Land & synir - 15.04.2002, Blaðsíða 13
®#«#®###®#®#{§#®#®###«®###
ÍSLAND
Samræða um kvikmynd
2002 - Stjórn: Ari Halldórsson, Hákon Már Oddsson
Þorgeir Þorgeirson (f. 1933), heiðursverðlaunahafi Islensku
kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar árið 2000, ræðir um
kvikmyndagerð, eigin feril og sparifataþjóðina. Þorgeir vann hjá
franska sjónvarpinu í París 1956-57 og stundaði nám í kvik-
myndagerð við FAMU í Prag í Tékkóslóvakíu 1959-62. Hann var
fyrsti íslendingurinn sem hafði kvikmyndagerð að aðalstarfi og
gerði hér rúman tug mynda á árunum 1962-72. Sýnd eru atriði
úr þessum heimildarmyndum hans: Maður og verksmiðja,
Grænlandsflug, Að byggja og Róður. Þorgeir hefur um skeið
bannað sýningar á öllum verkum sínum nema Manni og
verksmiðju.
50 mín. DV.
ÍSLAND
ísaldarhesturinn
2002 - Stjórn: Páll Steingrímsson
ísaldarhesturinn fjallar um uppruna og sögu íslenska hestsins.
Ef bornar eru saman teikningar í mannvistarhellum frá ísöld í
Frakklandi og íslenskur hestur í vetrarhárum, dylst engum að
þarna er sama dýrið lifandi komið. Landnámsmenn fluttu
hestinn með sér til íslands, þar einangraðist hann og hefur ekki
blandast öðrum hestakynjum síðan. Með honum þróuðust
eiginleikar sem eru einstæðir með hestum í dag. Saga hestsins er
að mörgu leyti samofm sögu þjóðarinnar, þrengingar og
blómatími endurspeglast í kjörum og aðbúnaði hestsins.
52 mín. Beta.
ÍSLAND
Who Hangs The Laundry? Washing, War and
Electricity in Beirut / Hver hengir upp þvottinn?
Þvottur, stríð og rafmagn í Beirút
2002 - Stjórn: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Á þvottadegi hittir Hrafnhildur (Hrabba) Gunnarsdóttir fyrir
tilviljun mannréttindafrömuðinn Tina Naccache þar sem þær
búa í sama húsi í Beirút í Líbanon. Vatn og rafmagn skortir og
Tina sýnir Hrafnhildi aðferðirnar og tjáir sig um leið um femín-
isma, stríð og þjónustu. Þessi arabíska kona er vel máli farin og
passar elcki inn í staðlaða ímynd, er ekki með slæðu eða höfuð-
klút, ekki fórnarlamb, ekki að skammast út í óvini - heldur segir
frá afleiðingum stríðsins. Tina segir að versta stríðsástandið
hefjist þegar stríði er lokið.
20 mín. DV.
LAND & SYNIR 13