Fréttablaðið - 26.01.2018, Page 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 512 5439 ,
„Ég hef verið í og kringum landsliðshópinn undanfarið og lít á það sem raunhæft markmið að vinna mér fast sæti þar,“
segir Sigtryggur Arnar Björnsson sem spilaði tvo landsleiki gegn Belgíu á síðasta ári. MYND/ANDRI MARINÓ
Eftir þrjú tímabil með körfuboltaliði Skallagríms sneri Skagfirðingurinn Sigtryggur
Arnar Björnsson heim og spilar
nú með heimaliði sínu Tinda
stól í Domino’s deildinni. Liðið
tryggði sér fyrsta stóra titil sinn
fyrr í þessum mánuði þegar það
varð bikarmeistari eftir stórsigur
á Íslandsmeisturum KR. Nú er
markið sett á fyrsta Íslandsmeist
aratitilinn í sögu félagsins auk þess
sem Arnar, eins og hann er alltaf
kallaður, hannar eigin íþrótta
fata línu með bróður sínum. Það
eru því spennandi mánuðir fram
undan hjá þessum 24 ára körfu
boltamanni sem hefur átt frábært
tímabil með liði sínu.
Körfuboltinn heillaði
Körfuboltaferill Arnars hófst þó
ekki með Tindastól heldur með
Breiðabliki en fjölskyldan flutti í
Árbæ í Reykjavík þegar hann var
átta ára gamall. „Ég byrjaði fljót
lega að æfa fótbolta með Fylki og
körfubolta með Breiðabliki. Þegar
ég mætti á mína fyrstu körfu
boltaæfingu fann ég strax að þetta
var íþrótt fyrir mig. Ég náði fljótt
góðum tökum á leiknum þann
ig að ég ákvað að hætta í fótbolta
og einbeita mér að körfunni. Ég
spilaði með Breiðabliki í fimm ár
og vann fjóra Íslandsmeistaratitla.“
Munur á aðstæðum
Þegar Arnar var fjórtán ára gamall
varð mikil breyting á lífi hans en
þá flutti hann ásamt fjölskyldunni
til Halifax í Kanada en hann er
næstelstur í fjögurra systkina hópi.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Framhald af forsíðu ➛
„Ég kláraði framhaldsskólann í
Kanada og tók líka eitt ár í háskóla
og æfði og spilaði með báðum
skólaliðunum. Helsti munurinn
á körfuboltanum í Kanada og hér
heima er að úti var meira lagt upp
úr líkamlegri þjálfun. Við lyftum
á morgnana fyrir skóla og síðan
var æfing eftir skóla. Leikmenn
irnir þar voru miklir íþróttamenn
en leikskilningurinn virðist vera
meiri hér heima. Kanadískur
körfubolti er hins vegar á hraðri
uppleið og vann m.a. landsliðið
skipað leikmönnum 19 ára og
yngri heimsmeistaratitilinn í fyrra.
Það hjálpaði mér mikið persónu
lega og í körfuboltanum að búa úti
og mun ég vafalaust búa að þeirri
reynslu alla ævi.“
Leið vel í Borgarnesi
Eftir sex ár flutti fjölskyldan aftur
heim og eftir smá yfirlegu ákvað
Arnar að ganga til liðs við Skalla
grím í Borgarnesi sem þá spilaði í
Domino’s deildinni. „Ég hafði sam
band við þáverandi formann deild
arinnar, Kristin Óskar, og spurði
hvort ekki vantaði leikstjórnanda
og sagði honum að ég hefði áhuga
á að spila með liðinu. Eftir árin í
Kanada var ég líka spenntari fyrir
því að búa úti á landi en í borginni.
Kristinn tók mjög vel í fyrirspurn
mína og bauð mér að koma og búa
hjá fjölskyldunni og var ég mjög
þakklátur fyrir það.“
Ferillinn hjá Skallagrími ein
kenndist af upp og niðursveiflum.
„Við féllum fyrsta tímabilið mitt en
komumst svo strax aftur upp árið
eftir á mjög dramatískan og eftir
minnilegan hátt. Við féllum síðan
aftur síðasta vetur með 14 stig sem
er stigafjöldi sem oftast dugir til að
halda sæti í úrvalsdeild. Þó svo að
ekki hafi alltaf gengið vel hjá liðinu
þessi þrjú ár leið mér virkilega
vel í Borgarnesi. Maður fann fyrir
stuðningi og jákvæðni frá fólkinu í
bænum sama hvernig okkur gekk.
