Land & synir - 15.04.2002, Page 8

Land & synir - 15.04.2002, Page 8
MYNDIR FRA EUROPEAN DOCUMENTARY FILM FESTIVAL: DANMÖRK Pigen I Havnen / Stúlkan í höfninni 2001 - Stjórri: Katrine Borre Gámaskap frá fjarlægum slóðum leggjast daglega að bryggju í Árósum. Stúlka með myndavél fer einsömul um borð í eitt þeirra og ræðir við fjölþjóðlega áhöfnina. Mynd hennar af nútíma sjómönnum gefur til kynna að sjómenn séu enn eins og þeir hafa verið. Persónuleg mynd um goðsagnir og drauma, ást og þrá, menn og konur og auðvitað um jól á filippínskum fraktara. 84 mín. 35 mm. Digi-Beta. ••••••••••••••••••••••■•■•••• FINNLAND Losing It/Að tapa sér 1999 - Stjórn: John Webster Hvers vegna hverfur alltaf annað veifið stakur sokkur í tengslum við þvotta? Hvernig hendir þetta? Hvað gerist inni í þvottavélinni? Þetta vandamál er undirstaða myndarinnar. Beitt er hátækni við lausn gátunnar, festir voru 100 sendar í 50 sokka- pör og þau afhent fólki sem er á einhvern hátt tengt Evrópusam- bandinu. Þannig var stöðugt hægt að fylgjast með ferðum sokk- anna og kynnast fólkinu sem klæddist þeim og um leið Evrópu- sambandinu. Á þennan máta fræðir myndin okkur um kerfi sem er næstum ógerningur að lýsa á annan hátt vegna stærðar þess, umfangs og skriffmsku. Drepfyndin heimildarmynd. 72 mín, 35mm. •••••••••••••••••’•••••••••••••••••■••••••••••••••**•••*•••••••••••• GRIKKLAND The 20th century through a gaze: Theo Angeloupoulos 20. öldin í mistri: Theo Angeloupoulos 2001 - Stjórn: Costas Koveos, Stathis Plotas. Theo Angelopoulous er einn af helstu og þekktustu kvik- myndagerðarmönnum Grikklands. Margar mynda hans snúast á einhvern hátt um "söguna”, hvort sem er heldur um hina goð- sagnakennda fjarlægu fortíð, nýliðna tíma eða söguleg atvik í samtímanum sem allir hafa tilfmningu fyrir. I þessari mynd er fjallað um Theo og 20. öldina. Hann segir frá tímabilinu og skoðunum sínum en líka frá kvikmyndagerð sinni og hugleið- ingum um þá iðju. Þessa mynd þarf allt áhugafólk um Theo Angelopoulous að sjá og hún er líka góð leið til þess að kynnast honum í fyrsta sinn. 59 mín, Beta SP 8 LAND & SYNIR

x

Land & synir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.