Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 30
Elsku pabbi okkar, sonur og bróðir, Björgúlfur Ólafsson rithöfundur og leiðsögumaður lést á Landspítalanum 9. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Margrét Birta Björgúlfsdóttir Ólafur Björgúlfsson Teitur Björgúlfsson Ólafur Björgúlfsson Kristín Ólafsdóttir Örn Svavarsson Bergljót Ólafsdóttir Arnar Stefánsson Ástkær systir okkar, Ingibjörg Sverrisdóttir sjúkraliði, frá Höfn í Hornafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 5. mars sl. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 13. mars kl. 11.00. Ólöf Sverrisdóttir Sveinbjörn Sverrisson Svava Sverrisdóttir Elskuleg móðir, amma, langamma og langalangamma Ragna Hólmfríður Pálsdóttir lést miðvikudaginn 7. mars á dvalarheimili Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Sauðárkróki. Útför fer fram frá Sauðárkrókskirkju miðvikudaginn 14. mars kl. 14. Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem önnuðust hana í veikindum hennar. Elín Hólmfríður Haraldsdóttir Þórður Gunnar Haraldsson Joseph Piskura Guðrún Elín Hilmarsdóttir Ragna Rós Bjarkadóttir Gunnar Valsson Jón William Bjarkason Guðríður Þórarinsdóttir langömmubörn og langalangömmubörn 1554 - Klausturhald var formlega aflagt á Íslandi. 1894 - Coca Cola var selt á flöskum í fyrsta sinn. 1916 - Alþýðusamband Íslands og Alþýðuflokkurinn voru stofnuð. Fyrsti formaður var Jón Baldvinsson. 1921 - Eldur varð laus í vitanum á Stórhöfða í Vestmanna- eyjum eftir að eldingu laust niður í hann. 1965 - Hljómsveitin Hljómar gaf út sína fyrstu plötu með- lögunum „Bláu augun þín“ og „Fyrsti kossinn“, bæði eftir Gunnar Þórðarson en textana samdi Ólafur Gaukur. 1965 - Hljómleikar voru haldnir í Austurbæjarbíói. Þar kom fram breska hljómsveitin The Searchers ásamt íslensku hljómsveitunum Tónum og Sóló. 1967 - Indira Gandhi var kjörin formaður Kongressflokksins og forsætisráðherra Indlands. 1967 - Sukarno, forseta Indónesíu, var steypt af stóli. 1974 - Háskóli Íslands sæmdi Gunnar Gunnarsson og Þórberg Þórðarson titlinum doctor litterarum islandicum honoris causa. 1977 - Íslenska kvikmyndin Morðsaga var frumsýnd. 2003 - Alþjóða heilbrigðisstofnunin lýsti yfir neyðarástandi vegna bráðalungnabólgu. Merkisatburðir Planið var að gera sólóplötu áður en ég yrði þrítugur. Það er löngu liðið en tímasetningin hentaði og ég ákvað að kýla bara á þetta núna,“ segir Stefán Jakobsson en lagið Flóttamaður byrjaði að hljóma á útvarpsstöðum landsins fyrir helgi. Lagið er fyrsta af áætlaðri sólóplötu sem hann ætlar að gefa út með vorinu. Hann er nánast tilbúinn með 10 lög og ætlar að safna fyrir plötunni á Karolina- fund. Stefán er söngvari hljómsveitarinn- ar Dimmu og þar hefur hann róið öllum árum að því að skapa sér stórt nafn. „Dimma er búin að vera á fullu síðan 2011, gefa út þrjár breiðskífur, taka þátt í tónleikum og fleiru með Bubba Mort- hens og ýmislegt fleira þannig að núna er skipið á floti og siglir áfram þöndum seglum. Það eru fullt af verkefnum með Dimmu fram undan en mér fannst stundin vera núna að gera þessa plötu.