Fréttablaðið - 26.01.2018, Side 2
Það er gömul saga
að þegar líður að
kosningum fer Gróa gamla á
Leiti á kreik.
Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri
Kópavogs
Veður
Suðaustan strekkingur í dag og
snjókoma en rigning á láglendi
síðdegis á sunnan- og vestanverðu
landinu. Þurrt að kalla norðan heiða,
hlýnandi veður. sjá síðu 18
Skíðað í myrkrinu
Þótt dagurinn sé ekki enn orðinn sérstaklega langur er svo sannarlega hægt að skella sér á skíði líkt og þessir þremenningar gerðu í Bláfjöllum í gær.
Opið var í allflestar brekkur skíðasvæðisins í átta stiga frosti. Dagana á undan hafði svæðið verið lokað vegna snjókomu og roks. Fréttablaðið/Vilhelm
Kópavogur Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri Kópavogs, segir ummæli
sem honum eru eignuð í bréfi frá
lögmanni húsfélags í bænum, og
eigi að hans mati að sýna sérstaka
óvild í garð eldri borgara, uppspuna
frá rótum og dylgjur ónafngreindra
manna. Furðu sæti að lögmannsstof-
an Veritas hafi tekið að sér að „bera
út slíkar aðdróttanir“ þar sem nafn
hennar þýði sannleikur á latínu.
Þetta sagði Ármann á fundi bæjar-
ráðs Kópavogs í gær þegar lagt var
fram erindi Veritas varðandi rétt
húsfélagsins að Fannborg 3-9 til 36
bílastæða við fasteignirnar.
Lögmaðurinn Skarphéðinn Pét-
ursson sendi bænum bréfið þann
17. janúar og í því segir að tillaga
bæjaryfirvalda að deiliskipulagi,
fyrir stækkun fasteigna að Digra-
nesvegi 1, sem hafi þann tilgang
að tryggja aukið húsnæði undir
skrifstofur bæjarins, muni skerða
rétt íbúanna til bílastæða. Þeir hafi
mótmælt tillögunni, enda húsfélagið
tryggt sér bílastæðin árið 1979, og
muni krefjast skaðabóta ef réttindin
verða skert.
„Fór svo að meðferð hennar var
frestað af hálfu bæjarins, enda ljóst
að kosningar eru á næsta leiti og
vart von á að boðaður yfirgangur
bæjaryfirvalda myndi beinlínis auka
kosningavinsældir kjörinna fulltrúa.
Hins vegar var umbjóðanda mínum
tilkynnt af bæjarstjóra að henni yrði
framfylgt af hörku eftir kosningar og
íbúar Fannborgar 3-9, sem flestir eru
eldri borgarar, væru ekkert of góðir
til þess að leggja við Kópavogskirkju
og ganga heim til sín!“ segir í bréfi
lögmannsins sem Ármann svaraði
með bókun á bæjarráðsfundinum.
„Það er gömul saga að þegar líður
að kosningum fer Gróa gamla á Leiti
á kreik. Það er hins vegar ný saga að
hún skuli vera komin með lögmann.
[…] Það er kannski kaldhæðni örlag-
anna að Gróa á Leiti hafi endað þar,“
sagði Ármann.
Í umsögn bæjarritara sem lögð
var fram á fundinum kemur fram
að deiliskipulagstillagan var auglýst
í apríl í fyrra. Hún hafi aftur á móti
ekki verið send Skipulagsstofnun
innan sex mánaða frá því að frestur
til athugasemda rann út. Tillagan
hafi ekki verið afgreidd af bæjar-
stjórn innan þess tíma og því engin
tillaga að breyttu deiliskipulagi til
meðferðar hjá henni.
haraldur@frettabladid.is
Bæjarstjóri segir Veritas
vinna fyrir Gróu á Leiti
Æðsti embættismaður Kópavogs er ósáttur við lýsingar á samskiptum hans við
íbúa í Fannborg. Í bréfi Veritas lögmannsstofu er fullyrt að hann hafi hvatt íbúa
til að leggja við Kópavogskirkju og ganga heim. „Uppspuni frá rótum og dylgjur.“
bæjaryfirvöld í Kópavogi kynntu í vor deiliskipulagstillöguna svo stækka megi
bæjarskrifstofurnar við Digranesveg 1 í átt að Fannborg. Fréttablaðið/Vilhelm
Vatnsheldir
gæðaskór
Skornirthinir.iS
Verð 16.995
Stærðir 36-47
Frá Lytos með innbyggðum
broddum í sóla.
alþingi Una Hildardóttir, vara-
þingmaður Vinstri grænna, flutti
jómfrúrræðu sína á Alþingi í peysu
sem kom þingheimi kunnuglega
fyrir sjónir þar sem Katrín Jakobs-
dóttir, forsætisráðherra og flokks-
systir Unu, hefur staðið í ræðustól í
nákvæmlega eins flík.
Una segir um tilviljun að ræða
og fánalituð peysan sé ekki nýr
einkennisbúningur VG á þingi og
þær Katrín deili heldur ekki sömu
peysunni. „Þetta eru tvær peysur.
Þetta er ekki alveg svo gott að ég
hafi þurft að fá lánaða peysu hjá
Katrínu,“ segir Una sem ákvað fyrir
allnokkru að halda sína fyrstu þing-
ræðu í peysunni.
„Ég frétti fyrir áramót að ég myndi
fara inn á þing á næstunni. Ég hafði
séð þessa peysu í búðarglugga fyrir
löngu og ákvað þá að vera í henni
þegar ég flytti jómfrúrræðu mína.
Þessi jómfrúrræða var mjög góð
afsökun til að fara í Geysi og kaupa
mér nýja peysu.“
Una segir peysuna síðan hafa
hangið og beðið eftir stóra deginum.
Í millitíðinni fóru henni að berast
myndir af Katrínu í eins peysu,
meðal annars frá móður sinni og
vinum. „Ég hugsaði mig því vel og
lengi um hvort ég ætti að fara og
skipta henni og fá nýja en fyrst ég
var löngu búin að ákveða þetta lét
ég slag standa.“ – þþ
Jómfrú stal stíl
forsætisráðherra
Katrín Jakobsdóttir og Una hildar-
dóttir samstiga í peysuvali.
lögreglumál Maður sem lög-
reglan leitaði í gær vegna andláts
konu í austurborginni í fyrrinótt
hefur hlotið marga refsidóma fyrir
fíkniefnabrot, auðgunarbrot og
alvarleg ofbeldisbrot. Þetta herma
heimildir Fréttablaðsins og einn-
ig að fyrri unnusta mannsins hafi
látist af fíkniefnaeitrun árið 2014.
Talið er að konan hafi látist af of
stórum skammti lyfja. Maðurinn
mun hafa látið sig hverfa af vett-
vangi. Ekki var ljóst er Fréttablaðið
fór í prentun hvort lögreglan var
búin að ná tali af manninum. – aá
Lögregla leitaði
ofbeldismanns
leitað var að manni sem hvarf eftir
lát konu. Fréttablaðið/Vilhelm
2 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 F ö s T u D a g u r2 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
5
-F
9
0
8
1
E
D
5
-F
7
C
C
1
E
D
5
-F
6
9
0
1
E
D
5
-F
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K