Fréttablaðið - 26.01.2018, Page 24

Fréttablaðið - 26.01.2018, Page 24
Starri Freyr Jónsson starri@365.is Ingvi Björn Bergmann starfaði hjá Deloitte í Kaupmannahöfn árin 2010-2012. Starfsmenn Deloitte á Íslandi geta sótt um að komast í starfaskiptiprógramm á annarri skrifstofu Deloitte víða um heim og hafa nokkrir Íslend­ ingar nýtt það undanfarin ár. Einn þeirra er Ingvi Björn Bergmann sem starfaði í Kaupmannahöfn árin 2010 til 2012. Hann hóf störf hjá Deloitte árið 2004 og segist strax hafa haft mikinn áhuga á að fá tækifæri til að starfa erlendis og sóst eftir því. „Ýmsir þættir spiluðu inn í hvers vegna Kaupmanna­ höfn varð fyrir valinu. Fjölskyldan hafði verið í sumarfríi þar eitt árið og við féllum alveg fyrir borginni. Eiginkona mín, Karen Íris Braga­ dóttir, stefndi á mastersnám í fjármálum í erlendum háskóla og fann nám við Copenhagen Busi­ ness School. Einnig spilaði inn í ákvörðun okkar að það er mjög gott að ala upp börn í Danmörku. Við eignuðumst annað barn okkar stuttu eftir að við fluttum út og voru strákarnir báðir í leikskóla þennan tíma.“ Meiri sérhæfing Skrifstofa Deloitte er staðsett á Islandsbrygge í Kaupmanna­ höfn sem er rétt við miðbæinn. Þar störfuðu um 1.500 manns meðan Ingvi Björn starfaði þar en Deloitte var stærsta ráðgjafar­ og endurskoðunarfyrirtæki Dan­ merkur. Endurskoðunarsviðinu var skipt upp í deildir eftir sér­ hæfingu, en í deildinni sem Ingvi Björn starfaði í var 120 manna teymi sem nær eingöngu sinnti endurskoðun á félögum skráðum í dönsku kauphöllina. „Mest starfaði ég fyrir stærstu skipa­ félög Danmerkur sem voru með starfsemi í öllum heimsálfum og alþjóðlegt framleiðslufyrirtæki.“ Vinnuumhverfið á Ísland og í Danmörku er svipað að sögn Ingva Björns enda unnið eftir sömu aðferðafræði hjá Deloitte úti um allan heim. Sérhæfingin ytra var þó töluvert meiri og auðveldara fyrir starfsfólk að ein­ blína á ákveðnar atvinnugreinar og öðlast mjög sérhæfða þekk­ ingu í henni. „Danir eru einnig mjög skipulagðir og mönnun og skipulag verkefna er unnin mjög tímanlega.“ Mættir snemma Kynni hans af dönskum kollegum sínum voru góð. Hann segir því oft kastað fram að Danir séu latir til vinnu og vinni helst enga yfir­ vinnu og séu komnir í bjórinn upp úr hádegi. „Það var ekki mín upplifun. Eðli starfsins er þannig að það er mikið álag á tímabilinu janúar til mars. Dönsku kolleg­ arnir voru engir eftirbátar þeirra íslensku í að sitja og vinna langt fram eftir kvöldi og um helgar. Það má þó segja að þeir séu agaðri en við Íslendingar. Flestir eru mættir snemma á morgnana eða í síðasta lagi klukkan 8 og engum óþarfa tíma er eytt í langan hádegismat eða til að sinna persónulegum erindum á vinnutíma.“ Hann segist hafa öðlast mikla reynslu á þessum tíma. „Það eru mikil tækifæri í sérhæfingu, að læra af vinnubrögðum annarra og öðlast alþjóðlegt tengslanet sem nýtist í framtíðinni. Deloitte í Dan­ mörku hefur lagt mikla áherslu á skilvirkni og góð samskipti við viðskiptavininn með öflugu markaðsstarfi og leiðtogaþjálfun stjórnenda.“ Góður tími Árin tvö í Kaupmannahöfn voru góður tími fyrir fjölskylduna enda er borgin yndisleg og hefur upp á mjög margt að bjóða. „Það er mikil afþreying í boði og alltaf eitthvað nýtt að sjá og skoða. Þar sem við vorum með tvö mjög ung börn á þessum tíma voru leikvellirnir mikið nýttir en borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn hafa staðið sig svakalega vel í að búa til góðar aðstæður fyrir barnafjölskyldur. Að búa erlendis án alls tengslanets styrkti mjög fjölskylduböndin og strákarnir okkar hafa mikla tengingu við landið enda höfum við farið mjög reglulega í frí til Kaupmannahafnar eftir að við fluttum heim.