Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Eftir nokkrar vikur ætti blómleg ræktun að vera komin í gang í suðurglugganum.
Auður dembir
plöntunum
gjarnan í bað ef
hún verður vör
við lús. Baðið
endurtaki hún í
nokkra daga þar
til lúsin er horfin.
Skemmtilegur
tími tekur við
þegar jurtirnar
fara að teygja sig
upp úr moldinni.
Mín þumalputtaregla er að byrja þegar bjart er orðið úti til klukkan sjö
á kvöldin og þá bjart í sex til átta
tíma yfir daginn. Það er því ágætt
að byrja í mars og apríl,” segir
Auður Rafnsdóttir, höfundur
bókarinnar Kryddjurtarækt fyrir
byrjendur, spurð hvenær sé tíma-
bært að sá fyrir kryddjurtum í
eldhúsglugganum.
Matgæðingum er því óhætt að
draga á sig garðyrkjuhanskana og
fjárfesta í fræjum.
Vel megi rækta kryddjurtir allt
árið um kring á Íslandi þó kalt sé.
Stærsta hluta ársins sé nægilegt
að nota suðurglugga eða vermi-
reit með glæru plastloki. Í „inni-
görðum“ með lýsingu megi rækta
allt árið. Jurtirnar þurfi hvíldar-
tíma frá nóvember og fram í mars
við eðlilegar aðstæður.
Hvernig er best að byrja?
„Fræjum er sáð í sáðmold eða sáð-
moldarkubba. Mér finnst sjálfri
þægilegt að nota kubbana,“ segir
Auður. „Þá er þremur til fimm
fræjum, það fer aðeins eftir stærð,
sáð í hvern kubb. Það er alltaf hægt
að grisja síðar. Fræin eru látin
liggja á yfirborðinu og vökvað
vel. Bæði sáðmoldin og sáð-
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is
Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐA MÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI
1 msk fersk minta
1 tsk ferskt oregano
1 miðlungs stór jalapenopipar, fræhreinsaður
1 hvítlauksgeiri
2 msk ferskur sítrónusafi
¼ tsk sjávarsalt
¾ bolli góð ólívuolía
Hellið olíunni í litla skál og merjið allt hráefnið í mor-
teli. Mokið svo úr mortelinu í olíuna og hrærið vel
saman. Einnig má demba öllu hráefninu í blandara
eða magic bullet og blanda þannig öllu vel saman.
Fyrir meira bragð má setja minna af olíu og öfugt ef
bragðið á ekki að vera mikið. Kryddolían geymist í
lokuðu íláti en skilur sig svo gott er að hrista eða hræra
aftur saman fyrir notkun. Gott yfir salat.
www.paleoplan.com
Kryddolía út á salatið
moldarkubbarnir þurfa mikinn og
stöðugan raka fyrstu vikurnar og til
dæmis er gott að spreyja yfirborðið
tvisvar á dag,“ útskýrir Auður.
Skemmtilegur tími taki nú við
að fylgjast með jurtunum spretta
upp úr moldinni. Þegar vöxturinn
er kominn vel á veg má flytja
pottana út á svalir ef plássið er lítið
í glugganum.
„Kryddjurtir, aðrar en basilíku,
má flytja út í garð eða út á svalir
en huga þarf að skjóli því það er
vindasamt hjá okkur á Íslandi. Sjálf
flyt ég aldrei mínar út fyrr en eftir
17. júní en ég hef lent í næturfrosti
í byrjun júní,“ segir Auður.
„Fjölærar kryddjurtir eins og
minta, steinselja (tvíær), gras-
laukur, rósmarín, timían, oreganó
og salvía koma upp aftur að ári en
þurfa gott skjól yfir vetrartímann.
Basilíka, kóreander og dill eru
einærar plöntur hér á landi.“
Spurð hverju hún mæli með fyrir
byrjendur í kryddjurtarækt segir
Auður tiltölulega auðvelt að koma
fjölærum jurtum til.
„Minta og graslaukur eru auð-
veld í ræktun og er fallegt að hafa
í pottum úti á palli, á svölunum
eða úti í garði. Þá er einfalt að færa
pottana til eftir vatni og vindi. Ég
mæli líka með því að byrjendur
kaupi litlar forræktaðar jurtir. Mér
finnst það þægilegt sjálfri og bæði
sái fræjum og kaupi forræktað.“
Beðin um ráð við lús, leiðinda-
gest sem getur látið sjá sig á krydd-
jurtum, segir hún best að demba
þeim í bað.
„Ég fylgist alltaf vel með jurt-
unum, sérstaklega ef þær eru inni,
skoða þær daglega og sný við lauf-
blöðum. Ef ég verð vör við lús skelli
ég plöntunni strax í snöggt bað, til
dæmis í djúpan vask eða bala. Ég
geri þetta nokkra daga í röð og þá
hverfur lúsin.“
Hverju mælirðu með fyrir
krakka? „Minta er skemmtileg
fyrir krakka að rækta. Til dæmis
er gaman að rækta mismunandi
bragðtegundir af mintu og klippa
út á ísinn, ávextina eða í þeyting og
orkudrykki.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . M A R S 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
1
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
A
-7
D
2
8
1
F
2
A
-7
B
E
C
1
F
2
A
-7
A
B
0
1
F
2
A
-7
9
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K