Myndmál - 01.03.1984, Síða 6

Myndmál - 01.03.1984, Síða 6
Asdís Thoroddsen og Bessi Bjarnason í SKILABOÐ TIL SÖNDRU. Frekar átakalítil og skortir töluverðan kraft til að úr verði gott bíó. ...ogsmápælingar... Hér eftir má búast við að þrjár til fjórar kvikmyndir birtist á ári hverju frá inn- lendum aðilum. Smæð markaðarins gerir kvikmyndagerðarmönnum allerfitt fyrir því takmörk eru fyrir hvað hægt er að ná inn af peningum sem nota má til að fjármagna næsta verkefni. Satt að segja standa málin þannig að þeir sem sjá um bíómyndasmíðar hér á landi mega þakka fyrir að fá uppí kostnað og halda húsum sínum. 3(M0 þúsund manns þarf til að standa undir bíómynd af ódýrustu gerð en slíkur fjöldi samsvarar þeirri aðsókn sem er á vinsæl- ustu erlendu bíómyndirnar. Að vísu hafa flestar þær 13 íslensku bíómynda sem sýndar hafa verið frá janúar 1980 til des- ember 1983 farið langt yfir þetta mark og a.m.k. tvær þeirra ef ekki fleiri, náð inn yfir 100 þúsund manns (Land og Synir og Með Allt á Hreinu). Engu að síður er áhættan alltof mikil og algerlega óviðunandi að menn þurfi að veðsetja aleiguna í hvert skipti sem mynd er gerð. Fólki finnst ekki lengur nóg að myndin sé íslensk, efnið þarf að höfða til þess á einhvern hátt. Þá virðist auðveldasta leiðin að detta í pytt ódýrra formúlumynda sem eiga næga aðsókn vísa. Slíkar myndir eiga auðvitað allan rétt á sér, en nauðsynlegt er að svigrúm sé til að ráðast í metnaðarmeiri verkefni. Tilkoma Kvikmyndasjóðs gerði íslenskar bíómyndir að veruieika og nauðsynlegt er að sjóðurinn verði áfram sem traustastur bakhjarl þeirra. Einnig er afar mikilvægt að Kvikmyndasjóður hugi að stuðningi við smærri verkefni, heimildamyndir o.þ.h. og hafi ekki síst náið samstarf við Sjónvarpið. Kvikmyndasafnið þarfnast líka góðrar að- hlynningar og bættrar aðstöðu því þar eru unnin verk sem seint verða ofmetin. Þeim íslendingum fer fjölgandi sem halda utan tii náms í kvikmyndagerð. Sem stendur hafa flestir starfandi kvikmyndagerðarmenn hér á landi nóg að gera en hugsanlegt er að það breytist innan fárra ára. Því verður að fara að huga að sköpun fleiri atvinnu- tækifæra og þar er komið að þætti Sjón- varpsins. Það er afar mikilvægt fyrir þróun ís- lenskrar kvikmyndagerðar að Sjónvarpið ræki margfalt betur hlutverk sitt sem fram- leiðandi fjölbreytilegrar eigin dagskrár. Yngri kvikmyndagerðarmenn þurfa að fá að spreyta sig á gerð stuttmynda og heimilda- mynda áður en þeir ráðast útí stærri verk- efni. Markaður fyrir slíkt efni er bundinn við Sjónvarpið og það er engin spurning um hvort landsmenn kjósi íslenskar myndir, þeir væru jafnvel reiðubúnir að greiða mun hærri afnotagjöld. Sjónvarpið þarf einnig að þvo af sér meðalmennsku- stimpilinn sem fylgt hefur stofnuninni alltof lengi og dregið úr trú fólks á henni. Það er, að ég held, óhagganleg staðreynd, að íslenskar bíómyndir eru komnar til að vera. íslenskir bíóáhorfendur taka innlend- ar myndir yfirleitt fram yfir jafnvel vinsæl- ustu Hollywood framleiðslu en hljóta um leið að gera þá kröfu til kvikmyndagerðar- manna að þeir séu jafnan reiðubúnir að gefa sjálfumsér spark í afturendann til að kvikmyndin megi þroskast og dafna meðal annarra menningarþátta hér á hjara verald- ar... ÁSGRÍMUR SVERRISSON Erlendur kvikmyndaamáll 1983 Erlendar kvikmyndir sýndr hér á árinu 1983 spönnuðu (sem jafnan) alla