Land & synir - 15.04.2002, Blaðsíða 9
MYNDIR FRA EUROPEAN DOCUMENTARY FILM FESTIVAL:
HOLLAND
Crazy/Gjeggaðir
1999 - Stjórn: Heddy Honigmann
Crazy fjallar um tónlist, minningar og gjeggun mannfólks.
Stjórnandinn fer á fund margra hermanna Sameinuðu þjóðanna
sem hafa reynslu af ólíkum átaka- og stríðshrjáðum svæðum í
heiminum. Þeir ræða opinskátt um reynslu sína en sumt geta
þeir hvorki horfst í augu við né orðað. Heddy lætur hermennina
leika lög sem þeir tengja sérstaklega dvöl sinn einhvers staðar og
skoðar þá á meðan þeir hlusta. Það sem þeir geta ekki sagt frá
sést greinilega í andlitum þeirra. Myndin hefur unnið til margra
verðlauna, m.a. áhorfendaverðlauna á IDFA 1999.
1:37 klst. 35mm.
LITHAEN
Jono Meko Antologija / Heildarverk Jonas Mekas
2000 - Stjórn: Vytautas V. Landsbergis
Jonas Mekas fæddist 1922 í Litáen en eftir að hafa setið í ein-
angrunarbúðum á stríðsárunum fluttist hann til Bandaríkjanna
þar sem hann varð lykilmaður í hópi amerískra framúrstefnu-
manna í listum. Hann starfaði sem kvikmyndagerðarmaður og
gagnrýnandi (m.a. fyrir Village Voice), sló tóninn í hópnum
New American Cinema Group og vantaði ekki í deiglu mikil-
vægra listviðburða. Mekas skilgreindi sjálfan sig sem utangarðs-
mann og ein af myndum hans heitir “Portrait of the Artist as a
Displaced Person”. í þessari mynd eru mörg sýnishorn úr
kvikmyndum hans. Höfundurinn er sonur stjórnmáiamannsins
Vytautas Landsbergis sem er kunnur hérlendis.
1:05 klst. BetaSP.
•••••••••••••••••••••*••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Takiego pienego syna urodzilam / En fallegur
strákur sem ég fæddi
1999 - Stjórn: Marcin Koszalka
Marcin var enn í kvikmyndaskóla þegar hann gerði þessa afar
persónulegu mynd um fjölskyldu sína, brot og refsingu. Þarna
einkennist gangur lífsins ekki lengur af samræmi og hlýju. Marcin
býr enn heima og þótt mömmu hans þyki vænt um hann sættir
hún sig illa við þær leiðir sem hann hefur valið og skammar hann
nærri daglangt. Hann er óbein aðalpersóna, hlustar þögull á
háværa gagnrýni á bak við myndavélina, aðeins glittir í hann stöku
sinnum. Áhorfandinn verður vitni að svo mörgum óþægilegum
atriðum að hann tengist fljótt myndinni tilfinningalega. Samtímis
skýrist hve erfitt er að meta gerðir fólks sem maður þekkir ekkert.
25 mín, Beta SP,
PÓLLAND
LAND & SYNIfi 9