Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 12
Rashford gerði gæfumuninn Marcus Rashford skoraði bæði mörk Manchester United í 2-1 sigri á Liverpool í uppgjöri erkifjendanna. fótbolti Tvö mörk frá Marcus Rash­ ford tryggðu Manchester United sigur á Liverpool í slag erkifjend­ anna á Old Trafford á laugardaginn. Þetta var fyrsti leikur Rashfords í byrjunarliði United í ensku úrvals­ deildinni síðan á öðrum degi jóla og hans fyrstu deildarmörk síðan 12. desember. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem Rashford skorar tvö mörk í deildarleik síðan í 3­2 sigri á Arsenal 28. febrúar 2016. Það var fyrsti leikur hans fyrir United í ensku úrvalsdeildinni á ferlinum. United var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik þótt Liverpool hafi verið meira með boltann. Rashford kom heimamönnum yfir á 14. mínútu eftir að hafa leikið skemmtilega á Trent Alexander­Arnold, hægri bakvörð gestanna. Romelu Lukaku vann skallaeinvígi við Dejan Lovren í aðdraganda marksins. Hann gerði það einnig í öðru marki United sem kom 10 mínútum eftir það fyrsta. Boltinn barst þá til Rashfords sem skoraði með skoti sem hafði við­ komu í Alexander­Arnold. Liverpool sótti nær allan seinni hálfleikinn, án þess þó að ógna marki United að neinu ráði. Gest­ irnir fengu líflínu þegar Eric Bailly skoraði kostulegt sjálfsmark á 66. mínútu en nær komust þeir ekki. David De Gea hafði lítið að gera í marki United og Ashley Young hélt hinum skeinuhætta Mohamed Salah í skefjum. „Þetta var fullkomin frammistaða hjá okkur í tveimur ólíkum hálf­ leikjum. Mér er alveg sama ef fólk segir að við höfum ekki átt þetta skilið,“ sagði José Mourinho, knatt­ spyrnustjóri United, eftir leikinn. Með sigrinum náðu hans menn fimm stiga forskoti á Liverpool í 2. sæti deildarinnar þegar átta umferð­ um er ólokið. „Við ætluðum ekki að vera svona varnarsinnaðir í seinni hálfleik. Leikmaður helgarinnar Chris Wood breytti leik West Ham og Burnley eftir að hann kom inn á sem varamaður á 61. mínútu, í stöðunni 0-0. Fimm mínútum síðar lagði hann upp mark fyrir Ashley Barnes, félaga sinn í framlínu Burnley. Wood skoraði svo sjálfur á 70. mínútu eftir send- ingu frá Aaron Lennon. Ný-Sjálendingurinn var ekki hættur og hann skoraði annað mark sitt og þriðja mark Burnley níu mínútum fyrir leikslok. Hann var þá fyrstur að átta sig eftir að Joe Hart varði skot Jóhanns Berg Guðmundssonar út í teiginn og skoraði auðveldlega. Wood hefur verið talsvert mikið frá vegna meiðsla eftir að Burnley keypti hann frá Leeds United fyrir met- verð í sumar. Wood er þó allur að koma til og skoraði sigurmarkið gegn Everton um þarsíðustu helgi. Hann hefur alls skorað sjö mörk fyrir Burnley í ensku úrvalsdeildinni og er marka- hæstur í liðinu. – iþs Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Manchester United vann stórleikinn gegn Liverpool, þökk sé tveimur mörkum frá Marcus Rashford. Þetta var þriðji deildarsigur United í röð. Eftir leikinn munar fimm stigum á United og Liverpool. Chelsea er nú fjórum stigum frá Liverpool sem er í 4. sætinu. Hvað kom á óvart? Að Burnley skyldi skora þrjú mörk á 15 mínútna kafla gegn West Ham. Vel skipu- lagður varnarleikur er helsta ástæðan fyrir góðu gengi Burnley í vetur en sóknar- leikurinn hefur ekki verið neitt sérstakur. Fyrir leikinn var Burnley aðeins búið að skora 24 mörk í 29 leikjum. Mestu vonbrigðin Laugardagurinn var afar vondur fyrir West Ham. Ekki nóg með að liðið tapaði 0-3 fyrir Burnley heldur réðust stuðnings- menn liðsins inn á Lundúnaleik- vanginn. Einn þeirra tók hornfána ófrjálsri hendi. Stuðningsmenn West Ham eru afar ósáttir við eigendur félagsins. Kollegi hans hjá Liverpool, Jürgen Klopp, var ekki sáttur við varnar­ leik sinna manna í mörkunum sem Rash ford skoraði. „Það er ekki góð hugmynd að lenda 2­0 undir gegn United. Lukaku er einn af bestu framherjum heims og við þurftum að vinna boltana sem féllu af honum. Við gerðum það ekki og Rashord nýtti sér það í tví­ gang,“ sagði Klopp og sendi dómar­ anum, Craig Pawson, pillu. „Við fengum möguleika á lang­ skotum en við vorum ekki nógu góðir. Við skoruðum einu sinni og ég held að allir geti verið sammála um að við áttum að fá víti en það hjálpar okkur ekki núna.