Land & synir - 01.04.2002, Síða 4

Land & synir - 01.04.2002, Síða 4
.......................................................... Ævintýri Pawel Gula Árni ÓlafurÁsgeirsson spjaiiar ivið hinn pólska tökumann kvikmyndarinnar “Maður eins og ég” Pawel Gula heitir pólskur kvikmynda- ' tökumaður sem kom hingað til lands í fyrrahaust og tók upp “Mann eins og mig” Róberts Douglas. Meðhandritshöf- undur Róberts og aðstoðarleikstjóri myndarinnar, Árni Ólafur Ásgeirsson, sem hefur nýlokið námi í kvikmynda- leikstjórn við Kvikmyndaskólann í Lodz í Póllandi, spjallaði við kappann fyrir Land & syni. ÁÚÁ: Hversvegna valdirðu kvikmyndatöku? PW: I byrjun vilcíi ég að sjálfsögðu verða leik- stjóri en skipti fljótt um skoðun er mér gafst færi á að fylgjast með Kaminski og Spielberg á tökustað. Þá skildi ég að kvikmyndataka er bæði tæknilegri og um leið áþreifanlegri en leik- stjórn. Maður veit einhvernveginn betur hvað maður er með í höndunum og ég komst að þeirri niðurstöðu að ég myndi líklega læra meira um innviði kvikmyndagerðar yfir höfuð með því að nema töku. Því oftar sem ég fékk tækifæri á að fylgjast með gerð mynda því sannfærðari varð ég um að takan væri fyrir mig. Bæði er það skemmtilegt og svo skemmdi ekki fyrir hégómagirndinni að tökumaðurinn er mest áberandi á tökustað. ÁÓÁ: Hvernig í ósköpunum stóð á því að þú fékkst aðfylgjast með Kaminski og Spielberg? PW: Með einskærri heppni. Það æxlaðist þann- ig að fyrsta mynd sem ég sá gerða var um leið stærsta mynd sem gerð hefur verið í Póllandi, Schindler's List. Ég bjó þá í Kraká og stundaði nám í kvikmyndafræðum við háskólann þar í borg. Ég var nú ekkert sérstaklega góður nem- andi því ég var algjör bíófíkill. Við höfðum afsláttarmiða í öll bíóhúsin í borginni þannig að ég mætti mjög illa í tíma, ég sat bara í bíó frá morgni til kvölds. Við vinirnir fréttum að Spielberg væri að undirbúa mynd í Kraká þannig að við fórum að sjálfsögðu í statista prufur fyrir myndina í þeirri von um að fá að gæjast bak við tjöldin þó ekki væri nema í einn dag. Það mætti hundruðir í prufu en lukkan var með mér og ég komst í gegnum fyrstu sigtun, ógurlega glaður. En þá gerðist kraftaverk. Spiel- berg kom og valdi mig ásamt nokkrum fleirum til að leika hina svokölluðu “fjölskyldu Schindlers” og gegnum allar tökurnar var ég í bakgrunni Ben Kingsley. Á þennan hátt kynnist ég síðan Janusz Kaminski og af einhverjum ástæðum leist honum vel á mig og leyfði mér, einum manna, að taka ljósmyndir á tökustað og PAWEL VIB TÖKURÁ “MABUR EINS Ofi ffi”: "Kannski er flóðbylgja í augnablikinu af vondum myndum gerðum af amatörum, en kannski gefur það einhverjum bæfileikaríkum einstakling tækifæri á að koma sinni sögu á framfæri, sem hann hefði ekki fengið að öðrum kosti. Margir afbestu leikstjórum sögunnar kláruðu aldrei skóla. ” fylgjast með tökum meira að segja þegar ég var ekki að leika. Undir lokin var þetta orðið mjög skondið, því þá bauð hann mér upp að altarinu, þ.e. mónitornum og þar sátum við, Spielberg með aðstoðarmanni sínum, Kaminski og ég. ÁÓÁ: Varstu semsagt viðriðin Ijósmyndun? PW: Já, á sama tíma vann ég fyrir mér sem ljósmyndari þ.e.a.s. ég vann fyrir PAP (The Polish Press Agency). Það er önnur undarleg tilviljun