Land & synir - 01.04.2002, Qupperneq 8
....................smm.......................
Dansandi og syngjandi Regína
Hákon Gunnarssonjjallar um samnefnda dans- ogsöngvamynd Maríu Sigurðardóttur
ogmátarhana inníhefðirþessarar ástsœlu, en nœrútdauðu, kvikmyndagreinar
Frumsýning myndarinnar Regínu (María
Sigurðardóttir, 2002) skapar nokkur
tímamót í íslenskri kvikmyndasögu því
að vissu leyti er hún íyrsta íslenska dans- og
söngvamyndin. Vissulega má telja Með allt á
hreinu (Ágúst Guðmundsson, 1982) til þeirrar
greinar líka, en einkenni greinarinnar koma
ekki eins sterkt fram í
þeirri mynd og raunar
fer það eftir því hversu
afmarkandi skilgrein-
ingu á greininni er
notuð hvort hún
flokkast með eða ekki.
Regína fjallar um
samnefnda stelpu
(Sigurbjörg Álma Ing-
ólfsdóttir) sem upp-
götvar að hún getur
fengið menn og dýr til
að gera það sem hún
vill með því að syngja
fyrir þau. Galdur
Regínu virkar best
þegar hún fær hjálp frá
Pétri vini sínum
(Benedikt Clausen),
því hún getur sungið
en hann rímað. Hana
langar til þess að
komast í sumar-
búðirnar Regnboga-
landið, en Margrét, mamma hennar (Halldóra
Geirharðsdóttir), hefur ekki efni á að senda
hana. Þá dettur Regínu í hug að reyna að koma
mömmu sinni og Atla (Björn Ingi Hilmarsson),
sem er pabbi Péturs, saman. Inn í þær fyrir-
ætlanir blandast svo alþjóðlegi skartgripa-
þjófurinn Ivar (Baltasar Kormákur) sem Regína
gómar með hjálp vinar síns.
Hver með sínu lagi
Gullöld dans- og söngvamynda stóð á fyrri
helmingi síðustu aldar. Oft er miðað við 1927
sem upphaf hennar, vegna tilkomu hljóðsins og
frumsýningar The Jazz Singer (Alan Crosland,
1927). Talið er að henni hafi lokið um miðjan
sjötta áratuginn, um svipað leyti og öld
sjónvarpsins hófst. Það koma einstaka myndir
eins og Everyone Says I Love You (Woody Allen,
1996), Dancer in the Dark (Lars von Trier, 2000)
og Moulin Rouge (Baz Luhrmann, 2001), en þær
eru fremur fátíðar síðustu ár. Helst eru það
Disney teiknimyndir, The Little Mermaid (John
Musker og Ron Clements, 1989), Mulan (Barry
Cook og Tony Bancroft, 1998) og fleiri, sem
hafa haldið þessu formi á lofti undanfarið.
Dans- og söngvamyndir geta verið mjög ólíkar
síður um þessar tvær listgreinar og upplifunina
af þeim.
Ein leið til að skipta þeim upp í hópa er út frá
því hvernig dansinn og söngurinn birtist í
viðkomandi myndum. I baksviðssöngleiknum
svokallaða er oft verið að setja upp sýningu, svo
dansinn
SÖNBUR 0E DANS: “Sagt hefur verið að tians- og
söngvamyndir séu ein sjálfhverfasta kvikmyndagreinin
þvíhún fjalli alltaf um sjálfa sig. Hvort sem það er rétt
eða ekki, þá vísar Regína mikið til annarra myntia innan
sömu greinar”, segirHákon Eunnarsson meðal annars.
MYNDIR FRÁ VINSTRI: Regína (Sigurbjörg Alma
Ingólfsdéttir) og Pétur (Benedikt Clasuen) verða að finna
uppá einhverju skemmtilegu fyrst þau fá ekki að fara í
Regnbogalanti; ofsakátir krakkar á leið í Regnbogalandið;
skartgripaþjófurinn ívar (Baltasar Kormákur) og Katrín
(Sólveig Arnarstiéttir) samverkakona hans.
eins og upptalningin hér að ofan ber með sér.
Nokkuð gróf skilgreining á þessari kvikmynda-
grein gæti verið að í myndunum sem flokkast til
hennar hafi dansinn, söngurinn eða hvoru
tveggja mikið vægi fyrir fléttuna. Tónlistin
hefur þá ekki eingöngu vægi sem aðferð til þess
að skapa dramatíska spennu eins og kvik-
myndatónlist, heldur oft líka til að segja söguna.
Myndirnar sýna dans og söng, en fjalla ekkert
og songurinn er
skýrður með henni.
Það er verið að æfa
eða leika verk sem kallar á sönginn og þar með
er hægt að halda ákveðnum raunveruleika-
tengslum; þetta á til dæmis við um myndina
42nd Street (Lloyd Bacon, 1933) sem hefur verið
talinn erkitýpíski baksviðssöngleikurinn. Að
vissu leyti á þetta líka við um Með allt á hreinu
þar sem hljómsveitirnar spila og syngja aðallega
á tónleikum. Svo eru það myndir þar sem
samtöl, dans og söngur hafa sama vægi innan
framvindu sögunnar. Þetta á til dæmis við um
Mary Poppins (Robert Stevenson, 1964) og West
Side Story (Robert Wise og Jerome Robbins,
1961).
Söngurinn seyðir
I myndinni Regína er mamma aðal-
persónunnar að setja upp sýningu á elli-
heimilinu Sólborg þar sem hún vinnur og því
mætti kannski telja hana til einhvers konar
8 LAND & SYNIR