“ Lærdómsríkur tími í Kaupmannahöfn Ingvi Björn Bergmann starfaði um tveggja ára skeið hjá Deloitte í Kaupmannahöfn. Tíminn var afar lærdómsríkur fyrir hann og um leið var þetta skemmtilegur tími með fjölskyldunni. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . jA N úA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U ReNDuRsKoÐuN oG BóKhALD starfsfólk hjá Fjárstoð er tilbúið til að taka að sér stærri sem smærri verkefni. MYND/sTeFÁNSífellt algengara verður að fyrirtæki og stofnanir kjósi að útvista launavinnslu, bókhaldi og öðrum verkferlum á fjármála­ sviði, enda fylgir því ákveðinn ávinningur og hagræði. Að sögn Barða Ingvaldssonar, sviðsstjóra uppgjörssviðs hjá Fjárstoð, felst styrkur fyrirtækisins í stærðinni og samsetningu hópsins. „Við erum með endurskoðanda, viðskipta­ fræðinga, hagfræðing, rekstrarhag­ fræðing, viðurkennda bókara og öfluga launafulltrúa auk bókara af gamla skólanum. Við getum því tekist á við mjög fjölbreytt og krefjandi verkefni,“ segir hann. „Þá er það kostur að mörg okkar hafa verið hinum megin við borðið og verið mögulegur kaupandi að svona þjónustu. Við eigum því auðveldara með að setja okkur í spor viðskipta­ vinarins en margir aðrir.“ Fjölbreytt verkefni Viðskiptavinir Fjárstoðar eru allt frá einstaklingum og einyrkjum í rekstri til félagasamtaka, fjármála­ fyrirtækja, skráðra fyrirtækja, sendi­ ráða og opinberra stofnana. Starfs­ fólkið hefur mikla reynslu af öllum algengustu bókhalds­ og launa­ kerfum á markaðnum og lagar sig að þörfum viðskiptavinarins hverju sinni. Verkefnin eru fjölbreytt. „Við sjáum um að færa bókhald, reikna laun, gera ársreikninga og skatt­ framtöl en við bjóðum einnig upp á endurskoðun, reikningagerð, greiðsluþjónustu, mánaðarupp­ gjör og ýmiss konar greiningar og úttektir. Þá höfum við verið að færa okkur yfir á nýjar brautir, svo sem útlánaeftirlit og regluvörslu og höfum fylgst grannt með nýjum lögum um persónuvernd og reglu­ gerðum sem munu hafa mikil áhrif á fjölda fyrirtækja,“ segir Barði. Viðskiptavinir hafa ólíkar þarfir og útvistun þarf ekki að snúast um allt eða ekkert. „Sum fyrirtæki kjósa að láta okkur vinna mánaðarupp­ gjör einfaldlega vegna þess að þeim finnst kostur að fá aðhald utan frá. Þá er algengt að við sinnum einungis afmörkuðum verkefnum í bókhaldi, færum kostnaðarreikn­ inga eða sendum út sölureikninga, og leysum af í forföllum,“ segir Soffía Sigurjónsdóttir, sviðsstjóri bók­ haldssviðs. „Það færist í vöxt að við sinnum launavinnslu fyrir hluta starfsmanna hjá fyrirtækjum, ýmist vegna launaleyndar eða vegna þess að viðkomandi starfsmenn passa ekki inn í hefðbundið ferli hjá fyrirtækinu,“ segir Áslaug Hansen, sviðsstjóri launasviðs. Gott skipulag Auk stóru alþjóðlegu endurskoð­ unarfyrirtækjanna er fjöldi smárra fyrirtækja að bjóða þjónustu sína hér á landi, og þá oft á afmörk­ uðum sviðum. Þriðji valkosturinn er fyrirtæki eins og Fjárstoð sem er nógu stórt fyrirtæki til að bjóða fjölbreytta og faglega þjónustu en er á sama tíma nógu lítið til að þjónustan sé persónuleg. „Bestu viðskiptavinirnir eru þeir sem gera mestar kröfur og vilja hafa reglu á hlutunum. Það hvetur okkur til dáða og gagnast um leið þeim við­ skiptavinum sem eru minna skipu­ lagðir og agaðir,“ segir Soffía. Fjárstoð flutti skrifstofur sínar að Höfðabakka 9 síðasta vor. Hægt er að nálgast upplýsingar á heimasíð­ unni fjarstod.is eða í síma 556 6000. hagkvæmni í rekstri er ávinningur viðskiptavina Fjárstoð leggur áherslu á að tryggja viðskipta- vinum sínum gæði, hagkvæmni og persónu- lega þjónustu. Fjárstoð er fjöl- skyldufyrirtæki sem stofnað var árið 2001 og eru starfsmenn 15 talsins í dag. 2 6 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E D 5 -F D F 8 1 E D 5 -F C B C 1 E D 5 -F B 8 0 1 E D 5 -F A 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.