Fréttablaðið - 26.01.2018, Side 25
Uniconta er nýtt og öflugt bókhaldskerfi í skýinu sem byggir á öllum nýjustu
tæknilausnum Microsoft og er
því mun öflugra og fljótvirkara
en þau kerfi sem hafa staðið
íslenskum fyrirtækjum til boða
hingað til, segir Ingvaldur Thor
Einarsson, framkvæmdastjóri Uni-
conta Ísland. Fyrirtækið var sett
á laggirnar haustið 2015 og hefur
einkarétt á dreifingu á Uniconta
bókhaldskerfinu hér á landi.
Ingvaldur segir notendur sam-
mála um að Uniconta sé hraðasta
bókhaldskerfi í heimi. „Uniconta
býður upp á fullkomin forritaskil
(API) sem gerir samþættingu við
önnur kerfi einfalda. Á Lausnatorgi
Uniconta geta notendur valið úr
tugum viðbótarlausna sem eru
að fullu samþættar við Uniconta.
Bókhaldskerfið er einnig fullkomin
viðskiptalausn en samt einföld í
innleiðingu og uppsetningu og við
erum að bjóða áskriftarverð sem
eru mun lægri en það sem áður
hefur þekkst. Við höfum séð dæmi
um að fyrirtæki spari sér tugi millj-
óna með því að velja Uniconta.“
Hentar öllum
Kerfið er að sögn Ingvalds hannað
af Erik Damgaard sem hefur á 33
ára ferli hannað bókhaldskerfi eins
og Concorde XAL og Dynamics AX.
„Erik er án efa fremsti sérfræðingur
okkar tíma í hönnun og uppbygg-
ingu bókhaldskerfa. Við höfum
svo lagað kerfið að íslenskum
aðstæðum þannig að það henti
íslenskum fyrirtækjum af öllum
stærðargráðum.“
Notandinn vinnur í biðlara á
eigin tölvu en gögnin eru öll vistuð
í öruggu umhverfi í skýinu. „Þau
bókhaldskerfi sem eru í boði á
Íslandi voru flest hönnuð undir
lok síðustu aldar og byggja á tækni
þess tíma, þegar nettengingar voru
hægar og dýrar og afkastageta vél-
búnaðar afar takmörkuð miðað
við það sem við þekkjum í dag.“
Uniconta hentar íslenskum
fyrirtækjum af öllum stærðar-
gráðum sem gera kröfu um
hraða og virkni að sögn Ingvalds.
„Kjarnamarkhópurinn okkar er
meðalstór og stór fyrirtæki en
það er líka fjöldi einyrkja og lítilli
fyrirtækja sem notar Uniconta
með góðum árangri. Kerfið inni-
heldur fullkomið birgðakerfi með
framleiðslueiningu, verkbókhald
og viðskiptatengslakerfi (CRM) og
er í stöðugri framþróun. Í hverjum
mánuði bætast við nýjar aðgerðir
og möguleikar í takt við þarfir
markaðarins.“
Góðar móttökur
Viðtökurnar hafa verið vonum
framar hjá viðskiptavinum, segir
Ingvaldur. „Við trúum því að
ánægðir notendur séu besta aug-
lýsingin. Við hlustum á viðskipta-
vini okkar og gerum okkar besta til
að mæta þeirra þörfum á skilvirkan
og einfaldan hátt. Einnig erum við
með fjölda frábærra þjónustuaðila
sem sérhæfa sig í innleiðingum,
samþættingu og þjónustu þannig
að viðskiptavinir geti alltaf leitað
til þjónustuaðila sem skilur hans
þarfir og hefur þekkingu á því sviði.
Auk þess leggjum við mikið upp úr
samstarfi við bókhalds- og endur-
skoðunarfyrirtæki þannig að við-
skiptavinir okkar geti alltaf fundið
fagaðila til að aðstoða við uppgjör
og reikningsskil í Uniconta.“
Hann lítur björtum augum til
næstu 2-3 ára. „Markmið okkar er
að vera leiðandi lausn hér á landi
innan þriggja ára og það gerum við
með því að hlusta á þarfir viðskipta-
vina okkar og svara þörfum þeirra
með skilvirkari og hagkvæmari
hætti en hefur hingað til verið gert.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.uniconta.is.
Öflugra bókhaldskerfi en áður
Bókhaldskerfið Uniconta er fullkomin viðskiptalausn en um leið einföld í innleiðingu og uppsetn-
ingu. Uniconta Ísland býður áskriftarverð sem eru mun lægri en áður hefur þekkst hér á landi.
Unnur Björnsdóttir, tæknilegur framkvæmdastjóri hjá Uniconta, og Ingvaldur Thor Einarsson, framkvæmdastjóri hjá
Uniconta. Félagið býður upp á nýtt og öflugt bókhaldskerfi sen hentar öllum gerðum fyrirtækja. MYND/ANTON BRINK
Nýtt öflugt
bókhaldskerfi í skýinu
frá manninum sem færði
okkur Dynamics Ax
Prófaðu
frítt í
30 daga
www.uniconta.is
Frá aðeins 1.999 á mánuði (án vsk)
Erik Damgaard
Stofnandi Uniconta
KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 2 6 . ja N úa r 2 0 1 8 ENDURSKOÐUN OG BóKHALD
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
5
-F
D
F
8
1
E
D
5
-F
C
B
C
1
E
D
5
-F
B
8
0
1
E
D
5
-F
A
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K