Myndmál - 01.03.1984, Qupperneq 12

Myndmál - 01.03.1984, Qupperneq 12
Mótmælafundur fyrir framan hús forsáetisráðherra. Arnar Jónsson (Gunnar) og Tinna Gunnlaugsdóttir (Ugla). —-----/--------------------------------- Ornólfur Arnason, framkvæmdastjóri Atómstöðvarinnar: „Teljum að efni þessarar kvikmyndar eigi brýnt erindi við fólk almennt í heiminum. “ og skemmtanaskatt. Bara söluskatturinn ætti að vera næg upphæð til að standa undir framleiðslu a.m.k. þriggja til fjögurra mynd á ári. Þó það virðist vera há tala miðað við aðrar stærri þjóðir þá held ég að það sé alger nauðsyn til að koma þessum iðnaði á legg og safna þeirri reynslu og þekkingu sem nauðsynleg er til að gera vandaðar myndir sem eiga möguleika á útflutningi. Ugla litast um í húsi organistans. SP: Nú var œthmin að mynda í fyrrasumar. Huað breytti því? Ö: Það var margt sem hjálpaðist að. Fjármögnunin var ekki komin í höfn og einnig vildum við gjarnan hafa lengri tíma til að gera handritið betur úr garði. Satt að segja gerðum við holskurð á handritinu eftir þann tíma sem við ætluðum að vera byrjaðir að filma upphaflega og gerbreyttum ailri meðhöndlun á þessu efni. SP: Framleiðslukostnaður myndarinnar mun vera um 13-14 miljónir. Þýðir það ekki að þið þurfið yfir 100.000 manns til að standa undir kostnaði? Ö: Jú, ætii við þyrftum ekki röskiega 100.000 manns, þó ekki sé hægt að fullyrða alveg um það því miðaverðið er ekki ákveðið enn. SP: Hvernig hyggist þið ná uppí kostnað? Ö: Það væri auðvitað lang þægilegast ef við fengjum á annað hundrað þúsund manns til að sjá myndina hér innanlands, en við myndum nú ekki láta þar við sitja þó slíkt tækist, heldur höfum við alltaí stefnt að því að dreifa myndinni á erlendum markaði, ekki bara af fjárhagslegum ástæðum heldur einnig vegna þess að við teljum að efni þessarar kvikmyndar eigi brýnt erindi við íólk almennt í heiminum. Svo verður 1 íka að taka með í reikninginn að talsverður hluti kostnaðarins er tilkominn vegna erlendu útgáfunn- ar af myndinni. Ef við hefðum einungis stefnt á íslenskan markað hefði myndin orðið a.m.k. tuttugu ef ekki þrjátíu prósent ódýrari. SP: Nú hefur ekkert gengið of vel að selja íslenskar myndir erlendis. Hvernig hyggistþið koma Atómstöðinni á markað? Ö: Nú, það eru náttúrlega ýmis ráð tii að koma myndinni á markað, en ég vildi nú fyrst svara þessu þannig að efnið, þ.e. skáldsaga Halldórs Laxness, hefur verið gefin út í á þriðja tug landa og í sumum þessara landa hefur hún komið út í 15-17 skipti og allt frammá síðustu ár. Sömuleiðis fjallar Atómstöðin um efni sem er á hvers manns vörum þetta árið og ágerist enn, þ.e.as. hættu á atómstyrjöld og því vandamáli sem litlar þjóðir standa frammi fyrir þegar þau þurfa að taka afstöðu til ágangs stórveldanna, þannig að við vonumst til að efni myndar- innar hafi meiri slagkraft heldur en hingað til hefur verið í okkar myndum og nú er ég ekkert að leggja dóm á gæði myndanna í sjálfu sér. En varðandi það hvað við höfum gert fyrir utan það að velja þetta efni, þá get ég nefnt að við tókum snemma þá ákvörðun, þegar okkur var ijóst umfang verkefnisins, að gera ráðstafanir til að reyna að tryggja að útlendingar gætu notið myndarinnar. Og þá tókum við semsagt þá ákvörðun að gera myndina í tveimur útgáfum og láta þá íslenska leikara tala ensku í annarri útgáfunni. SP: Þáttur erlendra aðila? Ö: Við erum ekki með neina erlenda fjárfestingu í myndinni. Við gerðum nú nokkuð til þess á tímabili, sérstaklega þegar við vorum orðnir nokkuð hræddir um að okkur myndi reynast ókleift að hrinda bátnum úr vör, að reyna að íá erlenda aðila til að leggja fé í fyrirtækið og sjá þá væntanlega um erlenda dreifingu í leiðinni. Við vorum næstum búnir að fá Bresku Kvikmyndastofn- unina til að láta okkur hafa u.þ.b. helminginn af fram- leiðslukostnaðinum, en á síðustu stundu strandaði málið á því að þeir vildu að við notuðum að einhverju leyti 12 MYNDMÁL

x

Myndmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.