Ég kynntist hellingi af frábæru
fólki á þessum tíma, þar á meðal
kærustunni minni Bjarneyju Sól.“
Góð tilfinning að vinna
Fyrsta tímabilið með Tindastól
hefur byrjað mjög vel hjá honum
persónulega og einnig liðinu sem
situr í 2.4. sæti deildarinnar. „Það
er mjög gott að vera kominn aftur
á Krókinn. Fólkið hér er vingjarn
legt og tók vel á móti mér. Þetta
er körfuboltabær og það fylgjast
flestir með liðinu. Það er því
gaman að kíkja í Skagfirðingabúð
eftir góða sigurleiki.“
Bikarmeistaratitillinn var gríðar
lega sætur sigur og segir Arnar að
hann muni gefa liði Tindastóls
aukið hungur og sjálfstraust inn í
framhaldið. „Við fengum loksins
þessa tilfinningu að vinna eitthvað
stórt og það er klárlega tilfinn
ing sem ég, liðið og bæjarfélagið
viljum upplifa aftur sem fyrst. Nú
er næsta markmið okkar að halda
okkur í topp fjórum í deildinni
til þess að eiga heimavallarrétt
í úrslitakeppninni. Við teljum
okkur vera sigurstranglega í Síkinu,
heimavelli okkar, á móti hvaða liði
sem er í þessari deild.“
Háleit markmið
Það er augljóst mál að Arnar ætlar
sér ekkert annað en stóra titilinn
í vor. „Markmið liðsins eru alveg
skýr varðandi það. Auk þess stefni
ég á að komast í landsliðshópinn
og jafnvel út í atvinnumennskuna
en það hefur lengi verið draumur
hjá mér. Ég hef verið í og kringum
landsliðshópinn undanfarið og
lít á það sem raunhæft markmið
að vinna mér fast sæti þar. Núna
hugsa ég þó aðallega um einn dag í
einu og hvernig ég get bætt mig frá
degi til dags. Ég tel það vera bestu
leiðina til þess að ná árangri.“
Körfuboltinn á stærstan sess
í lífi Arnars og hefur hann haft
lítinn tíma til að hugsa um annað
undanfarin ár. „Ég hef í raun ekki
enn ákveðið hvað ég vil gera í
framtíðinni, annað en að spila
körfubolta. Körfuboltaferillinn
er ekki langur og því þarf að hafa
eitthvað annað fyrir stafni. Ég
kláraði tvö ár í viðskiptafræði við
Háskólann á Bifröst á meðan ég
bjó í Borgarnesi og er planið að
ljúka því. Reyndar hef ég lengi haft
áhuga á tannlæknanámi en hef
ekki enn látið verða af því.”
Hannar íþróttaföt
Helsta áhugamál Arnars um þessar
mundir er fatamerkið Trainclean
sem hann stofnaði með bróður
sínum, Sigmari Loga Björnssyni,
en hugmyndin kviknaði þegar þeir
bjuggu í Kanada. „Við höfum báðir
mikinn áhuga á bæði íþróttum og
tísku. Því fannst okkur upplagt að
hanna eigin íþróttafatalínu sem
væri vönduð og seld í takmörkuðu
magni.“
Bræðurnir fóru rólega af stað
og selja hönnun sína einungis
gegnum Facebooksíðu Trainclean.
„Við bjóðum upp á alls konar flíkur
fyrir bæði kyn, t.d. boli, peysur
og buxur, auk þess sem fleira er
í vinnslu. Einnig langar okkur
að hanna treyjur og fatnað fyrir
íþróttafélög hér á landi. Verka
skiptingin milli okkar er þannig að
Sigmar sér að mestu um hönnunar
hliðina og ég um viðskiptahliðina
sem er góða blanda.“
Hann segir nafnið Trainclean
standa fyrir „þjálfun án notkunar
ólöglegra efna“ sem eru skilaboð
sem þeir vilji reyna að koma út til
sem flestra sem stunda íþróttir og
líkamsrækt. „Það væri gaman að
sjá allar helstu fyrirmyndirnar í
íþróttum á Íslandi klæðast þessu
merki til þess að koma skilaboð
unum til yngri kynslóðarinnar.“
Þar sem Arnar æfir 23 sinnum á
dag, auk þess að sinna Trainclean,
er lítill tími fyrir önnur áhugamál.
„Nýlega fékk ég þó mikinn áhuga
á CrossFit og hef verið að stúdera
það upp á síðkastið og um leið
hvernig ég get nýtt það til að bæta
mig í körfubolta. Á kvöldin eftir
æfingu finnst mér best að slaka á
með kærustunni, drekka te og lesa
góða bók eða horfa á Netflix.“
Lið Tindastóls varð bikarmeistari fyrr í þessum mánuði. Nú er stefnan sett á
fyrsta Íslandsmeistaratitilinn. Arnar er lengst til vinstri á myndinni.
Arnar ásamt kærustu sinni, Bjarneyju Sól.
Arnar í bol úr línu þeirra bræðra sem
nefnist Trainclean.
Lágmark 10 manns.
Nánari upplýsingar á sjavarbarinn.is
fyrir hópa
Frábærar veislur
Grandagarði 9 - Sími 517 3131 - sjavarbarinn.is
Lambalæri bernaise og lambakótelettur 3.600 kr.
Þorramatur og heit og köld sviðaveisla 3.600 kr.
Siginn fiskur og saltfiskur með hömsum 2.900 kr.
Sjávarréttasúpa, smáréttir, salatbar og viðeigandi
meðlæti, kaffi og hjónbandssæla innifalið
89%
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild : Prentmiðlamæling Gallup okt. - des. 2017.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . JA N ÚA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
6
-2
A
6
8
1
E
D
6
-2
9
2
C
1
E
D
6
-2
7
F
0
1
E
D
6
-2
6
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K