Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —6 0 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 1 2 . M a r s 2 0 1 8 20–50% AFSLÁTTUR AF NÝJUM VÖRUM K R I N G L U K A S T LOKADAGUR Fréttablaðið í dag skoðun Sigurður Ingi skrifar um nýafstaðið flokksþing. 9 sport ÍBV heldur áfram að sanka að sér bikartitlum. 10 lÍfið Raftónlistarmaðurinn Bjarki Rúnar Sigurðarson spilar á Sónar Reykjavík um næstu helgi. 22 plús 2 sérblöð l fólk l  fasteignir *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 stjórnMál Björt framtíð mun ekki bjóða fram lista í komandi borgar- stjórnarkosningum. Þetta staðfestir Björt Ólafsdóttir, formaður flokksins. Eins og greint hefur verið frá hafa þreifingar verið milli Bjartrar fram- tíðar og Viðreisnar um samstarf í sveitarstjórnarkosningum, bæði í borginni og í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Nú liggur fyrir að ekki verður af slíku samstarfi í Reykjavík og Björt framtíð mun heldur ekki bjóða fram sér í borginni. „Við sitjum bara hjá eina umferð, segir Björt Ólafsdóttir, formaður flokksins. Hún segir það ekkert launungarmál að undanfarið ár hafi verið erfitt og ákveðinnar mæði gæti innan flokksins. Þá ætli kjörnir full- trúar flokksins í Reykjavík ekki að gefa kost á sér aftur en Björt framtíð á tvo borgarfulltrúa, þau Sigurð Björn Blöndal og Elsu Hrafnhildi Yeoman og hafa þau starfað með meirihlut- anum í Reykjavík á því kjörtímabili sem er að ljúka. „Þetta var samt hvorki auðveld né léttvæg ákvörðun, enda erum við ofboðslega stolt af þeim áþreifanlegu breytingum sem hafa orðið á pólitík- inni í Reykjavíkurborg. Besti flokkur- inn kom og breytti þar algjörlega um kúrs og bauð ekki bara upp á mann- lega pólitík heldur líka stöðugleika í stjórnun borgarinnar í stað þess róts sem fyrr var við tíð borgarstjóraskipti hjá Sjálfstæðisflokknum,“ segir Björt og nefnir að Björt framtíð hafi dyggi- lega stutt við þessa stefnubreytingu í allri stjórnun og meðferð fjármuna útsvarsgreiðenda í Reykjavík undan- farin fjögur ár. Aðspurð segir hún mikið hafa verið skorað á hana sjálfa að fara fram. „Já, ég hef verið beðin um það en ég hef ekki hug á því á þessum tímapunkti, kannski og örugglega seinna, það kemur bara í ljós en þessi ákvörðun er fyrst og fremst per- sónulegs eðlis. Lífið hefur upp á svo margt annað að bjóða sem betur fer. En þessi ákvörðun flokksins er líka alveg í línu við það sem við höfum áður sagt, við erum ekki að halda honum úti til þess að koma fólki fyrir einhvers staðar, það er auðvitað mjög óvanalegt að stjórnmálaflokkur hafi það ekki sem meginmarkmið að við- halda sjálfum sér fyrst og fremst, en þannig er það nú samt hjá okkur,“ segir Björt. Björt framtíð undirbýr nú fram- boð undir eigin merkjum og í sam- starfi við aðra í nokkrum stærstu sveitarfélögum landsins; Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Hveragerði og ef til vill fleirum. „Svo mun okkar fólk á Akureyri starfa með L-listanum þaðan sem margir komu reyndar yfir í lands- málin með Bjartri framtíð til að byrja með,“ segir Björt. Hún segir flokksmenn fulla tilhlökkunar fyrir komandi kosningum. „Björt framtíð hefur verið í meirihluta og við stjórn- völinn í öllum stærstu sveitarfélögum landsins og við erum stolt af viðsnún- ingi sem sést til að mynda í rekstri Hafnarfjarðarbæjar og vinnulagi og gagnsæi við stjórnun Kópavogs svo eitthvað sé nefnt,“ segir formaður flokksins. adalheidur@frettabladid.is Björt framtíð býður ekki fram í Reykjavík Björt framtíð ætlar ekki að bjóða fram lista í Reykjavík í komandi borgar- stjórnarkosningum. Björt Ólafsdóttir, formaður flokksins, segir árið hafa verið flokknum erfitt en flokksmenn séu stoltir af verkum sínum á kjörtímabilinu. Björt Ólafsdóttir, formaður Bjartrar framtíðar. dýrahald Bréfdúfnafélag Íslands hefur sent umhverfis- og skipulags- ráði Reykjavíkurborgar erindi þar sem félagið óskar eftir plássi undir dúfna- kofa. Guðmundur Jónsson, formaður félagsins, segir að borgin sé að leita að heppilegum stað. Guðmundur segir að um 20 félags- menn keppi nánast um hverja helgi yfir sumartímann. Skikinn þurfi ekki að vera stór en nægur til að koma um fjórum til fimm dúfnakofum fyrir. Hver kofi ætti að geta rúmað 30-40 fugla. – bbh / sjá síðu 2 Leita að plássi fyrir dúfur Menntun „Eitt af helstu markmið- um samræmdra prófa er að aðstoða skóla, foreldra, menntakerfið og samfélagið í heild við að bæta skóla- starf og ef við höfum ekki aðgang að mælitækjunum þá fellur það mark- mið náttúrulega um sjálft sig,“ segir Páll Hilmarsson sem kvartaði til úrskurðarnefndar um upplýsinga- mál eftir að Menntamálastofnun hafnaði beiðni hans um aðgang að samræmdu prófi sem lagt var fyrir son hans í fjórða bekk. – aá / sjá síðu 4 Vill fá að sjá próf sonar síns Þjóðbúningadagur var haldinn í Safnahúsinu í gær. Fólk var hvatt til að klæðast þjóðbúningum af öllu tagi og sýna sig og sjá aðra. Þjóðdansafélag Reykjavíkur steig dans og var öllum viðstöddum boðið að taka þátt. Ungir sem aldnir tóku þátt og skemmtu sér vel. FréttaBlaðið/EyþÓr 30-40 fuglar þurfa að komast fyrir í hverjum dúfnakofa 1 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 A -5 A 9 8 1 F 2 A -5 9 5 C 1 F 2 A -5 8 2 0 1 F 2 A -5 6 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.