Land & synir - 01.04.2002, Síða 11

Land & synir - 01.04.2002, Síða 11
anna sem verða valin sé sú sama og tekju- skipting heimilanna í landinu eða að hlutfall heimila í úrtakinu með áskrift að Stöð 2 verði það sama og hlutfall heimila í landinu sem eru með áskrift að Stöð 2. Eftir að heimilin 300 hafa verið valin þarf að koma tækinu fyrir. Áhorf á öll sjónvarpstæki á heimilinu er mælt svo hvert heimili fær oft tvö eða fleiri tæki. Það verður svo í verka- hring Gallup að halda utan um hópinn, bæta við heimilum fyrir þau sem hætta þátt- töku, umbuna þeim sem taka þátt og gæta þess að áhorfíð sé rétt skráð. Þessi viðhalds- og eftir- litsvinna er mikilvæg til að tryggja gæði gagnanna. Eins og áður sagði mælir People meter allt áhorf á heimilinu allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þegar rafrænar mælingar verða komnar í gagnið hér á landi munu íslenskar sjónvarps- stöðvar og auglýsendur því fá mun tíðari og ítarlegri uppýsingar um áhorf en nú. Áhorfs- tölur munu berast vikulega eða jafnvel daglega í stað þess að berast tvisvar til fjórum sinnum á ári. Áður en verkefnið fer á skrið og gögnin hellast yflr markaðinn af fullum þunga þurfa auglýsendur að þjálfa sína birtingaráðgjafa og rannsóknafólk í meðferð þessara gagna. Miðlar þurfa að þjálfa sitt rannsókna- og sölufólk. Sú fjárfesting ætti að tryggja ,að gögnin verði nýtt á réttan og skynsamlegan hátt. Betri upplýsingar Ef rétt er á spöðum haldið munu gögnin gera auglýsendum kleift að nýta auglýsinga-fé sitt betur en nú. í dag er erfitt eða ógjörningur að áætla fjölda áreita (áhorfendur) sem auglýsing fær því áhorfið er sjaldan mælt. People meter skráir hins vegar áhorf á auglýsingar og því munu auglýsendur geta keypt ákveðinn fjölda áreita og auðvitað ekki kaupa fleiri áreiti en þörf er á. Hinum megin við borðið sitja sjónvarps- stöðvarnar mun upplýstari en áður um eigin söluvöru, þ.e. áhorf. Báðir aðilar, kaupendur og seljendur, ættu því að eygja tækifæri með tilkomu rafrænna mælinga á sjónvarpsáhorfi. Sjónvarpsstöðvar munu fá ítarlegri upp- lýsingar en áður um áhorf og þar af leiðandi öðlast meiri vitneskju um hvað í dagskránni gengur vel og hvar má gera betur. Það breytir einnig miklu að áhorfstölur munu berast jafnvel strax daginn eftir. Nú er oft beðið í margar vikur eða mánuði eftir fyrstu áhorfstölum á nýjan þátt. Þangað til þær berast er lítið vitað um hvort hann nýtur vinsælda eða ekki. Rafrænar mælingar munu því nýtast vel sem dagskrárstjórnunartæki. Erfitt er að spá fyrir um hvenær rafrænar mælingar á sjónvarpsáhorfi hefjast hér á landi. Aðilar á sjónvarps- og auglýsingamarkaði eru orðnir langþreyttir eftir betri mælingum á sjónvarpsáhorfi og því má segja að viljinn sé vissulega fyrir hendi. Kostnaðurinn stendur hins vegar í sumum enda er hann nokkuð hár. Aukin áhersla á fagleg vinnubrögð þeirra sem standa að birtingum auglýsinga og aukin samkeppni á milli sjónvarpsstöðva ætti að vera lóð á vogarskálar þeirra sem vilja bæta gæði sjónvarpsmælinga og taka upp rafrænar mæl- ingar á sjónvarpsáhorfi. Breytingar eru því í sjónmáli. Höfundur er markaðsrannsóknarstjóri hjá Norðurljósum hf “Ef rétt er á spöðum haldið munu gögnin gera auglýsendum kleift að nýta auglýs- ingafé sitt betur en nú. [...] Sjónvarps- stöðvar munu fá ítarlegri upplýsingar en áður um áhorf og þar af leiðandi öðlast meiri vitneskju um hvað í dagskránni gengur vel og hvar má gera betur.” W2K til nú þegar osx íjúni2002 Camson www.camson.is Avid Xpress® DV Release 3.0 hátún 6a, 105 reykjavík camson@camson.is Sími: 512-1200 fax: 512-1201 ma/<e manage move / media" Avid Allt aö og þo að LANO & SYNIR 11

x

Land & synir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.