Land & synir - 15.04.2002, Blaðsíða 14

Land & synir - 15.04.2002, Blaðsíða 14
HEIMILDAR f!fl ÍSLAND ■ Takk, mamma mín 2001 - Stjórn: Þorsteinn J. Takk, mamma mín er einskonar ferðalag Ingibjargar Þor- steinsdóttur sem liggur banaleguna og sonar hennar, Þorsteins J. Það er komið að ferðalokum hjá henni og Þorsteinn dregur upp viðtalsbrot og svipmyndir af ferðalagi þeirra gegnum lífið. Hann tengir það jafnframt sínu eigin ferðalagi um heiminn, til Norðurpólsins, Yerevan, Liverpool, og Las Vegas. Myndin er í raun og veru stutt kveðja til móður hans, eitt íjögura stafa orð, takk. 20 mín. DV. ÍSLAND Lokinhamrar 2001 - Stjórn: Sigurður Grímsson og Angelika Andrees Eftir að nágrannakona hans féll frá er Sigurjón bóndi á Lokin- hömrum orðinn einn eftir í dalnum sínum. I myndinni er fylgst með störfum bóndans á þessum afskekkta stað á Vestfjörðum þar sem tíminn hefur nánast staðið kyrr og búskaparhættir eru um flest eins og þeir voru á árum áður. I um hartnær tvö ár fylgjumst við með Sigurjóni við bústörfin. Heyskap að sumri, smalamennsku að hausti .gegningum að vetri og sauðburði að vori þegar náttúran vaknar til lífsins eftir veturinn. En Sigurjón bóndi stendur frammi fyrir örlagaríkri ákvörðun. Getur hann verið einn áfram í dalnum, eða verður hann að bregða búi og yfirgefa allt það sem honum er kærast? 65 mín. Beta. •••••••••••••••••••••••••••••••«•••••••••••••••••••••• Nordisk Panorama - 5 Cities Film Festival Árósum, Danmörku, 18.- 23. september 2001 Nordisk Panoramahátíðin var haldin í 12. sinn í Árósum. Hún er helsti vettvangur fyrir samfundi, viðkynningu og þróun samstarfs þeirra sem fást við stutt- og heimildar- myndagerð á Norðurlöndum og eins og venjulega var aðaláherslan á keppni stutt- og heimildarmynda frá norðurlandaþjóðunum Danmörku, Finnlandi, íslandi, Noregi og Svíþjóð. Alls voru 34 stuttmyndir og 19 heimildarmyndir í keppninni. Einnig voru sýndar utan keppni evrópskar stutt- og heimildarmyndir, haldin málþing og fundir, Nordisk Panorama Market og Noraisk Forum. Hátíðin hefur undirtitilínn “5 Cities Festival” sem vísar til borganna fimm sem skiptast á um að hýsa hana, Árósa, Bergen, Oulu, Malmö og Reykjavíkur. Á hverju ári eru svo nokkrar af myndunum sýndar í hverri borg fyrir sig á Mini Panorama. HEIMILDARMYNDIR Besta narrœna heimildarmyndin: “Joutilaat” (Hin iðjulausu) eftir Virpi Suutari og Susanna Helke, Finnlandi. Sérstakar viðurketmingar dómnefndar: "Mormor, Hitler och jag” eftir Carl Johan De Geer, Svíþjóð. ”Blatnoi mir” eftir Jouni Hittunen, Finnlandi. ”Notater om tavshed” og “Radioeolket” eftir Dorthe Hoeg Brask, Danmörku. STUTTMYNDIR Besta norrœna stuttmyndin: ”Tónlist fyrir eina ÍBÚÐ og SEX trymbla” eftir Ola Somonsson og Johannes Stjarne Nilsson, Svíþjóð. Sérstakar viðurkenningar dómnefndar: ”Pizza Passionata” eftir Kari Juusonen, Finnlandi og ”Hormoner og andre demoner” eftir Sara Johnsen, Noregi. ÖNNUR VERÐLAUN Áhorfendaverðlaunin: ”Heftig og begeistret” eftir Knut Erik Jensen, Noregi. Kodak-verðlaunin: ”Lev vel” eftir Morten Boesdal Halvorsen, Danmörku 14 LAND&SYNIR

x

Land & synir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.