Land & synir - 01.04.2002, Page 3

Land & synir - 01.04.2002, Page 3
Kvikmyndaskólinn fiyturígamia Sjónvarpshúsið Við sögðum frá því í síðasta blaði að stúdíó.is væri líklega að hætta starfsemi og að sennilega yrði hinu sögufræga myndveri Sjónvarpsins að Laugavegi 176 fengið annað hlutverk. Nú höfum við hinsvegar frétt að til standi að Kvikmyndaskóli íslands, með Böðvar Bjarka Pétursson í broddi fylkingar, hyggist taka aðstöðuna yfir sem og rýmið sem áður hýsti myndbandadeild Sjónvarpsins. Kvikmyndaskólinn hefur haldið úti öflugri starfsemi um nokkurra ára skeið og hefur Sigurjón Baldur Hafsteinsson verið ráðinn skóla- stjóri og Lárus Ýmir Óskarsson kennslustjóri. Böðvar Bjarki verður áfram helsti forsprakki skólans en hyggst einbeita sér að rekstri kvik- myndafyrirtækis síns, 20 geitur. Fyrirtækið mun brátt frumsýna hina umtöluðu heim-ildarmynd “I skóm drekans” og stefnt er að því að taka upp aðra bíómynd fyrirtækisins í sumar, en eins og lesendur muna eflaust sendi 20 geitur frá sér kvikmyndina “Gæsapartí” sl. haust. Þess ber og að geta að ætlunin er að leigja stúdíóið áfram út til stakra verkefna, þrátt fyrir starfsemi Kvikmyndaskólans. I I I I I I I I Mánaðarlegir mán udagsfundir |""élag kvikmyndagerðarmanna hefur hleypt af 1“ stokkunum mánaðarlegum fundum þar sem I fjallað er um ýmsar hliðar kvikmynda- gerðar. Fundirnir eru haldnir á efri hæðinni f Húsi málarans og hefjast klukkan átta fyrsta mánudag í hverjum mánuði. Fyrsti fundurinn var haldinn mánudaginn 4. mars og þarvartil umræðu kvikmynda- gerð á Digital Video. Böðvar Bjarki Pétursson sagði frá vinnslu Gæsa- partís og Róbert Douglas sagði frá reynslu sinni af gerð myndanna íslenski draumurinn og Maður eins og ég. Sigvaldi Kárason klippari ræddi um vanda klipparans sem oft er ærin, sérstaklega ef undirbúningur verka er lélegur. Þá sýndi Ágúst Jakobsson brot úr nýrri mynd um Eldborgarhátíð- ina. Fundurinn var fjölsóttur og spunnust töluverðar umræður (kjölfar framsöguerinda. Fundarstjóri var Jón Karl Helgason. Mánudaginn 8. apríl er ætlunin að skoða stuttmyndagerð á íslandi. Kristln Pálsdóttir frá Stutt- og heimildarmyndadeild Kvik- myndasjóðs mun kynna sam- keppni um gerð stuttmynda sem fram fer (sumar og sfðan VANDRÆDA EEMSAR: Sigvaldi Kára- son, sem m.a. klippti "Eemsa" (mynd) Mikaels Torfasonar, tók menn á beinið á nýlegum mánudagsfundi vegna slælegs undirbúnings ódýrra stafrænna mynda. munu nokkrir kvikmyndagerðarmenn sem starfa við stuttmyndir, heima og erlendis, sýna verk sín og ræða um formið, vinnuaðferðir og vinnuumhverfi stuttmyndagerðarmanna. Mánudaginn 6. maí verður sýnd ný heimildarmynd eftir Hákon Má Oddsson og Ara Halldórsson sem nefnist Samræða um kvikmyndir. í myndinni ræða þeir Ari Halldórsson og Þorgeir Þorgeirson, heiðurs- verðlaunahafi (slensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar árið 2000, um nokkur grundvallar hugtök og viðfangsefni klassískrar kvikmyndasögu með tilvitnunum í verk Þorgeirs. Eftir sýningu mynd- arinnar, sem er 46 mínútna löng, er ætlunin að halda áfram samræðu um kvikmyndir með Þorgeiri og fleiri kvikmyndagerðarmönnum og leggja út af umræðuefnum myndarinnar. Kvikmyndagerðarmenn eru hvattir til