Fréttablaðið - 26.01.2018, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann
atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Rafsveitin goðsagna-kennda GusGus gefur út sína tíundu breið-skífu þann 23. febrúar næstkomandi, eftir smá tafir, en platan
hefur setið klár á hörðum diski
síðan í sumar. Platan nefnist Lies
are more flexible. Þann 9. febrúar
er ætlunin að senda út endurhljóð-
blandanir af smáskífulagi sveitar-
innar Featherlight, sem kom út fyrir
stuttu, þar sem þýski plötusnúður-
inn og pródúserinn Johannes Brecht
verður meðal annars með remix.
Þetta er ykkar tíunda plata, ekki
satt? „Já, jú … ætli það ekki. Ókei –
þá er líklega verið að telja plötur
sem voru gefnar út á Íslandi. Fyrsta
platan, Gus Gus, það er verið að telja
hana sér, en hún breyttist eiginlega
í Polydistortion,“ segir Birgir Þórar-
insson, Biggi Veira, óviss um hvort
um sé að ræða tíundu plötuna í raun
og veru, en á endanum komumst
við að þeirri niðurstöðu að þetta
sé það, það hljómi líka betur. Biggi
segist ekki ætla að fagna þessum
tímamótum neitt sérstaklega enda
sé hver einasta plata fagnaðarefni.
Featherlight, fyrsta smáskífan, er
draumkennt syntha-bað með sterk-
um GusGus brag, eðlilega, og það
eru bara Biggi Veira og Daníel Ágúst
sem koma að því lagi, og raunar allri
plötunni í heild sinni.
Má segja að þið séuð komnir aftur
í ræturnar? „Við horfum auðvitað á
alla þessa elektróník í gegnum alla
þessa áratugi, við erum auðvitað
búnir að fara í gegnum nokkra ára-
tugi af þessari tónlist og hún er
búin að vera svo víðförul og svo
margt áhugavert frá hverjum tíma
sem við höfum verið að vinna með
– þannig að þetta hefur bæði verið
þannig að við höfum verið að vinna
með einhver fortíðarelement en líka
alltaf í samhengi við það nýja sem
er í gangi. Þetta er svona nýbylgja,
seinni hluti áttunda áratugarins,
fyrri hluti þess níunda, í samhengi
við það sem er að gerast í dag,“ segir
Biggi Veira en hann segir að um
svipaða stefnu verði einnig að ræða
á næstu plötu sem er langt komin.
Biggi segir þá hafa ákveðið að
sækja sér áhrif í það tímabil þegar
Biggi var að vakna til lífsins gagn-
vart tónlist, eins og hann orðar það,
og blanda því saman við aðra hluti.
„Mér finnst gaman að hafa fengið
að vinna að þessu í öll þessi ár og
finna sig upp á nýtt fyrir hverja
plötu, finna sér nýtt verkefni fyrir
hverja plötu sem inniheldur alltaf
eitthvað nýtt. Það getur vel verið
að einhverjum finnist þetta hljóma
svipað en fyrir okkur erum við að
færa okkur inn í aðeins annað hug-
arástand á þessari plötu og þeirri
næstu líka. Við erum að rannsaka
elektróníkina í sjálfu sér.“
Núna eruð þið bara tveir, hvernig
hefur gengið, til dæmis á tónleikum?
„Ég held að þetta hafi í raun og veru
bara stækkað, við erum í raun bara
stærri á sviði núna. Við höfum verið
að vinna með ljós og „visuals“. Þegar
þetta eru bara við tveir snýst þetta
svolítið um dýnamíkina á milli mín
og Daníels, við erum raunar búnir
að færa dýnamíkina inn í sviðið,
aftur í það – athyglin var áður öll á
frontinn en núna erum við búnir að
setja dýpt í upplifunina og „visual-
arnir“ eru orðnir miklu stærri hluti
af þessu.“
Aðspurður segist Biggi ekki vera
með neitt neglt niður varðandi
útgáfutónleika. Þeir ætla að leyfa
plötunni að koma út og skoða svo
með tónleika síðar.
stefanthor@frettabladid.is
Eru alltaf að finna sig
upp á nýtt
GusGus gefur út plötuna Lies are more flexible í næsta mánuði og
mun það vera tíunda plata sveitarinnar. Út er komin smáskífan
Featherlight en snemma í næsta mánuði koma út remix af laginu.
Daníel Ágúst og Biggi Veira eru aðeins tveir á þessari nýju plötu en segjast bara vera stærri fyrir vikið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
þEtta hEfur bæði
vErið þannig að við
höfum vErið að vinna mEð
EinhvEr fortíðarElEmEnt
En líka alltaf í samhEngi
við það nýja sEm Er í gangi.
.is
Allt það
helsta úr heimi
TÍSKUNNAR
á einum stað
2 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r30 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
D
6
-0
7
D
8
1
E
D
6
-0
6
9
C
1
E
D
6
-0
5
6
0
1
E
D
6
-0
4
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K