Fréttablaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 40
Lespúsl er ný ritröð úr smiðju Þórarins Eld­járns, en þar eru ljóð og sögur úr höfundarverki hans sett saman í litlar bækur. Fyrstu bækurnar heita Eins og vax, Landnámur, Sonnettur og Ævintýri. Þórarinn er spurður um hug­ myndina að baki útgáfunni og segir: „Í fyrra þurfti ég að lesa í gegnum allar ljóðabækur mínar og rakst þá á mörg ljóð sem ég mundi ekkert eftir og svo önnur sem voru miklu skárri en mig minnti. Í kjölfarið fór ég að birta á hverjum miðvikudegi eitt ljóða minna á Fésbók, kallaði það ljóðviðrun. Því framtaki var mjög vel tekið. Unnur kona mín og Halldór sonur okkar fengu síðan þá hugmynd að gefa út lítil kver þar sem ljóð og smásögur mínar væru stokkuð upp og sett í nýtt samhengi. Nú eru fyrstu bækurnar komnar út. Sögum sem fjalla um svipað efni er stillt saman og ljóð valin annað hvort út frá bragarhætti eða efnis­ tökum. Ein bókin geymir sonnettur en þar sópaði ég saman öllum sonn­ ettum úr bókum mínum, líka barna­ bókunum. Þær reynast vera hátt í 40 og úr því verður prýðis ljóðabók.“ Styrkleiki hinnar prentuðu bókar Bækurnar fjórar eru áberandi fallega hannaðar. „Eitt þurfti að vera alveg á hreinu og það var að láta þetta líta vel út,“ segir Þórarinn. „Þess vegna fengum við Sigurð Oddsson hönnuð til að hanna bækurnar. Með þessu fallega útliti er í raun og veru verið að undirstrika styrkleika hinnar prentuðu bókar. Þetta eru prent­ gripir sem eru áþreifanlegir og það er lykt af þeim, sem er nokkuð sem rafbækur og hljóðbækur geta aldrei haft.“ Bækurnar fjórar eru merktar bókstöfum A1 til A4. Áætlað er að enda á bókstafnum Ö í sérlegu staf­ rófi sem Sigurður hefur hannað og Þórarinn segir að ef allt fari sam­ kvæmt áætlun verði bækurnar á endanum 128. Bókaforlagið Gull­ bringa gefur bækurnar út en það er í eigu fjölskyldunnar. Bækurnar fást í helstu bókabúðum og í vefsölu á gullbringa.is. „Þetta er eins konar heimilisiðnaður,“ segir Þórarinn. Hann segir að einnig verði hugað að því að þýða bækurnar á hin ýmsu tungumál. Ekki aftur snúið Þórarinn mun fagna 45 ára höf­ undar afmæli á næsta ári. Bar það vott um bjartsýni að ætla að lifa af ritstörfum fyrir 45 árum eða var það raunverulegur möguleiki? „Í raun og veru held ég að það hafi ekki verið möguleiki. Ef ég hefði hugsað dæmið praktískt allt til enda, þá hefði ég sagt strax: Það er ekkert vit í þessu. Ég hugsaði bara ekki þannig. Ég gerði þetta og það hefur gengið vel. Maður verður ekki auðugur af skriftum en ekki hangir maður samt á horriminni.“ Hann segist vinna af meira öryggi nú en í upphafi ferils síns. „Núna veit ég hvernig á að gera hlutina. Kannski er það ekki gott. Kannski er bara betra að renna blint í sjóinn með allt. Allavega er það þannig að úr þessu verður ekki aftur snúið.“ Ljóðabækur og Hamlet Í haust koma út tvær ljóðabækur eftir hann, önnur ætluð börnum, myndskreytt af Sigrúnu systur hans, og hin fyrir fullorðna. „Ætli það sé ekki hægt að segja að saman séu þær fyrir aldurshópinn 5­95 ára,“ segir skáldið. Annað verkefni er þýðing á Hamlet fyrir Þjóðleikhúsið. „Það er afskaplega hressileg og skemmtileg glíma. Hamlet hefur tvisvar áður verið þýddur á íslensku en það er þann­ ig með svona þýðingar að það þurfa alltaf að koma nýjar því orðaforði og málsnið breytist. Eitthvað sem var áður gert verður of hátíðlegt og málið óþjált. Ef maður skoðar leikritaþýðingar fyrir fjöru­ tíu til fimmtíu árum þá er fólk að segja þar hluti sem enginn segir lengur, eins og til dæmis sei, sei.“ Búið og gert Þórarinn er að lokum spurður hvort hann sé ánægður með höfundar­ verk sitt. „Ég hef löngum litið á það þannig að það sem er gert er búið og gert. Ég er ekki einn af þeim höfundum sem er alltaf að krukka í gamlan texta. Ef eitthvað er endurútgefið eftir mig þá breyti ég helst ekki textanum, síst af öllu ljóðum. Sumir höfundar gera þetta en ég hef aldrei kunnað við það. Ég hef ekkert sérstaklega verið að hugsa um hvort það sem ég sendi frá mér sé stórkostlegt eða ekki. Aðal­ atriðið er að halda alltaf áfram að pjakka. Í heildina er ég ánægður.“ Fugl þar sem var lauf Hér var eitt sinn lauf við lauf á tré sem lét þann hadd sinn oft og vel í té, snart ilm og sjón … öll vit, og veitt gat skjól, eins vörn gegn sjón og heyrn en æ, það kól. Lauf féll við það uns ber stóð grein við grein, sem grátt dautt net, allt tætt, sem dökk mjó bein er bar við loft, grönn hönd úr nótt sem níst er nál og fest á spjald og gegn svo lýst. Þá fauk í skjól, var skellt á þef og lit, það skóf í göt og þar með í öll vit. Í svip þar dó mörg vel kunn sögn ei sögð. Á söng og tal var klippt og dauð hönd lögð. En þar sem lauf hékk sest nú fugl við fugl. Er fyllt í skarð? Nei, æpt og skríkt tómt rugl. Aðalatriðið að halda áfram að pjakka Ljóð og sögur Þórarins Eldjárns koma út í litlum bókum sem áætlað er að verði alls 128. Tvær nýjar ljóða- bækur á leiðinni og þýðing á Hamlet fyrir Þjóðleikhúsið. 45 ára höfundarafmæli fagnað á næsta ári. „Ég hef ekkert sérstaklega verið að hugsa um hvort það sem ég sendi frá mér sé stórkostlegt eða ekki,“ segir Þórarinn. frÉttaBLaðið/aNtoN BriNk Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is 5 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r32 M e n n I n G ∙ F r É T T a B l a ð I ð menning 0 5 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 5 B -B 9 5 C 1 F 5 B -B 8 2 0 1 F 5 B -B 6 E 4 1 F 5 B -B 5 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 4 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.