Land & synir - 15.04.2002, Blaðsíða 11
“MINI ” - NORDISK PANORAMA:
Blatnoi Mir / Blatnoi Mir
2001
Gömul klausturbygging á miðri rússnesku sléttunni (tægunni)
er notuð sem fangelsi fyrir lífstíðarfanga. í myndinni er sýnt
hvernig þrjár aðalpersónur hennar fmna mismunandi leiðir til
að þrauka af. Það sem þeir eiga sameiginlegt er að enginn þeirra
mun nokleru sinni yfirgefa þessa fangelsiseyju.
Leikstjóri: Jouni Hiltunen (f. 1964). Hann lauk námi við
Rovanieme list- og handiðnaðarskólann og hefur stundað margs
konar störf innan sjónvarps og kvikmynda, m.a. sem leikstjóri
og klippari og gert þrjár aðrar heimildarmyndir.
Sérstök viðnrkenning dómnefndar.
84 mín. 35 mm.
• a • • •
••••••••••••
SVÍÞJÓÐ
Vem bryr sig! / Hverjum er ekki sama?!
2000
Árið 1999 fluttu nasistar í Þjóðernissósíalistafylkingunni
(Nationalsocialistisk Front) til bæjarins Tomelilla í S.-Svíþjóð.
Nasistaáróður tók að birtast, níu bæjarfulltrúum bárust morð-
hótanir og fölsk viðvörun um sprengju barst þegar efnt var til
mótmælagöngu gegn kynþáttahyggju. Leikstjórinn fylgdist í eitt
ár með sjö karlmönnum á aldrinum 16-24 ára. Mynd um
samræður og framfarir.
Leiksjóri: Ylva Floreman (f. 1954). Hún hefur starfað við
kennslu, margs konar fjölmiðlun og kvikmyndagerð í 25 ár og
sest að í því umhverfi sem hún lýsir í myndum sínum, t.d. hjá
Sömum og í plastverksmiðju í Júgóslavíu.
58 mín. Digi-Beta.
DANMÖRK
Radiofolket / Útvarpsfólkið
2000
Inger, Bendt og Rona hafa aldrei hist en finnst samt að þau
þekkist því þau hlusta daglega á sama svæðisútvarpið. Þau þekkja
raddir og daglegt líf hvers annars. Þau mynda einstætt samband
og þróa það af miklum trúnaði. Þetta er mynd um vöxt.
Leikstjóri: Dorthe Hoeg Brask (f. 1970). Hún stundaði nám í
heimildarmyndagerð 1997-2001 við Danska kvikmyndaskólann
og hefur alls gert sjö myndir.
Sérstök viðurkenning dómnefndar.
28 mín. Digi-Beta.
LANO & SYNIR 11