Fréttablaðið - 26.01.2018, Blaðsíða 30
Það hefur löngum verið sagt að fólk ætti að nota túrmerik sem mest í matargerð vegna
hollustu þess. Ný rannsókn sem gerð
var hjá UCLA, eða Kaliforníuháskól-
anum, bendir til að túrmerik geti haft
mjög góð áhrif á minnið hjá eldra
fólki. Kúrkúmín er efni í túrmeriki
sem gefur því gula litinn en er jafn-
framt heilsubætandi.
Rannsóknin sýndi að kúrkúmín
getur haft mjög góð áhrif á minni
fólks. Auk kúrkúmíns inniheldur
túrmerik öflug andoxunarefni sem
hafa mjög góð áhrif á heilsuna. Á
Indlandi þar sem túrmerik er mikið
notað í matargerð er Alzheimer-sjúk-
dómurinn mun sjaldgæfari en annars
staðar. Fjörutíu manns á aldrinum
50-90 ára sem glímdu við einhvers
konar minnistap tóku þátt í rann-
sókninni. Hluti þátttakenda fékk sem
svarar 90 milligrömmum af kúrk-
úmín tvisvar á dag í átján mánuði en
hinir fengu lyfleysu. Fylgst var með
blóði þátttakenda allan tímann og
sömuleiðis fóru þeir í alls kyns próf.
Þeir sem fengu kúrkúmín sýndu
jákvæða niðurstöður með betra
minni og hæfni til að einbeita sér
jókst sömuleiðis. Röntgenmyndir af
heila sýndu einnig lægra beta-amylo-
id og tau-prótín sem er tengt við Alz-
heimer-sjúkdóminn. Rannsakendur
telja að kúrkúmín gæti líka haft áhrif
á þunglyndi. Stærri rannsókn er í
undirbúningi.
Túrmerik getur
bætt minnið
Túrmerik bætir minnið auk þess sem
það hefur góð áhrif á einbeitingu.
Myrkir músíkdagar fara meðal annars fram á Listasafni Íslands.
Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins,
stofnuð árið 1980 af Tónskálda-
félagi Íslands sem vettvangur fyrir
íslensk tónskáld til að fá verk sín
flutt. Í dag er áhersla hátíðarinnar
á að flytja og kynna samtímatón-
list með áherslu á nýja íslenska
tónlist og flytjendur. Hátíðin var
sett í gær, fimmtudag, og er boðið
upp á fjölbreytta tónlistarveislu
í dag og á morgun. Tónleikarnir
eru haldnir í tónlistar- og ráð-
stefnuhúsinu Hörpu sem og á
öðrum stöðum vítt og breitt
um miðborgina, meðal annars í
Fríkirkjunni, Iðnó og Listasafni
Íslands.
Nánari dagskrá má sjá á vef-
síðunni darkmusicdays.is en
hátíðinni lýkur með eftirpartíi á
Húrra annað kvöld klukkan ellefu
þar sem DJ Sigrún þeytir skífum.
Myrkir músíkdagar í 38. sinn
Þessar kartöflur eru víst skornar
bandvitlaust. NORDICPHOTOS/GETTY
Háskólanemar hafa reiknað út bestu leiðina til að skera kart-öflur fyrir ofnbakstur.
Nemendur við Edge-hótelskólann,
sem er hluti af háskólanum í Essex,
unnu með stærðfræðinemum úr
Samuel Whitbread Academy í Shef-
ford og þróuðu aðferð til að skera
kartöflur sem þeir kalla Edge-hótel-
skóla aðferðina.
Aðferðin snýst um að hámarka
yfirborðsflatarmál kartaflnanna, sem
er gert með því að skera þær í helm-
inga og svo á ská þannig að til verði
30 gráðu horn, í staðinn fyrir að skera
þær í helminga og skera helmingana
svo þvert og búa til 90 gráðu horn,
sem er algengast. Þessi aðferð var
þróuð með flóknum útreikningum til
að komast að því hvernig væri hægt
að hafa flatarmál skorna hlutans
sem allra stærst og gerir flatarmálið
65% stærra en á kartöflum sem eru
skornar í 90 gráðu horn. Þetta leiðir
til þess að kartöflurnar verða stökkari
og bragðbetri.
Nemendurnir bökuðu gríðar-
legt magn af kartöflum til að prófa
aðferðina og gáfu almenningi og
fagfólki í veitingageiranum smakk,
til að sýna fram á gæði aðferðarinnar.
Viðbrögðin voru mjög jákvæð og
þó nokkrir kokkar hafa tekið þessa
aðferð upp.
Hin fullkomna
leið til að skera
kartöflur
Hárkúr Gula miðans er bætiefnablanda sem er
sérstaklega samsett fyrir hárið.
Blandan inniheldur valin bætiefni fyrir hárið,
þar á meðal nauðsynlegar amínósýrur, stein-
efni og vítamín sem stuðla að heilbrigðum og
góðum hárvexti. Ánægðir notendur taka eftir
því að hárið verður áberandi mýkra, hárlos
verður minna og hárvöxtur styrkist og eykst.
Meðal innihaldsefna í Hárkúr eru inósítól, kólín,
járn og sink sem eru nauðsynleg fyrir heil-
brigðan hárvöxt og koma í veg fyrir að hárið
slitni og verði líflaust. Hárkúr inniheldur einnig
B–vítamín, bíótín og fólínsýru sem stuðla að
heilbrigði hársekkja og frísklegu útliti hársins.
Þá inniheldur Hárkúr þara sem er ríkur af
snefilefnum sem styðja við hárvöxtinn. Hárkúr
er einnig þekktur fyrir að styrkja neglur og húð.
Hárkúr er ein vinsælasta varan frá Gula
miðanum sem fólk kaupir aftur og aftur.
Kynntu þér úrvalið á gulimidinn.is
Hárrétt
ákvörðun
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . jA N úA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
D
6
-2
A
6
8
1
E
D
6
-2
9
2
C
1
E
D
6
-2
7
F
0
1
E
D
6
-2
6
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K