Land & synir - 01.02.2003, Blaðsíða 2
Nr. 37 - 1. thl. 9. árg.
JANÚAR - FEBRÚAR 2003.
Útgefandi: Félag kvikmyndagerð-
armanna I samvinnu viS Kvik-
myndasjóð íslands, Framleiðendafélagið SfK og Samtök kvikmyndaleikstjðra. Með stuðningi Skjás eins,
Sjónvarpsins og Stöðvar 2. Ritstjóri: Ásgrímur Sverrisson. Áhyrgðarmaður: Björn Brynjúlfur Björnsson.
Ritnefnd: Anna Th. Rögnvaldsdóttir, Ari Kristinsson, Björn Brynjúlfur Björnsson, Gunnar Þorsteinsson,
Heimir Jónasson, Hrafn Gunnlaugsson, Ingvar Þórisson, Ólafur H. Torfason, Þorfinnur Ómarsson.
Prentun: Prisma/Prentco. Lanð & synir kemur út annan hvern mánuS. Tölvupóstur: asisv@simnet.is.
Tiltekt í eigin ranni
Frá ritstjóra:
Ókei, Kvik-
myndasjóður er
orðinn þokka-
lega fjármagn-
aður, Sjón-
varpssjóður á
leiðinni (von-
andi), ný kvik-
myndalög komin í gagnið sem
leyfa fjölbreyttari fjármögnun og
ríkið endurgreiðir 12% af kostnaði
kvikmynda sem fellurtil hér á
landi. Svo er Kvikmyndasafnið
orðin sjálfstæð eining með alla
burði til að láta að sér kveða á
næstu árum. Margt hefur því
áunnist á tiltölulega skömmum
tíma og þróunin heldur áfram.
Er þá allt í sómanum? Stóru
málin annaðhvort í höfn eða um
það bil að leggja að bryggju? Er
þá ekkert lengur sem þarf að
berjast fyrir?
Verði skynsamlega á málum
haldið og verði hin ofantöldu atriði
sem enn eru ekki komin til fram-
kvæmda að veruleika innan
skamms tíma, er mjög líklegt að
geirinn muni taka stakkaskiptum
til hins betra. Framleiðsla verður
meiri og jafnari, fyrirtækin munu
styrkjast en um leið verða gerðar
til þeirra auknar kröfur um fagleg
vinnuþrögð varðandi flesta þætti.
Eitterþað mál sem enn er
óleyst í geiranum; réttindi og
skyldur þeirra sem starfa i praxís
sem lausráðnir starfsmenn við
kvikmyndir, en ættu í raun að vera
hefðbundnir launþegar. [ fjölda
ára hefur verið talað um stofnun
einhverskonar verkalýðsfélags sem
semdi um kaup og kjör eða setti
a.m.k. fram einhverskonar viðmið-
unartaxta. Af ýmsum ástæðum,
t.d. smæð bransans, óeiningu og
sinnuleysi, hefur enn ekkert orðið
af því. Það er hinsvegar borðleggj-
andi að ef geirinn mun stækka
eins og útlit er fyrir á næstu árum,
mun verða þörf á samtökum sem
sinna hagsmunum þessa hóps.
Slíkt apparat er eðlilegur hluti af
auknu umfangi og yrði til marks
um að geirinn væri fær um að
taka ábyrgð á slnum innri málum
nú þegar ríkið hefur komið til móts
við mörg þeirra atriða sem lengi
hefur verið barist fyrir.
Beinast liggur við að ætla að
Félag kvikmyndagerðarmanna
væri rétti vettvangur slíkrar starf-
semi. Hin tvö hagsmunafélögin,
SÍK og SKL, hafa skýr og gegnsæ '
hlutverk sem hagsmunafélög
framleiðenda og leikstjóra. Skipu-
lag FK er hinsvegar loðnara. Því er
stillt upp sem almennu hags-
munafélagi kvikmyndagerðar-
manna og þargeta allir slíkir
fengið inngöngu. Þar er hinsvegar
að finna tiltölulega fáa léikstjóra
eða framleiðenduren marga
tæknimenn og fólk sem gegnir
ýmiskonar aðstoðarstörfum. Eólk
sem að öllu jöfnu ætti einmitt að
tilheyra verkalýðsfélagi sem semdi
viðframleiðendur.
