Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.08.2017, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 03.08.2017, Qupperneq 2
2 fimmtudagur 3. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR ALLTAF PLÁSS Í B Í L N U M FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG. S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K SÍMI: 845 0900 Hringbraut 99 - 577 1150 Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00. Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarks- verði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi. Okkar frábæra BioMiracle vörulína er áhrifamikil og á algjöru Costco verði ■ Kjartan Þór Eiríksson, sem hefur verið framkvæmda- stjóri Kadeco frá stofnun þess árið 2006, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu, en hann lætur af störfum strax. Við hlutverki hans tekur Marta Jónsdóttir, sem til þessa hefur starfað sem lögfræðingur félagsins. Kadeco var stofnað af stjórnvöldum til þess að koma eignum sem ríkið tók yfir á varnarsvæðinu á Miðnesheiði í hagfellda notkun með sérstakri áherslu á hagsmuni nær- samfélagsins. Á Ásbrú búa nú um 2.500 manns auk þess sem þar starfa á annað hundrað fyrirtæki og stofnanir með yfir 800 starfsmenn. Fjárfesting á svæðinu frá árinu 2006 er metin á yfir eitt hundrað milljarða króna. Þá hefur sala eigna skilað ríkissjóði um tíu milljörðum króna. Í fréttatilkynningu Kadeco segist Kjartan þakklátur fyrir þau tíu ár sem hann hefur farið fyrir Kadeco og ánægður með þann árangur sem þau hafi náð. „Við höfum nú selt nær allar þær eignir sem félagið fékk til umsýslu með góð- um hagnaði fyrir ríkið. Á sama tíma hefur byggst upp lífleg íbúabyggð og fjölbreytt atvinnustarfsemi á Ásbrú sem hefur styrkt samfélagið hér á Suðurnesjum mikið. Það liggur því fyrir að félagið stendur nú á tímamótum og fyrirsjáanlegt er að breytingar muni verða á hlutverki þess og starfsemi. Því tel ég að núna sé rétti tíminn fyrir mig til að láta af störfum hjá félaginu.“ Georg Brynjarsson, stjórnarformaður Kadeco segir að stjórn félagsins muni á næstu vikum endurskoða starf- semi og stefnu félagsins í samstarfi við hluteigandi aðila á svæðinu. „Þrátt fyrir minnkandi fasteignaumsvif er mikill fjöldi verkefna í gangi hjá félaginu og markmið endur- skipulagningarinnar er að varðveita uppsafnaða þekkingu innan Kadeco og tryggja viðfangsefnum félagsins varan- legan farveg.“ ■ Fyrstu framkvæmdir við nýjan skóla, sem fullbyggður mun bæði hýsa leik- og grunnskóla Dalshverfis í Innri Njarðvík, eru hafnar. Nú í haust mun kennsla yngstu ár- ganga hverfisins hefjast í 620 fermetra bráðabirgðahúsnæði sem tekið er að rísa á skólalóðinni. Húsnæðið saman- stendur af forsniðnum einingum á stálgrind frá Slóveníu og keypt voru af Hýsi eftir útboð í vor. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við sjálft skólahúsnæðið hefjist eftir ára- mót þegar hönnun er lokið og útboð hefur farið fram. Öll sveitarfélögin samþykkja að hefja flokkun sorps ■ Öll sveitarfélögin á Suðurnesjum, eigendur Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja (SS), hafa nú tekið til afgreiðslu tillögu stjórnar SS um að hefja flokkun úrgangs við heimili. Öll sveitarfélögin hafa samþykkt til- löguna án athugasemda nema bæjar- ráð Voga, sem leggur jafnframt til að í útboðsgögnum verði gert ráð fyrir þeim möguleika að gera ráð fyrir þriggja tunnu kerfi, eða eftir atvikum grenndargám fyrir plastúrgang í stað þriðju tunnunnar. Frá bæjarráði Sandgerðis komu nokkrar spurningar frá umhverfisráði bæjarins. ■ Mikil umferð skipa er um Helguvík þessa dagana. Skip þurfa jafnvel að bíða á ytri höfninni eftir að komast inn til uppskipunar. Þá þarf að vísa skipum frá bryggju í miðri uppskipun til að koma að skipum sem eru í áætl- unarsiglingum. Þegar áætlunarskipin hafa verið afgreidd koma skipin sem vísað var frá aftur inn til hafnar. Þetta skapar oft mikið óhagræði. Meðfylgjandi mynd var tekin í Helguvík seint á föstudagskvöld þegar flutninga- skipið Atlantic Patriot fór úr höfn en skipið hafði verið að skipa upp tréflís fyrir kísilver United Silicon í Helguvík. Þegar það skip var komið út úr hafnarkjaft- inum mætti það Wilson Norfolk á leiðinni inn í höfnina en það skip kom einnig til Helguvíkur á vegum kísilversins. Flest skipin sem koma til Helguvíkur tengjast starfsemi kísilversins en einnig eru tíðar skipakomur með eldsneyti fyrir flugið á Keflavíkurflugvelli og með sement en Helguvík er stærsta innflutningshöfn sements á landinu. Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, sagði í samtali við Víkurfréttir að það væri stundum flókið að púsla saman skipakomum í Helguvík og fyrir löngu væri komin þörf á að lengja hafnargarða. Erilsamt í Helguvíkurhöfn ●● Fráfarandi●framkvæmdastjóri●hefur●verið●frá●stofnun●Kadeco●en●segir●nú●starfi●sínu●lausu Marta stýrir Kadeco Hér má sjá bráðabirgðahúsnæðið rísa á skóla- lóðinni í Dalshverfi. VF-mynd: Hilmar Bragi Bráðabirgðahúsnæði nýs skóla í Innri-Njarðvík tekið að rísa Fréttamaður Við leitum eftir einstaklingi í fréttadeildina okkar til að vinna við fréttamennsku fyrir blað, vef og sjónvarp. Þetta er líflegt starf og skemmtilegt. Hér er nauðsynlegt að vera pennafær og hafa gott vald á íslensku. Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Þá skemmir ekki að vera með nett fréttanef og þekkingu á samfélaginu á Suðurnesjum. Um okkur Víkurfréttir ehf. eru fjölmiðlafyrirtæki á Suðurnesjum sem hefur verið starfandi frá árinu 1983. Fyrirtækið rekur vikulegt fréttablað, fréttavefinn vf.is og golfvefinn Kylfingur.is. Þá halda Víkurfréttir úti vikulegum sjónvarpsþætti á Hringbraut. Sketilegt starf í boði Víkurfréttir óska eftir að ráða starfsmann í eftirfarandi starf Umsóknir berist í tölvupó sti til Páls Ketilonar á pke t@vf.is Ha veitir nánari upplý singar um störfin Viudaguri er frá kl. 09-17 virka daga Stundum förum við í útk ö… á kvöldin og um helga r Starfið er líflegt og ske tilegt! Víkurfréttir koma næst út fimmtudaginn 17. ágúst. Fréttavakt á vf.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.