að koma til þessara mánudagsfunda, fylgjast með í faginu, taka þátt f skoðanaskiptum og hitta félagana. Aðalfundur SÍK lýsir óánægju með nýjustu úthlutun Kvikmyndasjóðs r Aaðalfundi SÍK, sem haldinn var þann 16. mars s.l. kom fram mikil óánægja með starfshætti og forsendur úthlutunar Kvikmyndasjóðs fyrir árið 2002. Var sérstaklega talað um tvennt í því sambandi, annars vegar þá ákvörðun úthlutunarnefnda 2000 og 2001 að virða ekki samkomulag ríkis og kvik- myndagerðarmanna um að fjármagn skuli lagt í fimm myndir á ári og að meðaltali 40 milljónir í hverja. Hins vegar að umsækj- endum skuli úthlutað allt niður f 12.5% af þeirri upphæð sem þeir sóttu um og töldu vera nauðsynlega forsendu fyrir fram- leiðslu myndarinnar og að um úthlutanir hafi verið tilkynnt opinberlega áður en framleiðendum gafst tækifæri til að þiggja eða hafna boði úthlutunarnefndarinnar um aðrar upphæðir en þær sem sótt var um. Einnig kom fram að það væri með öllu óskiljanlegt afhverju úthlutunarnefnd tók þá ákvörðun að hunsa 5 mynda regluna og á þann hátt lækka hlutfall Kvikmynda- sjóðs í framleiðslukostnaði þeirra mynda sem þeir styrktu þrátt fyrir að samkomu- lagið kveði á um hærra hlutfall. Þetta þótti stangast á við almennan skilning manna á þeirri þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum árum í möguleikum fslenskra framleiðslufyrirtækja til fjár- mögnunar. Aukinheldur þóttu þessar starfsaðferðir hafa haft í för með sér opinbera auðmýkingu framleiðenda og stefna rekstrargrundvelli fyrirtækja þeirra í hættu. Fundurinn samþykkti eftirfarandi: “Því er hér með vísað til stjórnar að leggja til að hlutfall styrkja Stuttmynda og heim- ildarmyndasjóðs til framleiðslukostnaðar sé hækkaður og að lagt sé til að úthlutun- arnefnd Kvikmyndasjóðs íslands virði og framfylgi stefnu samnings kvikmynda- gerðarmanna og ríkisins frá 1998 hvað varðar upphæðir og fjölda þeirra mynda sem veitt er framleiðslustyrkir.” Frekari upplýsingar um aðalfund SÍKer að finna á www.producers.is. Truffaut-hátíð í Regnboganum og Sjónvarpinu I^apríl efnir Sjónvarpið til Fran^ois Truffaut-hátíðar í sam- vinnu við Góðar stundir, Regnbogann, Alliance Francaise og franska sendiráðið. Fjórar myndir þessa franska meistara verða sýndar í Regnboganum og fimm í Sjónvarpinu, á sunnudagskvöldum í apríl og fram í maí. Opnunarmynd hátíðarinnar var Les 400 coups (1959), íýrsta bíómynd Truffaut og var hún frumsýnd í Regnboganum laugardaginn 6. apríl að viðstaddri dóttur meistarans, Evu Trauffaut. Sunnudaginn 7. apríl var haldið mál- þing um Truffaut og þá um kvöldið var íýrsta myndin af fimm sýnd í Sjónvarpinu, Jules et Jim (1961). Að öðru leyti verður dagskráin sem hér segir. I Regnboganum 6.-12. apríl: Les 400 coups (400 högg), Le dernier metro (Síðasta lestin 1980), L’argent depoche (Vasapeningar 1976) og L’homme qui aimait lesfemmes (Maðurinn sem elskaði konur 1977). I Sjónvarpinu 7. apríl til 6. maí: Les 400 coups, Tirezsurle pianiste (Skjótið píanóleikarann 1960), Jules et Jim, La nuit américaine (Kvikmyndanætur 1973), L'argent depoche, L'homme qui aimait lesfemmes og Le Dernier Métro. LAND&SYNIR 3

x

Land & synir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.