Víkurfréttir - 25.01.2018, Síða 26
26 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg.
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Sigríður Árnadóttir - minning
f. 28.6. 1943 - d. 7.1. 2018
Elskuleg móðir mín kvaddi okkur
eins og hún hafði óskað sér á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja eftir stutt
veikindi, þar sem allir hugsuðu ein-
staklega fallega og faglega um hana.
Henni þótti líka mjög gott að það var
hægt að tölta yfir Mangatún, beint
heim í Veghúsin.
Mamma var, að ég tel, ein af þessum
sterku, stoltu og sjálfstæðu konum.
Hún var hjúkrunarfræðingur af lífi og
sál, aðhlynning hvers konar átti hug
hennar allan.
Eftir skilnaðinn var oft þröngt í búi, en
hún notaði sumarfríin til að vinna, til
dæmis á sjúkrahúsinu á Blönduósi og
hjúkrunarheimilinu Skjóli, kallaði það
að stoppa í fjárlagagötin. Verandi þessi
stolti og sjálfstæði einstaklingur náði
hún smám saman sæmilegu jafnvægi
á þau mál. Ég spurði hana einhvern
tímann að því hvort hún ætlaði ekki að
finna sér mann til að deila lífinu með,
hún sagðist ekki nenna að standa í því
að tína upp óhrein nærföt og sokka
eftir einhvern kall, eða elda á ákveðnum
tímum. Heldur vildi hún njóta frelsisins,
ferðast og ráða sér sjálf, ekki láta segja
sér fyrir verkum.
Hún var dugleg að skreppa í heimsóknir
á Hornafjörð og til Þýskalands, skellti
sér á vélsleða eða línuskauta, hún var
alltaf til í að prufa og njóta lífsins. Henni
fannst gaman að ferðast erlendis í sólina
og fóru Siggurnar oftast saman, hún
og Sigga Ey. Það er misjafnt hvað við
sinnum því að fylgjast með fólkinu
okkar en mamma var ein af þeim sem
var að skreppa í heimsóknir og reyndi
að fylgjast vel með öllu fólkinu sínu.
Samheldni hollsystra hennar og hjálp-
semi er aðdáunarverð. Hún átti margar
góðar vinkonur.
Í lífi allra skiptast á skin og skúrir, oft
var glatt á hjalla hjá öllum hópnum
hennar, mikið líf og fjör. Að eðlisfari
var mamma lífsglöð og félagslynd, en
það reyndi verulega á að halda í gleðina
síðustu árin. Hún missti Árna Jakob son
sinn og svo seinna Örnu Björk dóttur
sína. Á þessum tíma kom styrkur
hennar vel í ljós og yfirvegun en eins
og allir vita sem misst hafa börnin sín
þá verður breyting innra með þeim.
Smám saman púslaði hún sér saman,
ákveðin í að halda áfram, en þegar
Kristófer Örn, sonur Árna Jakobs, féll
einnig fyrir eigin hendi, þá brast eitt-
hvað innra með henni sem hún réði
ekki við, tárin bara komu.
En þrátt fyrir allt þá langaði hana að
lifa og njóta þess að sjá fólkið sitt vaxa
og dafna. Það er stutt síðan ég kom
að henni við eldhúsborðið og tárin
streymdu niður. Ég spurði hana hvort
hún væri að gráta vegna þess að hún
væri að deyja. Já, sagði hún, yfir eðli-
legasta hlut í heimi. Hann er bara óvel-
kominn núna, svaraði ég, hún játti því.
Það er alltaf eitthvað að lifa fyrir, þrátt
fyrir allt missti hún aldrei löngunina til
að fylgjast með fólkinu sínu í leik og
starfi. Á sjúkrahúsinu tók hún alltaf á
móti mér með bros á vör og heilsaði:
Hæ elskan. Ég sagði eitt sinn við hana
að hún væri alltaf brosandi, hún svaraði
því til að það væri svo miklu léttara.
Eitt sinn, þegar við vorum guttar, vorum
við á leið norður til Helgu og Helga,
ég, Addi og mamma. Á undan okkur
var bíll sem keyrði allt of hægt fyrir
okkur bræðurna. Mamma tók fram
úr og þegar við fórum framhjá bílnum
sögðum við báðir: Vissum það, það er
kelling að keyra (þetta var reyndar ung
kona, líklega 25 ára), en mamma var
töffari, aldrei kelling.
Brosum, það er svo miklu léttara.
Ég þakka móður minni allt.
Ingvi Þór Sigríðarson,
Veghúsum.
Landsnet vinnur að undirbúningi umhverfismats fyrir Suðurnesjalínu 2. Tillaga að matsáætlun er nú
á vinnslustigi og er birt á heimasíðunni www.landsnet.is sem Drög að tillögu matsáætlunar. Óskað
er eftir ábendingum og athugasemdum sem geta nýst við komandi matsvinnu og geta allir gert
athugasemdir við drögin.
Athugasemdir má senda til Smára Jóhannssonar á netfangið smari@landsnet.is til og með
12. febrúar. Einnig má senda athugasemdir til Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík og merkja
„Suðurnesjalína 2. Drög að tillögu matsáætlunar“.
HAFNARFJÖRÐUR – SUÐURNES
Suðurnesjalína 2 – Mat á umhverfisáhrifum
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Tvöföldum Reykjanesbraut og hvað svo?
