Fréttablaðið - 26.01.2018, Qupperneq 22
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@365.is, s. 512 5095
Hjá dk hugbúnaði starfa 58 manns, af þeim eru 16 í þróunardeildinni, 9 í hýsingardeildinni og 26 í almennri þjónustu. dk er í glæsilegu húsnæði við Smáratorg 3 (Deloitte-turninn), á 15. hæð. MYND/ANTON BRINK
Fyrirtækið dk hugbúnaður er leiðandi á sviði viðskipta-hugbúnaðar hér á landi fyrir
allar stærðir og gerðir fyrirtækja.
Fyrirtækið verður 20 ára í nóvem-
ber og starfsemin hefur farið ört
vaxandi undanfarin ár. Í dag vinna
58 starfsmenn hjá fyrirtækinu.
„Rúmlega 6.000 fyrirtæki nýta
sér viðskiptahugbúnað dk og þeim
fjölgar um 500 á hverju ári,“ segir
Dagbjartur Pálsson, en hann er
framkvæmdastjóri dk hugbúnaðar
ásamt bróður sínum, Magnúsi
Pálssyni.
Margar sérlausnir
„Kerfið okkar er mjög sveigjanlegt,
en takmarkaðir notkunarmöguleik-
ar eru veikleiki margra bókhalds-
kerfa á íslenska markaðnum og oft
er ekki hægt að laga hugbúnaðinn
að sérþörfum fyrirtækja,“ segir Dag-
bjartur. „Við höfum þróað fjölda
sérlausna fyrir bæði íslenskan og
erlendan markað. Við erum með
framtalskerfi fyrir aðila sem eru í
framtalsgerð, lausnir fyrir almenn
þjónustufyrirtæki eins og bók-
haldsstofur, endurskoðunarstofur,
lögfræðistofur og verkfræðistofur.
Lausnir fyrir verslanir og veitinga-
hús, þar sem við bjóðum margar
greiðslulausnir. Hótelbókunarkerfi,
veitingahúsakerfi og verslunarkerfi
fyrir hótel og gististaði. Við erum
líka með töluvert mikið af sér-
lausnum fyrir stéttarfélög, en þau
eru nánast öll með dk hugbúnað.
Síðan erum við með sérlausnir fyrir
bændur og alla aðila í búrekstri sem
heitir dkBúbót. Hún gerir bændum
kleift að vera með margvíslegan
rekstur, ferðaþjónustu og alls konar
aukabúskap eins og sölu veiðileyfa,
gröfurekstur, skólaakstur og leigu
á vélum og tækjum, í viðbót við
hefðbundinn búskap. Svo höfum
við líka sérlausnir fyrir útgerðir
varðandi aflauppgjör og sjómanna-
laun.“
Öflug tól fyrir stjórnendur
„Einn helsti kostur dk viðskipta-
hugbúnaðarins er öflug innbyggð
greiningartól og stjórnenda-
verkfæri,“ segir Dagbjartur.
„Greiningarvinnslurnar í dk byggja
á rauntímagögnum og sýna því
stöðuna eins og hún er hverju
sinni. Með stjórnendaverkfærum
er mjög auðvelt að fylgjast með
„stóru myndinni“ og bora sig niður
eftir upplýsingum eftir því sem
þörf er á.
dk býður upp á mismunandi
sýn á gögnin sem svipar til svo-
kallaðra OLAP-teninga. Þannig
er hægt að skoða gögnin út frá
mismunandi hliðum og skilgreina
eigin sýn á þau,“ segir Dagbjartur.
„Í sölukerfinu er hægt að skoða
sömu sölugögn út frá tímabilum,
viðskiptavinum, flokkum við-
skiptavina, svæðum, vörum,
vöruflokkum, sölumönnum eða
deildum. Kosturinn við að hafa
þetta innbyggt er að það er ekki
þörf á neinum hliðarkerfum fyrir
þessa sýn og ekki þarf að passa upp
á neinar tengingar milli kerfa.
Þessi stjórnendaverkfæri keyra á
snjallsímum, spjaldtölvum (iPad)
og gegnum vefinn, þannig að það
er hægt að nálgast upplýsingar og
skrá upplýsingar á mjög fjölbreyti-
legum tækjum,“ segir Dagbjartur.
Stærsta hýsingarþjónusta
landsins
„Við erum með stóra og mikla
hýsingardeild og rekum skýja-
þjónustu fyrir stór og smá fyrir-
tæki. Við bjóðum fyrirtækjum að
hafa öll kerfin sín hýst hjá okkur,“
segir Dagbjartur. „Það eru margar
lausnir í boði þar og þetta sparar
fyrirtækjum mikið í tækjabúnaði
til að hýsa gögn. Alls nýta um 4.000
fyrirtæki þessa þjónustu og við
erum í raun langstærstir í fjölda
fyrirtækja í þessari þjónustu.
Skýjaþjónustan og bókhalds-
kerfið vinna saman og nánast öll
fyrirtæki sem eru í hýsingu hjá
okkur hafa líka aðgang að hug-
búnaðinum okkar þar,“ segir
Dagbjartur. „Þau geta átt hann
sjálf og geymt hann hjá okkur eða
leigt aðgang að honum í áskrift. Þá
borga þau aukalega fyrir aðgang-
inn.“
Afmælisútgáfa væntanleg
„Það er ýmislegt að breytast í bók-
haldskerfinu,“ segir Dagbjartur.
„Stefnan er að koma með veglega
afmælisútgáfu seinnipartinn
á árinu. Þá kynnum við betur
þessar nýjungar í kringum snjall-
tækin og veflausnir. Það verður
líka nýtt andlit á hugbúnaðinum.
Viðmótið breytist örlítið og ein-
hverjar vinnslur færast í nýrri
búning, en margar vinnslur hafa
verið að færast í nýrri búning
hjá okkur nýlega og við ætlum
að klára það endanlega í þessari
afmælisútgáfu.“
Sérfræðingur í afgreiðslukerfalausnum nýtir bókhaldskerfið. MYND/ANTONBRINK
dk býður upp á lausnir sem má nálgast samstundis í snjallsímanum, á vefnum og spjaldtölvum. Hér er dk afgreiðslu-
app, dk stjórnendaapp, dk reikningaapp, dk pantanaapp og dk veitingahúsaapp sem hefur notið mikilla vinsælda hjá
veitingahúsum síðan það kom út. MYND/DK HUGBÚNAÐUR
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . jA N ÚA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U ReNDURSKOÐUN OG BóKHALD
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
6
-1
1
B
8
1
E
D
6
-1
0
7
C
1
E
D
6
-0
F
4
0
1
E
D
6
-0
E
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K