fullorðna. Anika hefur fengið mikið af fötum hjá þeim. Þeir eru líka með allskonar við- burði einsog til dæmis ljóðakvöld í kvöld 25. mars. En það eru uppá- komur sem hún sækir minna núna eftir að hún eignaðist börnin sín. „Ég hef varla keypt mér föt i mörg ár,“ segir Anika sem skipt- ir út fataskápnum reglulega. Samt kýs ég betri og dýrari föt afþví að þau endast betur sem er alltaf vist- vænna.“ Anika fer að vísu stund- um í Rauða Krossbúðirnar og fékk nýlega mjög fína skó fyrir son sinn fyrir aðeins 500 kr. Skórnir voru ónotaðir en nýir á netinu kosta þeir 10.000 kr. Rauða kross búðirnar og Hjálp- ræðisherinn eru með gott úrval af fötum fyrir lítinn pening. Anika mælir einnig með feisbúkksíðun- um, Gefins, allt gefins og Brask og brall. Þar er hægt að finna ókeypis eða ódýr tilboð á húsgögnum og innanstokksmunum. Epli í stað jarðarberja Matarmálin eru flóknari, af því að Anika velur hollan mat og hann er ekki alltaf ódýrastur. Hún seg- ist helst vilja íslenskar afurðir og tekur þær fram yfir innfluttan mat. „Ég reyni að elda frá grunni og nota sjaldan unnar vörur. Það er líka ódýrara segir Anika. Ég borða epli í staðinn fyrir jarðarber, ég vel einföldu leiðina sem er alltaf ódýrari.“ Anika telur marga staði vera í Reykjavik þar sem hægt er að borða bæði frítt eða fyrir lít- inn pening. Hún nefnir í því tilfelli matarboðin og veislurnar í Reykja- vik. Fyrst ber að nefna hóp sem eldar fyrir flóttafólk og vini þeirra á hverjum miðvikudegi. Hópur- inn kallar sig Andrými og borðar saman í húsnæði á Klapparstíg sem er að vísu að springa utan af við- burðinum af því að matarveislurn- ar eru svo vinsælar. Andrými leita logandi ljósi að nýju húsnæði. And- rými er á Feisbúkk. Anika mælir líka með Matar- kvöldi hjá Samtökum kvenna af er- lendum uppruna. Konurnar hittast og borða saman. Það er eingöngu fyrir konur. Ódýri maturinn á heimasíðunni Matarsóun er mikil á Íslandi allt of mikill matur sem fer í ruslið. Sum- ar búðir eru farnar að gefa það sem ekki selst eða selja fyrir lítið. Og þar er Krónan fremst í flokki segir Anika sem er ánægð með að þeir auglýsi vörur á niðursettu verði á heimasíðunni sinni. Bónus stendur sig ekki eins vel en þeir eru stund- um að gefa vörur eða selja ódýrt vörur sem eru varla boðlegar. Anika bætir við að hún sé bundin við Miðbæinn og Bónus í Breiðholti gæti kannski verið með aðrar vör- ur í boði fyrir lítið og bætir við að Kjöt og fiskur á Bergstaðastræti sé líka stundum með mat gefins eða fyrir lítið. Ókeypis smakk og kaffi Anika notar tvo fyrir einn hjá Nova. Þannig gat hún farið á Tapas- barinn með kærastanum sínum og borgað fyrir einn og fengið hinn Anika Noack segir Reykjavik skarta merkilega góðri götulist sem er alveg ókeypis að horfa á. fríann. „Ég nota þetta Nova tilboð mikið en ég hefði annars ekki efni á því að fara á staði eins og Tapas- barinn. Það er líka hægt að fara á matarmarkaðinn í Hörp unni og smakka endalaust, það er gaman. Og ef við förum út í þessa sálma þá er Hagkaup oft með einhverjar kynningar á mat, ostum og beygl- um sem er hægt að fá að smakka ókeypis. „Bankarnir eru með ókeypis kaffi á boðstólum sem ég get ekki notfært mér af því að ég drekk ekki kaffi.“ En á jólunum býður Rauði Krossinn upp á heitt kakó niðri í bæ sem Anika drekkur með bestu lyst. Menning og afþreying Anika mælir með Menningar- kortinu sem er árskort í helstu söfnin í Reykjavik og sparar mik- inn pening. Annars getur verið dýrt að fara á söfnin ef þú borg- ar einn stakann aðgang. Anika er hinsvegar mjög ánægð með götu- listina í Reykjavik og hún er alveg ókeypis. Hún segir vegglistaverkin á húsgöflum bera af samskonar list í öðrum heimsborgum. „Ég held líka að ferðamennirnir séu ánægð- ir með götulistina í Reykjavik.“ Anika bætir við að sér finnist léttir fyrir borgina að fá þessa upplits- djörfu og brosandi ferðamenn, Ís- lendingar geti verið þungir á brún. Hún stingur upp á Einars Jóns- sonar-garðinum fyrir listunnend- ur, þar þarf ekki að borga sig inn. Það kostar heldur ekkert að heim- sækja sýningar í Galleríum. Klink og Bank voru oft með skemmti- legar sýningar og frían aðgang. „En ég veit ekki hvort það verður áfram ókeypis aðgangur á nýja staðnum, en þau voru að flytja út á Granda í Marshallhúsið,“ segir Anika. Gaukurinn er með uppistand á hverjum mánudegi og karókí á þriðjudagskvöldum. Það er ókeyp- is og þeir eru líka með ókeypis konserta. Og ef þú átt ekki fyrir bjór þá er auðvelt að blanda sér í þvöguna og skemmta sér konug- lega án þess að eyða krónu. Sama má segja um Dillon og Boston og Airwaves þar sem meiri hluti at- riðanna er “off venues” og ókeypis. Ókeypis útivistarlíf í Reykjavik Ókeypis útivistarsvæði eru mörg í Reykjavik og Anika er hrifin af Laugardalnum sem henni finnst vera gott svæði til þess að spóka sig. Á veturnar er auðvitað ókeyp- is að renna sér á skautasvellinu á Tjörninni og alltaf hægt að renna sér niður Arnarhólinn. Síðan er meira að segja hægt að renna sér á skíðum á þremur stöðum í Reykja- vík, í skíðabrekkunni í Breiðholti, skíðabrekkunni í Grafarvogi og skíðabrekkunni í Árbæ. Allt ókeyp- is. Já einmitt, afhverju alltaf þessi Bláfjöll? Það kostar ekkert að renna sér í skíðabrekkunum í úthverfunum. Og Everest í Skeifunni er með notuð skíði sem hægt er fá fyrir lítið. „Ég reyni að elda frá grunni og nota sjaldan unnar vörur. Það er líka ódýrara segir Anika. Ég borða epli í staðinn fyrir jarðarber, ég vel einföldu leiðina sem er alltaf ódýrari.“ Þessi bókaskiptimarkaður var á veg- um Green Messengers í samstarfi við farfuglaheimilið í Laugardal. Green messengers starfa með HI Hostels. Mynd | FacebooksíðaGreen Messengers. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.