Fréttatíminn - 25.03.2017, Blaðsíða 28
Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is
Ég er eiginlega að lifa svona lífi eins og ég sé fyrir mér að ég lifi eftir fimmtíu ár,“ segir sál-fræðineminn Snædís
Gígja Snorradóttir sem á von á
sínu fyrsta barni á mánudaginn
og tekur því lífinu með ró. Snæ-
dís hefur að eigin sögn alltaf
verið árrisul enda hægt að koma
ýmsu í verk á morgnana þegar
þú ert með marga bolta á lofti.
Nú á síðustu metrum meðgöngu
gerast hlutirnir þó hægt og þá er
lítið fyrir Snædísi og barnsföður
hennar Stefán að gera, nema að
njóta.
„Núna er ég bara tvisvar í viku
í skólanum, eftir hádegi en ég
vakna alltaf á sama tíma á slaginu
hálf átta því sami bíllinn fer þá í
gang og beinir ljósunum inn um
gluggann. Ég er orðin eins og
klukka með þetta, sem er mjög
næs,“ segir Snædís og hlær. Snæ-
dís og Stefán eru bæði heima
þessa dagana og eru vel undir-
búin fyrir komu litlu stúlkunnar.
Snædís vaknar þó gjarnan á und-
an Stefáni og fer beint inn í eld-
hús að dunda sér. „Ég vakna alltaf
og fer beint inn í eldhús og kveiki
á Rás 2. Ég gef mér góðan tíma í
að gera morgunbústið, en áður
var ég vön að borða bara ristað
brauð.“ Snædísi finnst nefnilega
mjög notalegt að dútla í eldhús-
inu í morgunsárið. „Ég kveiki á
kertum og geri ógeðslega kósí,
ég er líka eiginlega bara komin
í fæðingarorlof. Eða mér líður
þannig þó ég sé ennþá að mæta í
skólann.“
Stefán er hinsvegar á þannig
matarkúr að hann fastar frá 8 á
kvöldin til 12 á hádegi, þannig
hann snæðir ekki morgunverð
með Snædísi. Heldur kúrir gjarn-
an lengur og gerir stundum
öndunaræfingar á morgnana.
Þess vegna finnst Snædísi gott
eyða góðum tíma í að gera kaffi-
bollann hans Stefáns svo þau geti
drukkið morgun bollann saman
eftir að hún borðar morgunverð.
„Hann fær sér alltaf bullet proof
föstukaffi sem er mjög sérstakt
kaffi með ósöltuðu smjöri og
kókosolíu. Þetta er mjög ritúal-
ískt,“ segir Snædís og skellihlær
þegar hún bætir við kímin. „Ég
vil samt undirstrika að ég þarf
ekki að gera morgunkaffið, þetta
er engin kvöð.“ Skötuhjúin gera
sér þó grein fyrir því að rútín-
an mun eflaust breytast mikið
á næstu dögum þegar líf þeirra
umturnast og nýr einstaklingur
bætist í hópinn. „Við erum búin
að vera að stíga inn í fæðingaror-
lofið síðan um áramótin. Það er
bara allt tilbúið en það mun auð-
vitað margt breytast þegar barnið
fæðist. En ég held við séum búin
að koma okkur vel fyrir í þessu
lífi heima og ná að slaka á og jarð-
tengja okkur.“
28 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 24. MARS 2017
Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.thrif.net
Fyrirtæki og húsfélög, gerum
tilboð ykkur að kostnaðarlausu
Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir
íbúðir sem eru í túristaleigu
Hefur þú þörf fyrir
þrif
Rólegir morgnar
áður en barnið
fæðist
Morgunstund
Morgnar Snædísar og Stefáns eru mjög rólegar, en þau eiga von á sínu fyrsta barni í
næstu viku. Mynd | Heiða.
Snædís og Stefán eiga von á sínu fyrsta barni eft-
ir tvo daga. Frumburðurinn er lítil stúlka og bíð-
ur parið í ofvæni eftir komu erfingjans sem mun
eflaust umbreyta rólegum morgun stundum
þeirra töluvert.
