Víkurfréttir - 25.01.2018, Síða 2
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg.
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri, ábm. og auglýsingamál: Páll
Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421
0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002,
rannveig@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Útlit & um-
brot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421
0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag:
9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið asta@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á
mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er
á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá
kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift
inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur
frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á
vefsíðum Víkurfrétta.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM
ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
Leikur ekki fyrir Íslands hönd á
meðan dæmdir nauðgarar gera það
„Svo lengi sem KKÍ styður ekki 100%
við þolendur kynferðisbrota hef ég
ekki áhuga á að spila fyrir Íslands
hönd,“ segir körfuknattleikskonan
Embla Kristínardóttir í samtali við
Víkurfréttir, en hún kom fram í við-
tali hjá RÚV sem vakið hefur gríðar-
lega athygli.
Embla, sem leikur með meistara-
flokki Keflavíkur í körfuknattleik,
segir í viðtalinu frá því að sér hafi
verið nauðgað, aðeins þrettán ára
gömul af íþróttamanni sem í kjölfarið,
eftir að hafa verið fundinn sekur en
fengið skilorðsbundinn dóm, hafi
haldið áfram að spila fyrir Íslands
hönd í sinni íþrótt. Embla þurfti þar
af leiðandi að mæta gerandanum,
sem búsettur var á höfuðborgar-
svæðinu og æfði með íþróttafélagi
þar, til dæmis í Laugardalshöllinni
þar sem hann æfði og hún keppti í
úrslitaleikjum.
Embla segir það ólíðandi að dæmdir
kynferðisbrotamenn fái að keppa
fyrir Íslands hönd þar sem þeir eru
í sviðsljósinu sem fyrirmyndir ungs
fólks. Þar nefnir hún Sigurð Þorvalds-
son, sem dæmdur var í tveggja ára
fangelsi fyrir nauðgun árið 2010, en
hann hefur keppt með landsliðinu
eftir brot sitt.
„Þegar ég var sextán ára gömul í
minni fyrstu landsliðsferð var hann
í karlaliðinu og gisti í næsta herbergi
við mig á hótelinu. Engum fannst það
athugavert að senda dæmdan mann
út fyrir hönd Íslands.“
Embla ræddi afskiptaleysi grunn-
skóla síns, sem hún var í á þeim tíma,
einnig í viðtalinu, en hún segist ekki
hafa fengið neinn stuðning frá skóla-
stjórnendum vegna málsins. Hún
hafi verið kölluð ljótum nöfnum af
bekkjarsystkinum sínum, yfirhafn-
irnar hennar verið teknar og faldar
og ljót skilaboð skilin eftir í skápnum
hennar.
„Skólinn hefði átt að grípa inn í þetta.
Ég mætti bara stundum í skólann,
fór ekki í próf né skólaferðalög. Mér
þótti gott að nálgast einn tiltekinn
kennara, en umsjónarkennarinn minn
og fleiri sáu mig oft gráta og kvarta
en ekkert var gert,“ segir Embla, en
hún stundaði nám við Holtaskóla í
Reykjanesbæ.
Viðbrögðin við viðtalinu segir Embla
hafa verið frábær, en hún vilji sjá
íþróttafélög landsins taka skýrari af-
stöðu með þolendum kynferðisbrota.
Svo lengi sem KKÍ styður
ekki 100% við þolendur
kynferðisbrota hef ég ekki
áhuga á að spila fyrir
Íslands hönd
„Viðbrögð Reykjanesbæjar eru lítil til að byrja með.
Við bíðum eftir að skiptastjóri verði settur yfir þrota-
búið og síðan að heyra hvað hann hyggst gera,“ segir
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
þegar hann var spurður viðbragða við gjaldþroti kísil-
verksmiðju United Silicon [USi] í Helguvík. Stjórn USi
óskaði á mánudag eftir því að fyrirtækið verði tekið
til gjaldþrotaskipta, eins og greint hefur verið frá á
vef Víkurfrétta.
„Þetta mun þýða að tekjur Reykjaneshafnar verða lægri
en gert var ráð fyrir en á móti ætti að vera hægt að draga
úr kostnaði við höfnina“.
- Mun Reykjanesbær tapa fjármunum vegna þrots United
Silicon?
„Tapið liggur ekki fyrir fyrr en uppgjör þrotabúsins liggur
fyrir,“ sagði Kjartan Már.
„Þegar að fyrirtækið fékk greiðslustöðvun í ágústlok var
nokkuð ljóst að þetta gæti farið á þennan veg. Það hafa
verið vandamál með þetta fyrirtæki á mörgum sviðum
allt frá byrjun og virðingarvert að Umhverfisstofnun skuli
standa með íbúum í þessu,“ segir Guðbrandur Einarsson,
forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ.
„Ég hef ekki áhyggjur af stöðu bæjarfélagsins þó að þetta
hafi gerst. Íbúar sýna því fullan skilning að við séum ekki
að fá þær tekjur sem reikna mátti með. Okkur leggst eitt-
hvað til og stefnum ótrauð áfram. Framtíðin er björt,“
sagði Guðbrandur í samtali við Víkurfréttir.