sem réði því. Ég hafði frétt af ljós- myndasamkeppni á þeirra vegum og skráði mig til þáttöku. Daginn sem ég mætti í keppnina sá ég strax eftir þeirri ákvörðun, því þar voru saman komnir einir hundrað ljósmyndarar og sumir hverjir höfðu fengið myndir sínar birtar í tímaritum á borð við Time og Newsweek. í þessum hópi stóð ég með nokkrar amatör myndir í höndunum og langaði að flýja, en það varð ekki aftur snúið. Við vorum fimm sem fengum vinnu og ég skil ekki enn í dag hvers- vegna ég var einn af þeim. ÁÓÁ: Því ncest skólinn í Lodz? PW: Ég hafði sótt um tvisvar áður en nú var ég kominn með ágæta möppu eftir vinnuna hjá PAP og eftir ævintýri Schindler's List mætti ég í inntökuprófið fullur sjálfstrausts. Það þurfti ekki að spyrja að leikslokum, ég féll aftur út í fyrsta umgangi. ÁÓÁ: Geturðu sagt okkur aðeinsfrá þér ogPiotr? PW: Piotr Sobocinski hitti ég fyrst á Camer- image (alþjóðleg kvikmyndahátið tileinkuð kvik- myndatöku og er haldin í lok nóvember ár hvert í borginni Lodz (www.camerimage.pl) - innsk. ÁÓÁ). Hann var þá tökumaður Kieslowski og þeir komu til að sýna Rauðan. Á blaðamanna- fundi eftir sýninguna spurði ég hann allra mögulegra tæknilegra spurninga og þannig mundi hann eftir mér er ég nálgaðist hann eftir fundinn. Hann spurði mig strax hvort ég ætlaði að sækja um skólann. Ég sagðist hafa sótt nógu oft um þennan blessaða Lodz skóla og nú vildi ég reyna að finna skóla í Bandaríkjunum. Hann ýtti á mig að sækja samt aftur um í Lodz. Á hátíðina þetta árið komu margir af fremstu tökumönnum heims, Storaro, Wexler, Zsig- mond og Hall. Ég hafði kynnst Conrad Hall nokkrum dögum áður og hann hafði náð að kveikja í meiri áhuga hjá mér á tökum en nokkru sinni fyrr. Ég vissi að ég yrði að komast í einhvern skóla, sama hvað það kostaði. I kjölfarið hafði Hall lofað mér að kanna fyrir mig skóla fyrir vestan. Tveimur vikum síðar fór ég til að taka myndir fyrir blaðagrein um pólsk- ungverska mynd The Seventh Room sem var mjög stór mynd á pólskan mælikvarða. Ég mæti á tökustað og bak við kameruna situr enginn annar en Piotr. Hann kallar mig til sín og spyr mig hvort ég vilji hanga nokkra daga á setti; “kannski lærirðu eitthvað”. Nokkrum dögum síðar mæti ég á tökustað með ljós- myndamöppuna mína til að sýna Piotr. Hann fletti fljótt í gegnum hana án þess að segja orð. Aðstoðarmaður hans var ungur gæi, nýút- skrifaður frá Lodz, og hann spyr mig hvort ég eigi við einhverjar sjóntruflanir að stríða, myndirnar séu ónýtar og ég geti gleymt því að gerast tökumaður. í lok dags kemur Piotr svo aftur til mín og segist loksins hafa tíma, nú skuli hann líta aftur á möppuna. Við setjumst niður og hann flettir rólega og vandlega í gegn og segir svo; “kæri vinur, í gær fékk ég að vita að ég er útnefndur til Óskarsverðlauna (fyrir Rauðan), það er mjög mikill heiður og draumur hvers tökumanns, en þú ert með nokkrar myndir hér sem ég myndi aldrei geta sagt hvernig þú lýsir”. Ég efast um að það sé rétt en meiri innblástur hefur engin veitt mér, hvorki fyrir né síðar. ÁÓÁ: Hvað svo? PW: Ég fylgdist með tökum til enda og Piotr skipaði mér nánast að sækja aftur um Lodz, en 4 LAND & SYNIR

x

Land & synir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.