“ Hann segir að sér finnist betra að gera plötu með öðrum og líti á sig frekar sem verkstjóra en einhvern harðstjóra. „Það koma margir að því að móta músíkina. Biggi trommari hefur sitt að segja með trommurnar og sama gildir um Hálfdán með bassann. Þetta eru reynslumiklir menn úr bransanum sem hafa snert á miklu og hafa grunn í að vera skapandi í allar áttir. Ég leyfi þeim að njóta sín því þeirra hugmyndir eru yfirleitt miklu betri en mínar,“ bendir hann á. Fleiri lög eru væntanleg af komandi plötu í spilun en Stefán hefur samið flest sitt í samstarfi með Halldór Á. Björns- son. Birgir Jónsson slær á trommur, Hálfdán Árnason plokkar bassann og Birkir Rafn gítarinn. „Flóttamaður er gamalt lag, um 25 ára. Fyrst ætlaði ég að hafa plötuna á ensku en það var algjör vitleysa að syngja á útlensku.“ Stefán ætlar að fylgja plötunni eftir með því að spila á sem flestum stöðum í sumar. Trúlega eftir að Ísland lyftir HM styttunni í Rússlandi. „Tónlistin er ævintýragjörn, blaut og köld en samt svo falleg og hlý. Þetta eru 10 lög sem eru klár og þau hafa öll sín einkenni. Planið er að fylgja plötunni eftir með því að spila í því bæjarfélagi þar sem maður hefur átt bensín til að drífa í. Ætli það verði ekki eftir HM en fyrir Eistnaflug. Þá verða allir enn í stuði eftir að Ísland hefur orðið heimsmeistari.“ benediktboas@365.is Gamalt lag sem fékk nýjan hljóm Stefán Jakobsson, söngvari Dimmu, hefur gefið út lagið Flóttamaður sem mun hljóma á sólóplötu hans. Hann stendur á tímamótum því hann er vanur að hafa heila hljómsveit fyrir aftan sig en nú stendur hann einn á stóra sviðinu. Stefán á rjúpum í Mývatnssveit þar sem hluti textans fæddist við lagið Flóttamaður sem nú hljómar á útvarpsstöðvum landsins. Þetta eru reynslumiklir menn úr bransanum sem hafa snert á miklu og hafa grunn í að vera skapandi í allar áttir. Ég leyfi þeim að njóta sín því þeirra hugmyndir eru yfirleitt miklu betri en mínar. Stefán Jakobsson Alþýðusamband Íslands, heildar-samtök íslenskra stéttarfélaga, var stofnað þennan dag árið 1916. Félagsmenn eru hvort tveggja starfsmenn á almennum vinnumark- aði og hjá hinu opinbera. Þau félög sem stóðu að stofnuninni voru Verka- mannafélagið Dagsbrún, Hásetafélagið, Verkakvennafélagið, Prentarafélagið, Bókbindarafélagið, Verkamannafélagið Hlíf og Hásetafélag Hafnarfjarðar. Á vef Alþýðusambandsins segir að til- gangur stofnunarinnar hafi verið að auð- velda baráttu verkamanna fyrir bættum kjörum. Samhliða kjarabaráttu líðandi stundar hafi alla tíð verið lögð áhersla á að byggja upp fyrir næstu kynslóðir og horfa til framtíðar. Á stofnþingi var Ottó N. Þorláksson kjörinn forseti en Jón Baldvinsson tók við sem forseti. Núverandi forseti ASÍ er Gylfi Arnbjörnsson. Samhliða stofnun ASÍ var Alþýðu- flokkurinn stofnaður, en árið 1940 var lögum ASÍ breytt og flokkurinn skilinn frá til að mynda breiða samstöðu vinn- andi manna óháð flokkspólitík. ASÍ hóf þó aftur afskipti af stjórnmálum við stofnun Alþýðubandalagsins í apríl 1956. Þ ETTA G E R ð i ST 1 2 . M A R S 1 9 1 6 : Alþýðusamband Íslands stofnað Mynd/ LjóSMyndaSaFn ReykjavíkuR 1 2 . m a r s 2 0 1 8 m Á N U D a G U r14 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð tímamót 1 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 A -6 4 7 8 1 F 2 A -6 3 3 C 1 F 2 A -6 2 0 0 1 F 2 A -6 0 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.