Víkurfréttir - 03.08.2017, Blaðsíða 10
10 fimmtudagur 3. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
Nýt þess að
vera heima
þessa helgi
FANNEY GRÉTARSDÓTTIR
Hvert á að fara
um verslunar-
mannahelgina
í ár?
Ný t þ e s s a ð
v e r a h e i m a
þessa helgi og
kannski verður
farið í Reykja-
v í k a ð l e i k a
túrista.
Með hverjum á
að fara?
Fjölskyldunni, þeim sem við komum í
bílinn, hin verða skilin eftir. Það verður
dregið.
Lætur þú veðurspá ráða því hvert á að
fara um verslunarmannahelgina?
Nei, hef ekki efni að fara til Spánar á
hverju ári.
Hvert hefur þú farið um verslunar-
mannahelgi síðustu ár?
Edrúhátíð, ég finn alltaf tjaldið mitt þar.
Hvert hefur þú farið í ferðalög í sumar?
Fórum í Ölfusborgir og áttum æðislega
viku í góðu veðri.
Hvernig ferðalög ertu að stunda? Ferðu
í sumarbústað eða í ferðavagna?
Sumarbústað, vil hafa fast klósett undir
mér, það er bara þannig.
Hefur þú verið heppin með veður á
ferðalögum þínum í sumar?
Já, það er aldrei vont veður bara hugar-
farið, spaug.
Nýverið héldu íbúar, aðstandendur þeirra, starfsfólk Hrafnistu og þjónustuþegar í dagdvöl Hrafnistu
í Reykjanesbæ sumarhátíð sína. Hljóðfæraleikararnir Baldvin og Dói komu og léku á hljómborð og
harmonikku en listakokkar Hrafnistu, þeir Magnús og Krissi sáu um veitingarnar. Fjölmennt var og
komu yfir 100 manns á Nesvelli, þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar.
Sumarhátíð
Hrafnistu í Reykjanesbæ
Verslunarmannahelgin
Verslunarmannahelgin
Rýni oftast í
veðurspána
ÞORVARÐUR GUÐMUNDSSON
Hvert á að fara
um verslunar-
mannahelgina
í ár?
Norðurlandið
togar a l ltaf í
mann en senni-
lega verður Suð-
au s t u r l a n d i ð
ofan á í þetta
sinn.
Með hverjum á
að fara?
Með besta ferðafélaganum, henni Ing-
unni minni.
Lætur þú veðurspá ráða því hvert á að
fara um verslunarmannahelgina?
Já, ég rýni oftast í veðurspána áður en
tekin er ákvörðun um hvert skal halda.
Hvert hefur þú farið um verslunar-
mannahelgi síðustu ár?
Á síðasta ári vorum við í góðum félags-
skap á rólegu tjaldsvæði í Þjórsárveri í
Villingaholtshreppi, í hittifyrra fórum
við um Snæfellsnesið og þar áður vorum
við á góðum stað á Kaffi Langbrók í
Fljótshlíð.
Hvert hefur þú farið í ferðalög í sumar?
Við þjófstörtuðum sumrinu með því
að fara í tjaldútilegu í maí um Norður-
löndin og vorum þar að hluta til með
syni okkar og fjölskyldu sem býr í Nor-
egi. Sú ferð var alveg frábær en svo erum
við m.a. búin að fara í langþráða ferð um
Vestfirðina og síðustu helgi fórum við
á Eld í Húnaþingi sem er héraðshátíð í
Húnaþingi vestra þar sem við bjuggum
í mörg ár.
Hvernig ferðalög ertu að stunda? Ferðu
í sumarbústað eða í ferðavagna?
Ég hef prófað flestar tegundir af ferða-
vögnum. Frá tjaldi yfir í tjaldvagn og
þaðan í fellihýsi og núna í vor keyptum
við hjónin okkur húsbíl sem við erum
alsæl með. Við erum búin að fara í úti-
legur flestar helgar í sumar.
Hefur þú verið heppinn með veður á
ferðalögum þínum í sumar?
Veðrið í sumar hefur ekki beint leikið
við okkur hjónin og við grínumst með
það að við höfum verið að elta vonda
veðrið í sumar. En við ferðumst sólar-
megin í lífinu og klæðum okkur bara
eftir veðri hverju sinni.