Land & synir - 15.04.2002, Qupperneq 10

Land & synir - 15.04.2002, Qupperneq 10
MYNDIR FRA EUROPEAN DOCUMENTARY FILM FESTIVAL: • ••••••••••••••••••••••••••••••••• SVISS Do It / Drífðu í því 2000 - Stjórn: Sabine Gisiger og Marcel Zwingli Þetta er mynd um játningar hryðjuverkamanns. Daniele von Arb, góðlegur og brosandi spámaður, á sér óvenjulega fortíð. 16 ára stofnaði hann leynilega byltingarhreyfingu ásamt nokkrum vinum sínum og urðu þeir smám saman alræmdasti hryðju- verkahópurinn í Sviss. Þeir hugðust berjast móti óréttlæti og kúgun stjórnmálamanna og fyrir bættri framtíð. Uppskera þeirra varð fangelsisvist, sýnisgripir í glæpaminjasöfnum og margra ára einangrun í Sviss vegna handtökuskipana í öðrum löndum. Saga Danieles er saga Evrópu og heimsins, í henni rifjast upp áttundi áratugurinn mettaður af ofbeldi og pólitík. Samtímis er þetta hvatningarmynd um tíma, hugsanir og drauma. 1:37 klst. 35 mm. UNGVERJALAND Children: Kosovo 2000 / Börn: Kosovo 2000 2000 - Stjórn: Ferenc Moldovánji Vonleysi vonarinnar er þemað í þessari mynd um serbnesk og albönsk fórnarlömb stríðs, einkum börn sem hafa misst foreldra. Aðferð leikstjórans til að nálgast börnin var að leyfa þeim að kvikmynda sjálf umhverfi sitt á súper-8mm filmu, kannski sem tilraun til að sjá landið með augum barnsins. Árangurinn er mjög áhrifaríkur og þrátt fýrir hörmungar er margt fallegt þarna að líta. En það tekur á að hlusta á frásagnir barnanna, þau hafa séð inn í heim óskiljanlegrar grimmdar. 1:30 klst. 35mm. ÍTALÍA Bibione - Bye Bye One 1999 - Stjórn: Alessandro Rossetto Bibione er einn af vinsælum pílagrímastöðum hópferðanna. Staður á korti sem var byggður upp til að taka á móti sólar- þyrstum, hálfnöktum ferðamönnum sem tilbiðja áfenga drykki, hugleiða undir sólhlífum og játa syndir sína á gljáandi póst- kortum. Leikstjórinn sýnir lífið í þessum ítalska strandbæ, ósvikna gleðina hæðnislaust en ömurleika túrismans í háði. 1:25 klst. 35mm, svart-hvít. 10 LAND & SYNIR

x

Land & synir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.