“ Klopp hefur stýrt Liverpool sjö sinnum gegn United og árangurinn er ekkert til að hrópa húrra fyrir. Liverpool hefur aðeins unnið einn þessara leikja, í Evrópudeildinni vorið 2016, gert fjögur jafntefli og tapað tveimur leikjum. United hefur haft gott tak á Liverpool á undan­ förnum árum. Frá upphafi tíma­ bilsins 2014­15 hafa liðin mæst 10 sinnum. United hefur unnið fimm þessara leikja, Liverpool einn og fjórum sinnum hefur orðið jafntefli. Það er skammt stórra högga á milli hjá United. Á morgun mætir liðið Sevilla á heimavelli í seinni leik liðanna í 16­liða úrslitum Meistara­ deildar Evrópu. Fyrri leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. Á laugardaginn fær United svo Brigh­ ton í heimsókn í 8­liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Það er titill sem Mourinho hefur aðeins unnið einu sinni (2007) og þyrstir eflaust í. Liverpool á ekki leik fyrr en á laugardaginn þegar liðið mætir Wat­ ford. Annað sætið er orðið fjarlægt en Rauði herinn er enn í kjörstöðu til að tryggja sér Meistaradeildar­ sæti. ingvithor@frettabladid.is Enska úrvalsdeildin Staðan Úrslit 30. umferðar 2017-18 Man. Utd. - Liverpool 2-1 1-0 Marcus Rashford (14.), 2-0 Rashford (24.), 2-1 Sjálfsmark (66.). Everton - Brighton 2-0 1-0 Sjálfsmark (60.), 2-0 Cenk Tosun (76.). Huddersfield - Swansea 0-0 Newcastle - S’oton 3-0 1-0 Kenedy (2.), 2-0 Kenedy (29.), 3-0 Matt Ritchie (57.). West Brom - Leicester 1-4 1-0 Salomón Rondón (8.), 1-1 Jamie Vardy (21.), 1-2 Riyad Mahrez (62.), 1-3 Kelechi Iheanacho (76.), 1-4 Vicente Iborra (90+3.). West Ham - Burnley 0-3 0-1 Ashley Barnes (66.), 0-2 Chris Wood (70.), 0-3 Wood (81.). Chelsea - C. Palace 2-1 1-0 Willian (25.), 2-0 Sjálfsmark (32.), 2-1 Patrick van Aanholt (90.). Arsenal - Watford 3-0 1-0 Shkodran Mustafi (8.), 2-0 Pierre- Emerick Aubameyang (59.), 3-0 Henrikh Mkhitaryan (77.). B’mouth - Tottenham 1-4 1-0 Junior Stanislas (7.), 1-1 Dele Alli (35.), 1-2 Son Heung-Min (62.), 1-3 Son (87.), 1-4 Serge Aurier (90+1.). FÉLAG L U J T MÖRK S Man. City 29 25 3 1 83-20 78 Man. Utd. 30 20 5 5 58-23 65 Tottenham 30 18 7 5 59-25 61 Liverpool 30 17 9 4 68-34 60 Chelsea 30 17 5 8 52-27 56 Arsenal 30 14 6 10 55-41 48 Burnley 30 11 10 9 27-26 43 Leicester 30 10 10 10 45-43 40 Everton 30 10 7 13 35-49 37 Watford 30 10 6 14 39-50 36 Brighton 30 8 10 12 28-40 34 B’mouth 30 8 9 13 35-48 33 Newcastle 30 8 8 14 30-40 32 Swansea 30 8 7 15 25-42 31 Huddersf. 30 8 7 15 25-40 31 West Ham 30 7 9 14 36-57 30 S’oton 30 5 13 12 29-44 28 C. Palace 30 6 9 15 28-48 27 Stoke 29 6 9 14 28-54 27 West Brom 30 3 11 16 23-47 20 Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum í Englandi Everton Gylfi Þór Sigurðsson Lék allan leikinn þegar Everton vann 2-0 sigur á Brighton á heimavelli. Everton er í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Er enn frá vegna meiðsla og lék ekki með Cardiff í 3-2 heimasigri á Birmingham. Reading Jón Daði Böðvarsson Skoraði fyrra mark Reading í 2-2 jafntefli við Leeds á heimavelli. Aston Villa Birkir Bjarnason Kom inn á sem varamaður og skoraði fjórða mark Aston Villa í 1-4 sigri á Wolves. Bristol City Hörður B. Magnússon Lék seinni hálfleikinn þegar Bristol City gerði markalaust jafntefli við Burton. Marcus Rashford fagnar fyrir framan stuðningsmenn Manchester United. Hann var hetja liðsins í stórleiknum gegn Liverpool. NoRDiCPHoToS/GETTy Burnley Jóhann Berg Guðm. Var á sínum stað í byrj- unarliði Burnley sem vann West Ham 0-3. Átti stóran þátt í þriðja marki Burnley. Liverpool þrýsti okkur aftar á völl­ inn en ég man ekki eftir því að De Gea hafi þurft að taka á honum stóra sínum. Ég man ekki eftir neinum færum. Við stjórnuðum leiknum án þess að vera með bolt­ ann. Við áttum sigurinn skilið,“ bætti Mourinho við. 1 2 . m a r s 2 0 1 8 m Á N U D a G U r12 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 1 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 A -6 9 6 8 1 F 2 A -6 8 2 C 1 F 2 A -6 6 F 0 1 F 2 A -6 5 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.