Fréttatíminn - 25.03.2017, Side 36

Fréttatíminn - 25.03.2017, Side 36
Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Það er mikil vakning í fiskinum,“ segja hjónin Guðmundur Viðarsson matreiðslumaður og Mjöll Daníelsdóttir sem reka Kaffivagninn úti á Granda. Þau tóku við rekstri Kaffivagns- ins árið 2013 og hafa getið sér gott orð fyrir hlýlega stemningu og sí- gilda íslenska matargerð. Þar er fiskurinn í aðalhlutverki. Við reynum að halda okkur í þessum hefðbundna mat; rauð- sprettu, ýsu, fiskibollum og salt- fiski. Svo erum við líka alltaf með rétti dagsins og spilum það svolítið eftir veðrinu og stemningu hvað er á boðstólum hverju sinni. Það get- ur verið steikt ýsa með lauksmjöri eða grillaður lax með humarsósu,“ segja þau. Guðmundur segir að þessi klass- íska nálgun, þessi gamla íslenska stemningin höfði greinilega til fólks í dag. „Þegar ég kom að þessu fyrir fjórum árum fannst mér virkilega vanta eitthvað svona í veitinga- húsaflóruna í bænum. Það vantaði stað þar sem hægt væri að panta venjulegan mat, það þurfti ekki froður eða tíu tegundir af meðlæti á diskinn.“ Hvaða fólk kemur til ykkar? „Það er bara þverskurðurinn af ís- lensku þjóðfélagi. Ég held að Jónas Kristjánsson hafi orðað þetta ágæt- lega í vetur þegar hann skrifaði um okkur. Hann sagði að hjá okkur Þarf ekki froðu eða tíu tegundir af meðlæti Guðmundur Viðarsson og Mjöll Daníelsdótt- ir hafa slegið í gegn með Kaffivagninn úti á Granda. Þar er íslenskur fiskur í aðalhlutverki, eldaður á klassískan máta. Klassískar fiskibollur Einn af vinsælustu réttunum á matseðli Kaffivagnsins eru klassískar fiskibollur. Mjöll og Guðmundur gefa okkur hér uppskriftina að þessari dásemd. „Þessar eru algjörlega geggjað- ar,“ segir Mjöll. Steiktar fiskibollur með lauksmjöri og remúlaði Fyrir fjóra Hráefni Ýsuhakk 1 kg Laukur 100 g 4 stk. egg 200 g hveiti 250 ml rjómi 250 ml mjólk Salt/pipar Aðferð Allt sett í hrærivélarskál og hrært saman þar til deigið er orðið silki- mjúkt. Steiking Bollurnar eru steiktar á pönnu með smjöri og matarolíu þar til þær eru orðnar gullinbrúnar. Borið fram með kartöflusmælki, lauksmjöri og remúlaði. Mjöll Daníelsdóttir stendur vaktina á Kaffivagninum úti á Granda ásamt bónda sínum, Guðmundi Viðarssyni matreiðslumanni. Einn af vinsælustu réttum staðarins eru fiskibollurnar. Mynd | Heiða Helgadóttir væru allt frá leigubílstjórum upp í ráðherra og allt þar á milli. Þetta hefur mælst hrikalega vel fyrir,“ segir Guðmundur. Kaffivagninn er vitaskuld á besta stað í bænum og útsýnið yfir höfn- ina á fallegum dögum er óborg- anlegt. Það er því ekki að undra að erlendir ferðamenn hafa tek- ið staðnum opnum örmum og þegar síðast var að gáð var hann með fimmtu hæstu einkunnina af veitingastöðum í Reykjavík á Tripadvisor. „Það sem skapar þetta er salur- inn og staðsetningin, allt sem er í kringum þetta. Þetta er lítið sætt veitingahús. En það er ekki nóg því þú þarft að vera með matinn í lagi og bjóða upp á eitthvað sem fólk fær ekki allsstaðar annars staðar. Þetta hefur steinlegið hjá túrist- um,“ segja Mjöll og Guðmundur. Hverju eru ferðamennirnir hrifn- astir af? „Þeir eru mikið í fiskisúpunni og fiski og frönskum. En ef fólk er ekki fyrir fisk þá erum við líka með smurbrauð og samlokur, kaffi og með því.“ Þið haldið enn í gömlu stemn- inguna... „Jájá. Hér er enn hægt að fá kaffi og kleinu með því eða rjómapönnu- köku. Þetta er bara það sem við vorum alin upp með. Það er ver- ið að reyna að halda í þær matar- hefðir og láta þær njóta sín. Það er engin ástæða til að henda því burtu fyrir donuts og cup cakes. Það er svona hugmyndafræðin á bakvið þennan stað; að vera trú gamla tímanum en uppfæra líka með því að bera fram í pönnum og á falleg- um diskum. Þið hafið verið lengi í fiskinum, rákuð veiðihús til margra ára, ekki satt? „Jú, við rákum veiðihúsið við Norð- urá í yfir 20 ár og eins komum við að Hítará, Langá og Laxá í Dölum. Þannig að þetta er eiginlega í blóð- inu að elda og umgangast fisk.“ Er íslenski fiskurinn besta hráefnið? „Algjörlega. Þú finnur ekki betra hráefni. Hér er ekki átt við neitt. Þetta er ekki eins og kjúkling- ur sem búið er að sprautusalta til andskotans, eða þegar búið er að þyngja kjöt með því að setja í það allskonar efni. Þú færð ekki hollara hráefni en fiskinn og það skilar sér á diskinn,“ segir Guðmundur. Þetta er klass- ískt hjá okkur, hér er ekkert verið að finna upp hjólið. 4 LAUGARDAGUR 25. MARS 2017MATARTÍMINN

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.