Land & synir - 15.04.2002, Blaðsíða 4
MYNDIR FRA EUROPEAN DOCUMENTARY FILM FESTIVAL
SPÁNN - OPNUNARMYND HÁTÍÐARINNAR
En construcción / í byggingu
2001 - Stjórn: José Luis Guerín
MyBdin fékk þrenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í San
Sebastian í fyrra og var líka fagnað mjög af áhorfendum.
Höfundurinn tók efni í hálft annað ár í litlum bæjarhluta í
Barcelona sem nefnist E1 Chino. Rífa átti fjölda gamalla húsa og
reisa ný. Verkamenn strita, kærustupör krækjast saman, gamlir
karla kjafta og börn leika sér. En myndin byggist ekki bara á
heimildarmyndskeiðum. Sköpuð voru atriði þar sem persónur
úr hverfinu”leika” sjálfar sig. Myndin teygir á hugtakinu
”heimildarmynd”, - hún lýgur ekki, en er skipulögð þannig að
höfundurinn er ekki bara þiggjandi heldur fær það sem hann
vill. Jafnframt var lagður mikill metnaður í að myndin væri ”vel
gerð”, hún er glæsileg, alþýðleg, stór - ekki tekin handhelt.
2:05 klst. 35mm
• ••••••<>•••••••••••••••••••••••■•
ÞÝSKALAN D
Henker - Der Tod Hat Ein Gesicht /
Böðlar - dauðinn er með ásjónu
2001 - Stjórn: Jens Becker & Gunnar Dedio
Myndin fjallar um dráp og sjö ólíka menn sem eiga það
sameiginlegt að vera böðlar. Einn þeirra valdi starfið af áhuga og
fetaði þar í fótspor föður síns, annar var neyddur til starfsins
meðan hann var í einangrunarbúðum, sá þriðji tók af tilviljun
þátt í aftökunni á rúmensku Ceausescu einræðishjónunum, sá
fjórði hefur kyrkt fólk með höndunum og segist vera “náttúru-
talent” í faginu. Þetta er óhugnanleg en afskaplega fróðleg mynd
sem veitir sýn inn í lokaðan heim og langa hefð sem enn er við
lýði.
1:20 klst. 35mm.
LETTLAND
Egglady / Eggjafrú
2000 - Stjórn: Una Celma
Myndin fjallar um listina að stúta eggjum. I afkima stórrar
kökuverksmiðju situr eggjafrúin og brýtur egg, um og yfir 3000
stykki á dag. Stundum þarf að skilja hvítuna frá rauðunni og
stundum á að blanda þeim en alltaf situr hún ein. Á 20 ára
brotaferli sínum í verksmiðjunni hefur hún haft góðan tíma til
að hugsa um smáar og stórar ráðgátur lífsins. Með athugunum
hennar kynnumst við í grófum dráttum landi og sögu sem taka
stöðugum breytingum og notaðar eru blaðaúrklippur til að
bregða ljósi á málin.
30 mín, 35mm.
4 LAHD & SYNiR