FK væri einfaldlega skilvirkara
sem félagsskapur ef það starfaði
með þessum hætti. Það gæti eftir
sem áður tekið þátt í hinni faglegu
hagsmunabaráttu við hlið SÍK en
með skýrari formerkjum. Að auki
gæti þetta fyrirkomulag stuðlað að
heilbrigðum skoðanaskiptum inn-
an fagsins um markmið og leiðir.
FK gerði því augljóst gagn sem
verkalýðsfélag og yrði þannig
sterkur og eðlilegur hluti af geira
sem verður að sýna að hann bæði
rís undir því trausti að umgangast
almannafé af virðingu og er fær
um að hlúa að því fólki sem í
honum starfar.
STJÓRNIR FÉLAGANNA
STJÓRN FÉLAGS KVIKMYNDAGERÐARMANNA: Formaður: Björn Br. Björnsson. Varafor-
maður: Jón Karl Helgason. Ritari: Kristín Erna Arnardóttir. Gjaldkeri: Katrín Ingvadóttir. Með-
stjórnendur: Anna Dís Ólafsdóttir, Ingvar Á. Þórisson, Hjálmtýr Heiðdal. Varamenn: Kristín
María Ingimarsdóttir, Hildur Bruun. STJÓRN FRAMLEIÐENDAFÉLAGSINS SÍK: Formaður:
Ari Kristinsson. Varaformaður: Jón Þór Hannesson. Gjaldkeri: Snorri Þórisson. Meðstjórnendur:
Friðrik Þór Friðriksson og Guðmundur Kristjánsson. Varamenn: Viðar Garðarsson og Hrafn
Gunnlaugsson. STJÓRN SAMTAKA KVIKMYNDALEIKSTJÓRA: Formaður: Friðrik Þór
Friðriksson. Gjaldkeri: Hilmar Oddsson. Ritari: Óskar Jónasson. Varamenn: Hrafn Gunnlaugsson,
Kristín Jóhannesdóttir, Jón Tryggvason.
■ TÍÐINDI Ú R KVIKMYNDA- OG SJÓNVARPSHEIMINUM
Kristín Ósk Eísladóttir leikur hina ráðagóðu Diddu.
NÝ ÍSLENSK BARNA- OG FIÖLSKYIDIJMYND:
Didda og dauði kötturinn
Ný íslensk barna- og fjölskyldumynd, Diddu og
dauði kötturinn var frumsýnd í Keflavík þann 6.
febrúar s.l. Daginn eftir hófust sýningar á
myndinni í Sambíóunum og Háskólabíói. Leikstjóri er
Helgi Sverrisson, en handritshöfundur er Kristlaug Sig-
urðardóttir sem jafnframt framleiðir fýrir ísmedia ehf.
í myndinni segir frá
Diddu, níu ára gamalli
stelpu, gleraugnaglámi og
lestrarhesti sem finnst fátt
skemmtilegra en að sitja
uppi í risi í húsinu sínu og
lesa góða bók eða horfa á
nágranna sína út um
gluggann. Einn daginn
dettur hún ofan í lýsis-
tunnu og áttar sig á því að
hún þarf ekki að nota gleraugun sín enda nánast komin
með ofursjón.
Með hlutverk Diddu fer Kristín Ósk Gísladóttir, en í
öðrum helstu hlutverkum eru
Steinn Ármann Magnússon,
Helga Braga Jónsdóttir, Gunnar
Eyjólfsson, Kjartan Guðjóns-
son og Sjöfn Evertsdóttir. Sér-
stakur gestaleikari í myndinni
er Árni Sigfússon bæjarstjóri
Reykjanesbæjar.
Didda og dauði kötturinn er
ódýr mynd, unnin á stafrænt
form og verður sýnd á þann
máta. ísmedia, sem staðsett er í
Keflavík, er þegar með í undir-
búningi aðra mynd um ævintýri
Diddu.
Helga Braga Jónsdóttir leikur
hina slægu Vöndu.
2 LAND & SYNIR