Komið hefur fram að United Silicon skuldaði Reykjanesbæ
gatnagerðargjöld upp á um 160 milljónir króna og með
vöxtum lætur nærri að sú fjárhæð sé um 200 milljónir
króna í dag.
Arion banki mun óska eftir því við skiptastjóra þrotabús
United Silicon að ganga að veðum sínum í eignum fyrir-
tækisins. Bankinn ætlar að koma þeim eignum í söluferli
og freista þess að koma kísilverksmiðjunni aftur í gang.
Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í gær. Arion er eini
kröfuhafinn á fyrsta veðrétti.
Stofnað verður nýtt félag um eignirnar sem bankinn
gengur út frá að eignast við gjaldþrotaskipti United
Silicons. Um átta kaupendur hafa sýnt verksmiðjunni
áhuga en allt söluferli er á frumstigi. Ef bankanum berst
ekki viðunandi tilboð í eignirnar verður reynt að koma
verksmiðjunni í gang áður en sala fer fram, segir í frétt
Morgunblaðsins.
Framtíðin björt þrátt fyrir
gjaldþrot United Silicon
RITSTJÓRNARPISTILL
PÁLL KETILSSON
Framúrskarandi
fyrirmynd
Verkefnin hjá okkur á Víkurfréttum eru mörg mjög skemmti-
legt og eitt þeirra hefur síðustu 28 árin verið að kjósa „Mann
ársins“ á Suðurnesjum. Við teljum okkur hafa hitt naglann
á höfuðið núna sem og oft áður en hin 17 ára Elenora Ósk
Georgesdóttir fékk nafnbótina að þessu sinni. Hún er bakara-
nemi, fyrirmyndar ung kona og frumkvöðull. Hún gerði sér
lítið fyrir og bakaði í heilt ár glæsilegar tertur og seldi til
styrktar Barnaspítala Hringsins og hljóp í maraþoni, einnig
til styrktar spítalanum. Við brugðum á leik og pöntuðum
tertu hjá ungu konunni áður en við greindum henni frá
tíðindunum, mættum svo og báðum hana um að skrifa nafn
„Manns ársins á Suðurnesjum 2017“ á tertuna. Þetta kom
Elenoru skemmtilega á óvart og við sýnum viðbrögð hennar
í sjónvarpsþætti vikunnar.
Við höfum útnefnt „Mann ársins“ á Suðurnesjum frá árinu
1990 en sá fyrsti sem var valinn var Grindvíkingurinn og
útgerðarmaðurinn Dagbjartur Einarsson. Árið eftir varð
presturinn Hjörtur Magni Jóhannsson fyrir valinu en fyrsta
konan sem fékk nafnbótina var kaffikonan Aðalheiður
Héðinsdóttir árið 1998. Flestir vita hvað hún hefur áorkað
síðan en það eru fleiri slík dæmi hjá okkar fólki. Listi með
nöfnum allra sem hafa verið valdir eru í blaði vikunnar.
Við höfum komið víða við í valinu en allt eru þetta ein-
staklingar sem hafa látið til sín taka á hinum ýmsu sviðum
þjóðlífsins á Suðurnesjum og jafnvel víðar. Hin unga Elenora
er sérlega vel að þessu komin og það skín af henni gleði og
kraftur þrátt fyrir að hafa átt við veikindi að stríða sem hún
hefur ekki látið stoppa sig. Hún ætti að vera mörgu fólki
mikil hvatning fyrir framgöngu sína og dugnað.
Við greinum einnig frá því í blaði vikunnar að 32 fyrirtæki á
Suðurnesjum hafi komist í hóp „Framúrskarandi fyrirtækja
árið 2017“ hér á landi. Fyrirtækjum á Suðurnesjum hefur
fjölgað í þessum hópi á undanförnum árum og er eflaust í
takti við uppgang sem verið hefur á svæðinu á síðustu árum.
Fyrirtækin eru úr mörgum greinum atvinnulífsins og er
það mjög ánægjulegt. Það sýnir að forráðamenn margra
fyrirtækja hafa staðið sig mjög vel, vandað sig í rekstrinum
og sýnt það með ábyrgð og flottri niðurstöðu til að komast
í hóp þeirra bestu á Íslandi en 2,2% fyrirtækja á landinu eru
í þessum hópi, „Fyrirmyndarfyrirtæki 2017“.
Ótíðindi vikunnar koma þó úr Helguvík. Ekki óvænt en gjald-
þrot United Silicon er ekki gott fyrir fjárhagshlið Reykjanes-
hafnar og bæjarins en margir bæjarbúar fagna þó að slökkt
hafi verið á verksmiðjunni. Nýr eigandi hennar, Arion banki,
mun þó ætla sér að koma henni til nýs eiganda sem fyrst. Ef
það gerist þarf sá aðili að gera mun betur en sá sem reisti
USi verksmiðjuna.