Land & synir - 01.02.2003, Side 6
Heimildamyndir voru áfram í roknasókn áriö 2002. Sumar sóttu inn á
við en aðrar voru meira fyrir útlitið, segir Ólafur H. Torfason
Innlit - útlit
Heimildarmyndir eru alls staðar í
sókn, magnið er meira og þær
ryðja sér í auknum mæli til rúms á
almennum bíósýningum og hátíðum. Þær
vógu þyngra heldur en nokkru sinni fyrr á
Cannes-hátíðinni 2002, átta heimildar-
myndir voru á formlegri dagskrá og ein tók
þátt í aðalkeppninni (Bowling for Colum-
bine eftir Michael Moore). Síðast voru
heimildarmyndir í aðalkeppni Cannes íyrir
nær hálfri öld (1956). Heimildarmyndir
voru í ár í fyrsta sinn sérstakur dag-
skrárliður á Sundance-hátíðinni. Tvær
heimildarmyndir voru í hópi þeirra tíu
verka sem tilnefnd voru til kvikmynda-
verðlauna Norðurlandaráðs 2002.
Það var líka sérstakur áfangi í fyrra þegar
hér voru sýndar um 50 myndir í apríl 2002
við ágæta aðsókn á fyrstu alþjóðlegu heim-
ildar- og stuttmyndahátíðinni í Reykjavík,
"Reykjavík Shorts and Docs 2002
Vert er að geta áhrifa heimildamynda á
stýrðar myndir. Gcesapartí eftir Böðvar
Bjarka Guðmundsson líkist því sem ensku-
mælandi nefna "fictumentary", er í tals-
verðum fréttastíl. Og tilbúin viðtöl við
aðalleikarana eru stór hluti af Gemsum eftir
Mikael Torfason.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi. Hvað
veldur? Meðfærilegri tækni? Meiri áhugi á
"alvöru"-málefnum, á "sönnum sögum", á
samtímanum?
Innlit - útlit
Mig grunar að hluti af skýringunni á því
hve margar heimildamyndir gerast nú
skarpari og einbeittari og ná betur til
áhorfenda sé sjálfsmyndarkreppa sam-
tímamannsins. Fólk leitar samkvæmt
þessum grun mínum í auknum mæli að
tilgangi, samhengi, svörum af einhverju
tagi - og heimildarmyndafólk vinnur af
meiri ástríðu og einlægni en oft áður.
Valgerður Matthíasdóttir hefur um skeið
verið með merkilegan og vinsælan sjón-
varpsþátt á Skjá einum sem nefnist Inn-
lit/útlit. Hún lítur inn hjá fólki og sýnir
vistarverurnar. En um leið er önnur
merking í þessu, innlit merkir að gest-
gjafinn hleypir okkur að sér og útlit að
hann er að reyna að sýnast eitthvað með
ásýnd heimilsins, það er listaverkið hans.
Þættirnir eru því um hvernig einstakl-
ingurinn stendur sig sem leikari í eigin
leikmynd, hverju hann er að reyna að
koma á framfæri, meðvitað eða ómeðvitað.
Mér hefur dottið í hug að flokka mætti
heimildarmyndir með þetta í huga. "Innlit"
má þá kalla þau ágengu verk sem kafa í
efniviðinn og reyna að skapa rétta til-
finningu fyrir honum. Einstaklingarnir
verða þá líka að gefa færi á sér. "Útlit" má
kalla þær heimildarmyndir sem eru upp-
stilltari og leitast við að gefa breiðara yfirlit,
sýna samhengi og sögu. Þær ná því sjaldan
að verða meira en skýrsla.
Nokkur íslensk innlit
Innlit eru oft ágeng og ögrandi en það er
samt ekki eins mikið yfirheyrt núna og
njósnað eins og títt hefur verið í heimilda-
myndagerð áður. Áhorfendur á íslandi
2002 gátu horft á mörg innlit sem rann-
sökuðu einstaklinga og áráttur, svo að við
færðumst bæði nær þeim og sjálfum okkur.
Athyglisvert má telja að nær helmingur
þeirra fjallar um listamenn. Minna má
einnig á þáttaröðina Maður er nefndur. Hér
eru dæmi um stök verk og ég gef þeim
gæðastjörnur, fjórar mest:
**** Hlemmur eftir Ólaf Sveinsson
(nokkrar persónur sem komu reglulega á
biðstöð SVR á Hlemmtorgi í margs konar
baráttu).
**** Varði Goes Europe eftir Grím
Hákonarson (gítarleikarinn Hallvarður
Ásgeirsson í óvissuferð með gítarinn sem
strætaspilari fræðist stanslaust af skraut-
legum kollegum).
*** í skóm drekans eftir Hrönn
Sveinsdóttur og Árna Sveinsson (reynsla af
kroppasýningu 2000). Hlaut Eddu-
verðlaun sem besta heimildarmynd ársins
2002.
*** Leitin að Rajeev eftir Rúnar
Rúnarsson og Birtu Fróðadóttir (leit að
æskuvin sem finnst ótrúlegt nokk á
Indlandi).
*** Lokinhamrar eftir Sigurð Grímsson
(fylgst í nær tvö ár með einbúanum
Sigurjóni Jónassyni bónda á Lokin-
hömrum í Arnarfirði og þar á meðal
tilfinningaþrungnum lokunum á föstum
búskap þar).
*** Möhöguleikar eftir Ara Alexander
Ergis Magnússon (Sigurður Guðmunds-
son Iistamaður hannar, staðsetur og
framkvæmir listaverk í nokkrum löndum).
Var á vinnslustigi kölluð Tuttugu bit, m.a.
oft hér í blaðinu. Tilnefnd til Eddu-
verðlauna.
*** Pam & Nói og mennimir þeirra
(konur frá Suðaustur-Asíu finna lífs-
förunauta í Kelduhverfi í Norður-Þing-
eyjarsýslu). Myndgerðin tók þrjú ár og
sýnir bæði vetrargolf fyrir norðan og
húsbyggingar í Tælandi. Tilnefnd til Eddu-
verðlauna.
*** Samrœða um kvikmynd eftir Ara
Halldórsson og Hákon Má Oddson. (Þor-
geir Þorgeirson messar um kvikmyndir,
6 LAND & SYNIR