gœðaflokka. Sú ánœgjulega þróun á sér stað að myndirnar berast hingað til lands œ fyrr en áður og Reykjavík er jafnvel farin að taka þátt í heimsfrumsýningum stórborganna. Kvikmyndahátíð Listahátíðar hefur einnig unnið sér fastan sess sem árlegur viðburður og er það vel. 4. FIRSTBLOOD. Leikstjóri: Ted Kotcheff. Sylvester Stallone er sem fæddur í hlutverk grænhúfuhermannsins nýkominn frá Viet- nam. Kotcheff lyftir rútíneruðu spennu- myndaformi í hærri hæðir og vekur um leið upp sjónarhorn sem fáir gefa gaum, sumsé hvað verður um sérþjálfaða atvinnumorð- ingja Bandaríkjahers sem sendir eru heim að loknu stríði og er ætlað að liía meðal fólks í stað þess að drepa það? 5. EINFALDI MORÐINGINN. Leikstjóri: Hans Alfredsson. Geysilega áhrifarík og sérkennileg sænsk mynd um mann sem talinn er íáviti sökum talgalla og hvernig hann bregst við þeim atburðum sem að- stæðurnar þröngva uppá hann. 6. THE WALL. Leikstjóri: Alan Parker. Parker galdrar fram magnað bíó þegar hann lýsir þugrenningum Roger Waters, eins meðlima hljómsveitarinnar Pink Fioyd, allt frá barnæsku til fægðar og frama. Sviðsetningin er öll í „SkonrokksstiT án þess þó að skorta innra líf. 7. ROCKYIII. Leikstjóri: Sylvester Stall- one. Einfaldlega skothefdur sjóbissniss. Skyldi nokkur eiga eftir að leika það eftir Stallone að gera þrjár myndir í röð um sama efnið, sem allar eru hver annari betri? Og nú er hann að gera þá fjórðu... 8. THE OUTSIDERS. Leikstjóri: Francis Ford Coppola. Það er aðeins á færi snillings á borð við Coppola að gera jafn áhrifaríka stemmningsmynd úr jafn lítilfjörlegu efni. Stórgott kvikmyndaverk. 9. GANDHI. Leikstjóri: Richard Attenbor- ough. Tuttugu ára streð Attenboroughs við þetta verkefni bar fullan ávöxt. Minning og hugsjónir Gandhis hafa nú eignast ódauð- legan minnisvarða. 10. ANDRA DANSEN. Leikstjóri: Lárus Ýmir Óskarsson. Lítið ævintýri, fullt af bragðgóðum hugmyndum sem unnið er úr af smekkvísi og fágun. Með þessari fyrstu mynd sinni í fullri lengd telst Lárus Ýmir til þess hóps kvikmyndagerðarmanna sem vænta má afreka af í framtíðinni. Af öðrum eftirminnilegum myndum má nefna POLTERGEIST, hrollvekju Steven Spieibergs og Tobe Hoopers, REDS eftir Warren Beatty, MERRY CHRISTMAS MR. LAWRENCE eftir Nagisha Oshima, TESS eftir Roman Polanski, BLUE THUNDER eftir John Badham, HEAVENS GATE eftir Michael Cim- ino og SOPHIE'S CHOICE eftir Alan J. Pakula. ÁSGRÍMUR SVERRISSON Listi yfir bestu erlendu bíómyndirnar sem sýndar voru 1983 og undirritaður barði augum, lítur svona út: 1. MISSING. Leikstjóri: Costa-Gavras. Costa-Gavras vekur upp óhugnanlegt and- rúmsloft valdaránsins í Chile árið 1973 og leikur Sissy Spacek og Jack Lemmon í hlutverkum venjulegra Bandaríkjamanna sem uppgötva illvirki eigin ríkísstjórnar á erlendri grund, er hreint út sagt stórkost- legur. 2. THE STUNT MAN. Leikstjóri: Richard Rush. Þessi mynd er perla. Rush bregður upp andrúmsiofti sem ekki er hægt að lýsa með orðum, þetta er bíó eins og bíó á að vera. Peter O’Toole og Steve Railsback fara á kostum í aðalrullunum. 3. TOOTSIE. Leikstjóri: Sidney Pollack. Dustin Hoffman og Jessica Lange sýna snilldartakta ásamt mörgum öðrum (þ.á m. leikstjóranum sjálfum) í einni bestu gaman- mynd síðari ára. Fjórar stjörnur fyrir frá- bæra hugmynd og úrvinnslu. 6 MYNDMÁL

x

Myndmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.