Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 6
www.olafsson.is Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið að þínum þörfum með Appi LED lausnir frá Lýsing fyrir götur, göngustíga og bílastæði. Ráðgjöf og nánari upplýsingar má fá hjá sölumönnum. Smart City lausnir Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 sala@olafsson.is 01 Smærri viðgerðir Hraðþjónusta HEKLU. Hringdu í 590 50 30 eða renndu við. Hekla.is Alltaf öruggt start fyrir kuldann í vetur. Bandaríkin Ekki stendur til að slaka á viðskiptaþvingunum gegn Norður-Kóreu eða gefa tommu eftir að neinu leyti í aðdraganda fundar Donalds Trump, forseta Banda- ríkjanna, og Kim Jong-un, einræðis- herra Norður-Kóreu, sem tilkynnt var um í síðustu viku. Þetta sagði Mike Pompeo, yfirmaður banda- rísku leyniþjónustunnar CIA í gær. Um er að ræða fyrsta fund leið- toga þessara tveggja ríkja. Ekki liggur fyrir hvenær eða hvar þeir Trump og Kim munu hittast en búist er við því að fundurinn fari fram í maí. Þá mun Kim einnig eiga fund með suðurkóreska forset- anum Moon Jae-in á landamærum ríkjanna á Kóreuskaga í apríl. Pompeo sagði enn fremur að þótt Bandaríkin ætluðu ekki að gefa eftir myndi einræðisríkið þurfa að standa við orð sín um að hætta kjarnorku- og eldflaugatil- raunum alfarið áður en fundurinn fer fram. „Við höfum aldrei áður verið í þeirri stöðu að hagkerfi Norður- Kóreu sé svo hætt komið, að yfir- völd hafi sætt svo miklum þrýst- ingi, að einræðisstjórnin biðji um viðræður á þeim forsendum sem Kim Jong-un hefur samþykkt. Sjálfur tjáði Trump sig um við- ræðurnar á fjöldafundi í Pennsylv- aníu á laugardag. „Ég trúi því að þau vilji frið. Ég held það sé tími til kominn,“ sagði forsetinn. „Hver veit hvað gerist?“ sagði Trump um væntanlegan fund og bætti við: „Kannski yfirgef ég fund- inn í snatri. En kannski setjumst við niður saman og gerum besta samning í heiminum.“ Fundur Kim og Trumps myndi marka tímamót í utanríkisstefnu Bandaríkjanna, að því er Bloom- berg greinir frá. Hann væri algjör- lega fordæmalaus. Bloomberg vitnar sömuleiðis í sérfræðinga sem telja að mögulega sé einræðis- herrann einungis að reyna að kaupa sér tíma til að halda áfram kjarnorkuvopnaþróun án þess að þurfa að hafa áhyggjur af frekari þvingunum. Elizabeth Warren, öldungadeild- arþingmaður Demókrata, sagðist í gær ekki hrifin. Með því að sam- þykkja að setjast niður með Kim væri Trump að viðurkenna ógnar- stjórn hans opinberlega. „Ef forsetinn nær árangri í við- ræðum sem þessum er það alltaf gott fyrir Bandaríkin. En ég hef áhyggjur af því að Kim muni not- færa sér forsetann,“ sagði Warren og bætti því við að utanríkisráðu- neytið væri nú þjakað af afsögnum lykilstarfsmanna. Til að mynda væri enginn sendiherra nú í Suður- Kóreu. thorgnyr@frettabladid.is Þvingunum ekki hætt fyrir fundinn með Kim Væntanlegur fundur Kim Jong-un og Donalds Trump ekki tilefni til að slaka á þvingunaraðgerðum. Kim-stjórnin þarf hins vegar að hætta tilraunum í aðdrag- anda fundar. Demókratar efins um ágæti þess að funda með Kim. Trump og Kim gnæfa yfir suðurkóreskum hermanni í Seúl. NordicphoToS/AFp kína Xi Jinping gæti orðið forseti ævilangt eftir að Kínverjar sam- þykktu í gær að fella ákvæði um að forseti megi bara sitja í tvö kjörtíma- bil úr stjórnarskrá ríkisins. Af þeim 2.964 sem greiddu atkvæði á árlegum fundi Þjóðþingsins lögðust einungis tveir gegn breytingunni. Þrír sátu hjá. Ákvæðið var innleitt á tíunda ára- tug síðustu aldar og hefur enginn forseti síðan þá setið lengur en tvö kjörtímabil. Yfirstandandi kjörtíma- bili lýkur árið 2023 og samkvæmt ákvæðinu sem var fellt úr stjórnar- skránni hefði Xi þurft að láta af störfum þá. Ýmislegt benti hins vegar til þess að Xi ætlaði alls ekki að láta sér tvö kjörtímabil duga áður en tilkynnt var um að til stæði að fella ákvæðið úr stjórnarskránni. Xi hefur, þvert á hefðir Kommúnistaflokksins, aldrei valið sér arftaka. Þá var nafn hans og hugmyndafræði rituð í stjórnar- skrá flokksins í fyrra og var Xi þann- ig settur á sama stall og Maó Zedong, ofar öllum öðrum forsetum Kína. Samkvæmt fréttaskýranda BBC er erfitt að sjá fram að nokkur geti skákað Xi Jinping. Hann sé lang- valdamesti maður Kína og sé það mikil breyting frá því Hu Jintao var forseti 2003 til 2013 og forsætisnefnd Kommúnistaflokksins fór saman með stjórn ríkisins. Ekki eru allir sáttir við breyting- arnar. „Þetta gæti eyðilagt Kína og tortímt kínversku þjóðinni. Ég get ekki þagað um þetta. Ég verð að láta þá vita að þjóðin sé á móti þessu,“ sagði Li Datong, fyrrverandi ritstjóri, við The Guardian í gær en hann er einn þekktasti talsmaður frjálslyndis og stjórnarandstöðu í Kína. – þea Xi fær að sitja lengur en tvö kjörtímabil Xi Jinping, forseti Kína. NordicphoToS/AFp 1 2 . m a r s 2 0 1 8 m Á n U d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 A -8 7 0 8 1 F 2 A -8 5 C C 1 F 2 A -8 4 9 0 1 F 2 A -8 3 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.