Fréttablaðið - 26.01.2018, Side 46

Fréttablaðið - 26.01.2018, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Rafsveitin goðsagna-kennda GusGus gefur út sína tíundu breið-skífu þann 23. febrúar næstkomandi, eftir smá tafir, en platan hefur setið klár á hörðum diski síðan í sumar. Platan nefnist Lies are more flexible. Þann 9. febrúar er ætlunin að senda út endurhljóð- blandanir af smáskífulagi sveitar- innar Featherlight, sem kom út fyrir stuttu, þar sem þýski plötusnúður- inn og pródúserinn Johannes Brecht verður meðal annars með remix. Þetta er ykkar tíunda plata, ekki satt? „Já, jú … ætli það ekki. Ókei – þá er líklega verið að telja plötur sem voru gefnar út á Íslandi. Fyrsta platan, Gus Gus, það er verið að telja hana sér, en hún breyttist eiginlega í Polydistortion,“ segir Birgir Þórar- insson, Biggi Veira, óviss um hvort um sé að ræða tíundu plötuna í raun og veru, en á endanum komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta sé það, það hljómi líka betur. Biggi segist ekki ætla að fagna þessum tímamótum neitt sérstaklega enda sé hver einasta plata fagnaðarefni. Featherlight, fyrsta smáskífan, er draumkennt syntha-bað með sterk- um GusGus brag, eðlilega, og það eru bara Biggi Veira og Daníel Ágúst sem koma að því lagi, og raunar allri plötunni í heild sinni. Má segja að þið séuð komnir aftur í ræturnar? „Við horfum auðvitað á alla þessa elektróník í gegnum alla þessa áratugi, við erum auðvitað búnir að fara í gegnum nokkra ára- tugi af þessari tónlist og hún er búin að vera svo víðförul og svo margt áhugavert frá hverjum tíma sem við höfum verið að vinna með – þannig að þetta hefur bæði verið þannig að við höfum verið að vinna með einhver fortíðarelement en líka alltaf í samhengi við það nýja sem er í gangi. Þetta er svona nýbylgja, seinni hluti áttunda áratugarins, fyrri hluti þess níunda, í samhengi við það sem er að gerast í dag,“ segir Biggi Veira en hann segir að um svipaða stefnu verði einnig að ræða á næstu plötu sem er langt komin. Biggi segir þá hafa ákveðið að sækja sér áhrif í það tímabil þegar Biggi var að vakna til lífsins gagn- vart tónlist, eins og hann orðar það, og blanda því saman við aðra hluti. „Mér finnst gaman að hafa fengið að vinna að þessu í öll þessi ár og finna sig upp á nýtt fyrir hverja plötu, finna sér nýtt verkefni fyrir hverja plötu sem inniheldur alltaf eitthvað nýtt. Það getur vel verið að einhverjum finnist þetta hljóma svipað en fyrir okkur erum við að færa okkur inn í aðeins annað hug- arástand á þessari plötu og þeirri næstu líka. Við erum að rannsaka elektróníkina í sjálfu sér.“ Núna eruð þið bara tveir, hvernig hefur gengið, til dæmis á tónleikum? „Ég held að þetta hafi í raun og veru bara stækkað, við erum í raun bara stærri á sviði núna. Við höfum verið að vinna með ljós og „visuals“. Þegar þetta eru bara við tveir snýst þetta svolítið um dýnamíkina á milli mín og Daníels, við erum raunar búnir að færa dýnamíkina inn í sviðið, aftur í það – athyglin var áður öll á frontinn en núna erum við búnir að setja dýpt í upplifunina og „visual- arnir“ eru orðnir miklu stærri hluti af þessu.“ Aðspurður segist Biggi ekki vera með neitt neglt niður varðandi útgáfutónleika. Þeir ætla að leyfa plötunni að koma út og skoða svo með tónleika síðar. stefanthor@frettabladid.is Eru alltaf að finna sig upp á nýtt GusGus gefur út plötuna Lies are more flexible í næsta mánuði og mun það vera tíunda plata sveitarinnar. Út er komin smáskífan Featherlight en snemma í næsta mánuði koma út remix af laginu. Daníel Ágúst og Biggi Veira eru aðeins tveir á þessari nýju plötu en segjast bara vera stærri fyrir vikið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR þEtta hEfur bæði vErið þannig að við höfum vErið að vinna mEð EinhvEr fortíðarElEmEnt En líka alltaf í samhEngi við það nýja sEm Er í gangi. .is Allt það helsta úr heimi TÍSKUNNAR á einum stað 2 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r30 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð 2 6 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E D 6 -0 7 D 8 1 E D 6 -0 6 9 C 1 E D 6 -0 5 6 0 1 E D 6 -0 4 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.