Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 29
RAM 3500
TIL AFGREIÐSLU STRAX
TIL AFGREIÐSLU STRAX
RAM 3500 LIMITED, LARAMIE
OG SLT ÁRGERÐ 2018
BJÓÐUM UPP Á 35” TIL 40”
BREYTINGARPAKKA.
Umboðsaðili Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433
www.ramisland.is - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
2018
VERÐ FRÁ KR.
5.960.000 ÁN VSK.
KR. 7.390.400 MEÐ VSK.
HÖRKUTÓL SEM ENDIST
40” BREYTTUR LIMITED
LARAMIE SPORT
Handbolti Fram þurfti ekki að hafa
mikið fyrir hlutunum þegar liðið
tryggði sér sinn fimmtánda bikar-
meistaratitil með öruggum sigri á
Haukum, 30-16, á laugardaginn.
Eins og tölurnar gefa til kynna
voru yfirburðir Fram gríðarlega
miklir. Safamýrarstúlkur spiluðu
ógnarsterka vörn og Guðrún Ósk
Maríasdóttir var mögnuð í mark-
inu og varði 19 skot (63,3%).
Fram komst í 6-1, 10-4 og þegar
fyrri hálfleikurinn var allur var
staðan 14-6. Frammarar juku mun-
inn í seinni hálfleik og þegar loka-
flautið gall munaði 14 mörkum á
liðunum, 30-16. Það er næstmesti
munur sem hefur verið í bikarúr-
slitaleik kvenna.
„Þetta er tvöföld gleði,“ segir
Steinunn Björnsdóttir, leikmaður
Fram, í samtali við Fréttablaðið
eftir leikinn. Hún fagnaði ekki bara
bikarmeistaratitli í fyrradag heldur
einnig 27 ára afmæli sínu.
„Við spiluðum frábæra vörn
allan leikinn og Guðrún var sturl-
uð þar fyrir aftan. Svo spiluðum
við vel saman sem lið og þetta
var ógeðslega skemmtilegt. Þetta
er vonandi það sem koma skal,“
segir Steinunn sem var frábær í
miðri vörn Fram ásamt Ragnheiði
Júlíusdóttur.
Sú síðarnefnda náði sér ekki
á strik þegar Fram tapaði fyrir
Stjörnunni í bikarúrslitaleiknum
í fyrra en átti góðan leik á laugar-
daginn. Ragnheiður hefur fengið
meiri ábyrgð í varnarleik Fram og
staðið undir henni. Í leiknum gegn
Haukum varði hún t.a.m. fjögur
skot í vörninni og stal boltanum
fjórum sinnum.
Leikmannahópur Fram er einn
sá sterkasti sem hefur sést hér á
landi. Til marks um það eiga 10 af
þeim 16 leikmönnum sem voru
á skýrslu í bikarúrslitaleiknum
A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Þetta er sama lið og varð Íslands-
meistari í fyrra að viðbættum Þór-
eyju Rósu Stefánsdóttur og Karenu
Knútsdóttur, tveimur byrjunarliðs-
mönnum í landsliðinu.
„Við erum með rosalega mikla
breidd og við eigum bara eftir að
eflast. Við eigum tvo leiki eftir
í deildinni og svo hefst úrslita-
keppnin,“ segir Steinunn.
Fram hefur unnið 10 leiki í röð
í deild og bikar með samtals 99
marka mun. Það virðist vera fátt
sem getur stöðvað Safamýrar-
stúlkur í að vinna alla þá titla sem
í boði eru. „Við getum átt slæma
daga en það er rétt, við erum
með sterkasta hópinn og það er
bara spurning um hvernig við
mætum til leiks,“ segir Steinunn
að lokum.
ingvithor@frettabladid.is
Fullkominn afmælisdagur Steinunnar
Fram rúllaði yfir Hauka, 30-16, í úrslitaleik Coca Cola-bikars kvenna í handbolta á laugardaginn. Afmælisbarnið Steinunn Björnsdóttir
átti frábæran leik fyrir Fram sem hefur verið algjörlega óstöðvandi undanfarið og er afar líklegt til að vinna alla þá titla sem í boði eru.
Úrslitaleikur kvenna
Fram 30-16 Haukar
(14-6)
Fram: Þórey Rósa Stefánsdóttir
7, Karen Knútsdóttir 5/1, Elísa-
bet Gunnarsdóttir 5, Ragnheiður
Júlíusdóttir 4, Steinunn Björns-
dóttir 4, Hulda Dagsdóttir 2, Sigur-
björg Jóhannsdóttir 2, Elva Þóra
Arnardóttir 1.
Haukar: Berta Rut Harðardóttir
9/6, Maria Pereira 3, Guðrún Erla
Bjarnadóttir 1, Karen Helga Díönu-
dóttir 1, Þórhildur Braga Þórðar-
dóttir 1, Vilborg Pétursdóttir 1/1.
Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Steinunn Björnsdóttir hefja Coca Cola-bikarinn á loft. FréttaBlaðið/Eyþór
Kvennalið Fram hefur 15
sinnum orðið bikarmeistari,
oftast allra.
S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ða b l a 13M Á n U d a G U r 1 2 . M a r S 2 0 1 8
1
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
A
-6
9
6
8
1
F
2
A
-6
8
2
C
1
F
2
A
-6
6
F
0
1
F
2
A
-6
5
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K