Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 2
Veður Norðaustlæg átt í dag og skýjað á köflum, en hvasst með SA-strönd- inni og dálítil snjókoma eða slydda þar. Frost 0 til 9 stig, en frostlaust syðst. sjá síðu 16 Rafvirkjar LED rakaþétt ljós www.olafsson.is Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið að þínum þörfum með Appi Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 olafsson.is Sólveig fundaði með félagsmönnum DýrahalD Bréfdúfnafélag Íslands hefur sent umhverfis- og skipu- l a g s rá ð i Reyk javí ku r b o r g a r erindi þar sem félagið óskar eftir skika undir starfsemi sína þar sem reistir yrðu dúfnakofar. Guð- mundur Jónsson, formaður félags- ins, segir að borgin sé að leita að heppilegum stað. Félagið hafði augastað á skika í Elliðaárdal, en fékk hann ekki. Guðmundur segir að um 20 félagsmenn séu mjög virkir og keppi nánast um hverja helgi yfir sumartímann. Skikinn þurfi ekki að vera stór en nægur til að koma um fjórum til fimm dúfnakofum fyrir, en hver kofi er um 12 fer- metrar og rúmast um 30-40 fuglar í hverjum kofa. „Við fengum svona svæði í Hafn- arfirði og nú leitum við að svæði í Reykjavík. Það eru nokkrir mjög virkir í félaginu og við erum um 20 sem keppum nánast um hverja he gi,“ segir hann. Alls eru níu keppnir í sumar en fyrsta æfingamótið fer fram í maí. Þá fljúga dúfurnar 104 kíló- metra en lengsta keppnin er um 400 kílómetrar. Sá fugl sem skilar sér fyrstur heim vinnur. „Hver fugl er með rafrænan hring um fótinn. Öllum fuglum er ekið á keppnisstað og er öllum sleppt nánast á sömu sekúndu. Þegar þeir koma heim til sín þá stíga þeir á platta um leið og þeir ganga inn og skannast inn. Eigendurnir fylgjast svo með í símanum hvaða fugl nær fyrstur heim. Við sjáum samstundis í hvaða sæti þeir eru og fleira.“ Hann segir að dúfurnar rati nú alltaf heim til sín, það sé lítið vandamál. „Við verðum samt alltaf fyrir einhverjum skakka- föllum vegna veðurs og fálkans sem reynir að ná í dúfurnar. Í fyrra til dæmis lentum við í miklu verra veðri en við áætluðum og það var mjög hvasst. Þá voru dúfurnar að skila sér heim á nokkrum dögum. Fálkinn nær líka einni og einni dúfu,“ segir hann. Guðmundur bíður spenntur eftir sumrinu og hvort borgin finni skika handa félaginu sem flýgur hátt þessa stundina. benediktboas@365.is Vilja koma upp nýrri aðstöðu fyrir bréfdúfur Bréfdúfnafélags Íslands hefur óskað eftir skika í Reykjavík undir starfsemi sína. Vilja að fjórir til fimm dúfnakofar komist fyrir á skikanum. Borgin leitar að heppilegum stað. Um 20 félagsmenn keppa um hverja helgi yfir sumartímann. Keppnirnar í sumar 20/5 104km Hjálparfoss 27/5 130km Hrauneyjafoss 3/6 200km Botnar National 10/6 250km Freysnes 17/6 260km Freysnes 24/6 330km Höfn 1/7 330km Höfn 8/7 400km Seyðisfjarðarheiði 15/7 330km Grímsstaðir 22/7 400km Langanes 29/7 400km Langanes Guðmundur í dúfnakofanum sínum. Hann segir að vorverkin séu skemmtileg enda undirbúningur hafinn fyrir fuglana. „Þetta snýst um meira en að vera með dúfur í kofa,“ segir hann spenntur fyrir komandi sumri. Fréttablaðið/EyÞór Tilvonandi formaður í Eflingu, Sólveig Anna Jónsdóttir, fundaði með félagsmönnum Eflingar í gær. „Þetta var óformlegur fundur sem við í B-listan- um ákváðum að halda til þess að hitta fólk og sjáum fyrir okkur að þetta verði sá fyrsti af mörgum,“ segir Sólveig. Hún segist ekki vilja bíða með að kynnast félagsmönnum. „Við vorum með köku þannig að þetta var líka pínulítið eins og fermingarveisla,“ segir Sólveig. Fréttablaðið/EyÞór DÓMsMál Kona á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmd í 16 mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt, skilasvik og brot gegn bókhalds- lögum. Konan hafði dregið sér rúm- lega 59 milljónir króna í starfi sínu sem framkvæmdastjóri félagsins Gæi ehf. Brotin hófust árið 2007 og stóðu til ársins 2014. Meðal annars voru rúmlega níu milljónir millifærðar af reikningi félagsins eftir að árang- urslaust fjárnám hafði verið reynt í því. Í niðurstöðu dómsins segir að konan hafi játað brot sitt og verið samvinnufús við rannsókn málsins. Þá hefur hún ekki gerst brotleg við lög áður. Þó þótti ekki unnt að skil- orðsbinda refsinguna að fullu þar sem upphæðin var svo há og brotin stóðu yfir langt tímabil. Fjórtán mánuðir hennar voru skilorðs- bundnir með vísan til fyrrgreindra atriða og sökum þess að konan er þunguð af sínu fjórða barni. – jóe Dæmd fyrir 59 milljóna fjárdrátt sTjÓrNMál Framboðsfrestur í próf- kjörum Pírata fyrir komandi sveit- arstjórnarkosningar rennur út í dag klukkan 15.00. Sem stendur hefur verið ákveðið að halda próf- kjör fyrir lista í Reykjavík, Kópa- vogi og Hafnarfirði. Í Reykjavík hafa sautján ein- staklingar lýst yfir framboði en í þeim hópi eru meðal annars varaborgarfulltrúinn Þórgnýr Thoroddsen og Dóra Björt Guð- jónsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra Pírata. Þá er einnig í fram- boði Alexandra Briem, nái hún kjöri verður hún fyrsti trans borg- arfulltrúinn. Í Hafnarfirði hafa sjö lýst yfir framboði en í Kópavogi fimm. Hægt er að fræðast um frambjóð- endur og málefni þeirra á kosn- ingavef Pírata. Prófkjörið sjálft hefst síðan þann 19. mars næst- komandi. – jóe Framboðsfrestur Pírata rennur út slys Harður árekstur tveggja bif- reiða varð síðdegis í gær, austan við þéttbýlið á Kirkjubæjarklaustri. Í öðrum bílnum var ökumaður- inn einn, en tveir voru í hinum bílnum. Allir voru fluttir til Reykja- víkur með þyrlu. Veginum var lokað á meðan rannsókn stóð yfir og öku- tækin fjarlægð af veginum. – jhh Harður árekstur við Klaustur 3 voru fluttir með þyrlu til Reykjavíkur eftir slysið 1 2 . M a r s 2 0 1 8 M á N u D a G u r2 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð 1 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 A -5 F 8 8 1 F 2 A -5 E 4 C 1 F 2 A -5 D 1 0 1 F 2 A -5 B D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.