Bubbar sem má hrista og slá
Ninna Þórarinsdóttir
hönnuður hefur
hannað hljóðfæri fyrir
börn sem koma í sjö
útgáfum og kallast
Bubbar.
„Hefðbundin hljóðfæri eru dálítið
alvarleg og kannski ekki alveg
nógu spennandi fyrir mjög unga
krakka. En Bubbarnir eru agalega
hressir,“ segir hönnuðurinn Ninna
Þórarinsdóttir sem sýnir um
þessar mundir hjóðfæri sem hún
hannaði fyrir börn í tengslum við
Hönnunarmars.
Ninna er nýkomin frá Gautaborg
þar sem hún stundaði meistara-
nám í barnamenningarhönnun og
þar urðu Bubbarnir einmitt til.
„Ég er voðalega hrifin af tónlist
og svo á ég einn litinn strák. Ég var
alltaf að kaupa allskonar hljóð-
færi handa honum en þegar ég var
að leita og skoða þá fannst mér
vanta eitthvað sem hentaði yngri
börnum betur. Mig langaði svo til
að setja andlit á hljóðfærin, gera
hálfgerðar dúkkur sem hægt væri
að búa til hljóð með. Þetta eru alls
ekkert flókin hljóð en það er hægt
að leika sér með Bubbana og fram-
kalla hjóð með því að hrista þá
og slá,“ segir Ninna en Bubbarnir
koma í sjö mismunandi útfærsl-
um.
Ninna segir skólann sem hún
lærði við vera þann eina í heim-
inum sem einblíni sérstaklega
á hönnun fyrir börn og sem
noti þeirra aðstoð í ferlinu, en
þau séu sjaldnast spurð álits
á einu né neinu. „Það er svo
mikilvægt að við ræktum
barnamenningu því þetta
eru einstaklingarnir sem taka við
heiminum af okkur. Þau skipta
mestu máli og þau hafa svo mikið
að segja. Það er mikilvægt að taka
eftir börnum og hlusta vel á
hvað þeim finnst,“ segir Ninna
sem sýnir Bubbana í Hannes-
arholti á meðan Hönnunar-
mars stendur yfir. | hh
Ninna segir mikilvægt að
við ræktum barnamenn-
ingu, því börnin séu jú
einstaklingarnir sem taki
við heiminum. Mynd | Heiða
Kattaaðdáendur sameinast
Kisur geta gefið lífinu lit.
Vefsíðan Facebook er orðinn
einn stærsti vettvangur fyrir
umræður. Allir hafa skoðun á
öllu og fjölmiðlar eru duglegir
við að kippa upp skoðunum
einstaklinga og birta á eigin vef-
svæðum. Á tímum sem þessum
er mikilvægt að fylla krúttskal-
ann reglulega og einn hópur á
netinu er einmitt góður í það.
Facebook síðan Kettir á Facebook,
aðdáendur katta og dýravinir er
virk Facebook-síða með meira en
ellefu þúsund meðlimi. Þar viðra
meðlimir ýmis áhyggjuefni sín
sem varða gæludýrin og meðlim-
ir ræða það nýjasta í málefnum
katta. Þetta er síðan sem þú vilt
fara inn á þegar Mjási litli týnist
eða þegar að kötturinn Njáll lendir
í slagsmálum.
En auk þess að ræða um ýmis
háalvarleg málefni sem koma
upp í kattarhaldi þá er einnig að
finna í hópnum nóg af húmor og
skemmtilegheitum því meðlimir
eru nefnilega sérstaklega iðnir við
að deila sætum, fyndnum og krútt -
legum myndum og myndböndum
sem tengjast kisum. Þeir sem vilja
hella sér í umræður um málefni
katta og gæludýra almennt, skoða
sætar myndir og fylla krúttskal-
ann fyrir næstu árin ættu að finna
þessa síðu og taka þátt. | bsp