Baráttan um betri vegasamgöngur frá Reykjanesbæ
um Reykjanesbraut eiga sér langa sögu, margir hafa
legið í valnum á þessum vegarkafla milli Reykjavíkur
og Reykjanesbæjar. Barátta bæjarbúa á sínum tíma
fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar, þar sem Rúnar Júl
og fleiri hetjur úr okkar bæjarfélagi komu við sögu,
er okkur bæjarbúum í fersku í minni og þarf ekki
að rifja það upp hér. En hvar erum við stödd í dag?
Jú, brautin hefur verið tvöfölduð en
því verki er ekki lokið, sem er frekar
slæmt, en verra er að viðhaldi er ekki
sinnt sem skyldi og umferðaröryggi
er ekki tryggt eins og staðan er í dag.
Vegurinn er að grotna niður með mjög
djúpum hjólförum sem safnast vatn í
og er orðin mikil slysahætta. Einnig er
lýsingin ekki fullnægjandi og glit-stikur
sem eiga að vera til staðar sitthvoru
megin á veginum ekki endurnýjaðar
þannig að erfitt getur verið að staðsetja
sig í miklum skafrenningi. Það ekki
hægt að horfa fram hjá því að þessir
þættir eru slysagildrur og að þeir sem
keyra brautina dags daglega séu að spila
rússneska rúllettu með því að aka hana
í þessu ástandi. En sagan segir okkur og
sýnir að þetta virðist ætla að vera enda-
laus barátta og eru það við bæjarbúar
sem höfum ýtt á eftir úrbótum því það
virðist enginn ætla að gera neitt fyrir
okkur Suðurnesjamenn.
Ég veit ekki um ykkur kæru íbúar en ég
er búin að fá mig fullsaddan af aðgerðar-
leysi í okkar garð hér í Reykjanesbæ frá
stjórnvöldum. Það er svo margt hér sem
þarf að laga en við erum hunsuð hvað
varðar aðstoð eða eðlilegt fjármagn til
þess að hlutirnir fari á réttan veg. Það
virðist vera að við þurfum að sýna sterka
samstöðu og fara í aðgerðir til þess að
knýja fram þær sjálfsögðu breytingar
sem þurfa til að öryggi okkar sé tryggt
um Reykjanesbraut. Það öryggi sem
upprunalega var lagt upp með, sem
tvöföldun Reykjanesbrautar var, er nú
orðið falskt öryggi vegna skorts á við-
haldi. Berjumst fyrir því að brautinni sé
haldið við og að hún verði kláruð sóma-
samlega. Hvernig væri að við boðum til
aðgerða í gengum okkar frábæra Stopp
hóp og vinnum öll saman að betra öryggi
á Reykjanesbraut?
Þórólfur Júlían Dagsson
SUNNUDAGURINN 28. JANÚAR KL. 11
Hefðbundin messa með söng frá félögum
úr Kór Keflavíkurkirkju undir stjórn Arnórs
organista. Systa leiðir sunnudagaskólann
á sama tíma. Hjónin Stefán og Guðrún eru
messuþjónar. Að lokinn messu verður borin
fram súpa og Sigurjónsbrauð af Ragnheiði
Ástu formanni sóknarnefndar og fermingar-
mæðrum. Sr. Erla þjónar.
MIÐVIKUDAGURINN 31. JANÚAR KL. 12
Sr. Fritz Már og Arnór organisti leiða kyrrðar-
stund í kapellunni. Gæðakonur bera fram
heimagerða súpu og brauð. Verið öll velkomin í
góða andlega- og líkamlega næringu.
MIÐVIKUDAGURINN 31. JANÚAR KL. 13
Seekers bænastund í umsjón sr. Thosiki Toma.
MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR Í KIRKJULUNDI
Kl. 15:15 - Strákar í fermingarfræðslu
Kl. 16:05 - Stelpur í fermingarfræðslu
Skapandi starf
Skapandi starf er hafið. Skráning er rafræn og
finna má linkinn á heimasíðu kirkjunnar eða
hafa samaband við kirkjuna.
Helgihald og viðburðir í
Njarðvíkurprestakalli
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Fjölskylduguðsþjónusta 28. janúar
kl. 11:00 í Njarðvíkurkirkju (Innri).
Sunnudagaskóli kl. 11:00 í Njarð-
víkurkirkju (Innri) í umsjá Heiðars
og Péturs.
Spilakvöld aldraðra og öryrkja
fimmtudaginn 25. janúar kl.20:00.
Umsjón hefur starfsfólk kirkjunnar og
Lionsklúbbur Njarðvíkur.
Kóræfing í Ytri-Njarðvíkurkirkju
30. janúar kl.19:30. Nýtt söngfólk
boðið velkomið.
Vinavoðir miðvikudaginn
31. janúar kl.10:30-13:30.
Fermingarfræðsla miðvikudaginn
31. janúar kl.14:00 og kl. 16:00.
Njarðvíkurkirkja (Innri)
Fjölskylduguðsþjónusta 28. janúar
kl. 11:00 í Njarðvíkurkirkju (Innri).
Sunnudagaskóli kl. 11:00 í Njarð-
víkurkirkju (Innri) í umsjá Heiðars
og Péturs.
Æskulýðsstarfssemi KFUM/K í
Njarðvíkurkirkju (Innri) 25. janúar
kl. 19:30-20:30. Umsjón hefur
Heiðar Örn Hönnuson.
Foreldramorgun í Safnaðarheimili
Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn
30. janúar kl.10.30. Umsjón hefur
Emilía B. Óskarsdóttir.