Fréttablaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 22
ÍR - Tindastóll 82-89 ÍR: Danero Thomas 33 Matthías Orri Sigurðarson 13, Hákon Örn Hjálmarsson 10, Sæþór Elmar Kristjánsson 6, Trausti Eiríksson 6, Kristinn Marinósson 4. Tindastóll: Sigtryggur Arnar Björnsson 25, Antonio Hester 20, Björgvin Hafþór Rík- harðsson 12, Pétur Rúnar Birgisson 10, Viðar Ágústsson 9, Axel Kárason 7. Staðan er 1-0 í einvíginu fyrir Tindastól Nýjast Domino’s-deild karla, undanúrslit Valur - Haukar 22-xx Valur: Kristín Guðmundsdóttir 6, Díana Dögg Magnúsdóttir 5, Ólöf Kristín Þor- steinsdóttir 3, Ragnhildur Edda Þórðar- dóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2, Morgan Marie Þorkelsdóttir 2. Haukar: Guðrún Erla Bjarnadóttir 5, Maria Pereira 4, Sigrún Jóhannsdóttir 3, Bertha Rut Harðardóttir 3, Hekla Rún Ámunda- dóttir 2, Ragnheiður Sveinsdóttir 2. Staðan er 1-0 í einvíginu fyrir Val Olís-deild kvenna, undanúrslit Liverpool - Man. City 3-0 1-0 Mohamed Salah (12.), 2-0 Alex Oxlade- Chamberlain (21.), 3-0 Sadio Mane (31.). Barcelona - Roma 4-1 1-0 Daniele De Rossi (Sjálfsmark, 38.), 2-0 Konstantinos Manolas (Sjálfsmark, 55.), 3-0 Gerard Pique (58.), 3-1 Edin Dzeko (80.), 4-1 Luis Suarez (87.). Meistaradeild Evrópu, 8-liða úrslit, fyrri leikir Hildur hætt körfubolti Hildur Sigurðardóttir hefur ákveðið að taka sér frí frá þjálfun. Hún lætur því af störfum sem þjálfari kvennaliðs Breiðabliks eftir tvö ár. Hildur tók við Blikum 2016 og kom þeim upp í Domino’s-deild- ina á sínu fyrsta tímabili í þjálfun. Breiðablik endaði í 7. sæti Dom- ino’s-deildarinnar í vetur. Liðið vann 11 leiki af 28. Hildur vann fjölda titla á far- sælum ferli sem leikmaður. Þá er hún leikjahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi með 79 leiki. – iþs Hildur Sigurðardóttir stýrði Breiða- bliki í tvö ár. FRéTTaBLaðið/Hanna Handbolti Guðmundur Guð- mundsson stýrir íslenska karla- landsliðinu í handbolta í sínum fyrstu leikjum síðan hann tók við liðinu á nýjan leik þegar Ísland tekur þátt í Gullmótinu í Noregi um helgina. Fyrsti leikur íslenska liðsins er gegn heimamönnum í kvöld, þá leikur íslenska liðið á móti Dan- mörku á laugardaginn og síðan Frakklandi á sunnudaginn. Guð- mundur stýrði íslenska liðinu síðast árið 2012, en honum líst vel á lands- lagið í íslenskum handbolta. Hann leggur hins vegar ríka áherslu á að handboltafólk sýni íslenska liðinu þolinmæði þar sem liðið sé gríðarlega ungt og uppbygg- ing muni taka drjúgan tíma. Það sé hins vegar ríkur efniviður til staðar og íslenska liðið geti hæglega verið komið í fremstu röð eftir þrjú ár. „Mér líst bara mjög vel á hlutina hérna fyrstu dagana. Það er góður andi í hópnum og menn eru að gefa sig alla í verkefnið. Við fórum yfir varnarleikinn á fyrstu æfingunni og á æfingunni daginn þar á eftir fórum við yfir sóknarleikinn. Það er vissulega mikil vinna fram undan, en þetta byrjar vel og leikmenn eru fljótir að meðtaka áherslurnar,“ sagði Guðmundur. „Það verður svo bara að koma í ljós hversu langt þessir ungu og efnilegu leikmenn eru komnir og hvernig þeir standa í samanburði við marga af bestu leikmönnum heims. Eins og ég sagði við HSÍ og á fyrsta blaðamannafundinum þegar ég tók við starfinu þá mun það taka um það bil þrjú ár að koma þessum leikmönnum í fremstu röð.“ Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi íslenska liðsins síðan Guðmundur var síðast við stjórnvölinn hjá því. Ofan á það fékk Guðjón Valur Sigurðsson frí frá þessu verkefni og Ásgeir Örn Hallgrímsson glímir við meiðsli og er fjarri góðu gamni. Leikmannahópurinn yngdist svo enn frekar þegar sex leikmenn sem Guðmundur hafði valið til þess að leika í Noregi heltust úr lestinni ýmist vegna meiðsla, veik- inda eða persónulegra ástæðna. Aron Rafn Eðvarðsson, Theodór Sigurbjörnsson, Ólafur Andrés Guð- mundsson, Ólafur Bjarki Ragnars- son, Ólafur Gústafsson og Ýmir Örn Gíslason voru þeir leikmenn sem drógu sig út úr hópnum. Guðmund- ur segist hafa breytt hugmynda- fræðinni í kringum B-landsliðið, en sá leikmannahópur samanstandi af leikmönnum sem séu að banka á dyrnar hjá A-landsliðinu. Líklega yngsta lið frá upphafi „Þessi forföll gera ungt lið enn yngra og ég er ekki frá því að þetta sé yngsta landslið í sögunni sem Ísland hefur sent til leiks sem A-landslið í keppnis leiki. Nú sýnir það sig svart á hvítu hversu mikilvægt það er að starfrækja B-landslið. Ég kalla þetta B-landslið, en ekki afrekshóp til þess að undirstrika að þessir leik- menn eru næstir inn í A-landsliðið. Það sýnir sig svo enn frekar þegar ég tek fjóra leikmenn úr B-lands- liðinu inn í A-landsliðið þegar for- föll verða.“ Guðmundur fékk góða innsýn í starf B-landsliðsins á dögunum þegar hann hafði umsjón með æfingu liðsins. „Ég kom að æfingunum hjá B-landsliðinu í síðustu viku og við erum að fara yfir sömu hluti þar og í A-landsliðinu. Leikmenn eru því meðvitaðir um hvernig við erum að vinna hlutina og þurfa ekki að byrja á núllpunkti þegar þeir koma í A-landsliðið. Það er gríðarlega mikil- vægt, ég fæ betri tilfinningu fyrir getu leikmanna og þetta stækkar hóp þeirra sem eru klárir í slaginn í verkefni með A-landsliðinu,“ sagði Guðmundur um samvinnuna á milli A- og B-landsliðanna. Getum komist í hæstu hæðir Ísland ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur á Gullmótinu, en mótherjar íslenska liðsins eru afar sterkir. Frakkar og Danir léku um bronsverðlaun á Evrópumótinu sem fram fór í Króatíu í janúar á þessu ári. Frakkar fóru með sigur af hólmi í þeim leik. Þá urðu Norðmenn í sjöunda sæti á því móti. Guðmundur telur mikilvægt að máta sig á móti jafn sterkum þjóð- um og íslenska liðið mætir á mótinu til þess að finna út hvar liðið stend- ur og hvað þurfi að laga til þess að komast nær því að vera á efsta stalli í handboltaheiminum. „Það er ekki sanngjarnt að mínu mati að ætlast til þess að þeir leik- menn sem mynda þennan leik- mannahóp séu fullmótaðir og klárir í það að standa fremstu leikmönn- um heims á sporði. Ég tel hins vegar að það sé klárlega möguleiki á því að koma þessu liði í hæstu hæðir og þessir leikir eru byrjunin á því verkefni að bæta liðið og þróa leik- menn og spilamennsku liðsins. Við erum að fara að leika gegn þremur af fimm bestu þjóðum heims í handboltanum í dag. Það verður spennandi að sjá hvar við stöndum í samanburði við þær og fróðlegt að meta hvar okkar styrkleikar og veikleikar eru,“ sagði Guðmundur. „Við erum til að mynda með tvo mjög unga nýja miðjumenn, Gísla Þorgeir [Kristjánsson] og Hauk [Þrastarson], það verður til dæmis gaman að sjá hvernig þeir standa sig,“ sagði Guðmundur sem er með nýtt lið í höndunum. „Þetta er gjörbreytt lið og þetta hefur verið smá púsluspil vegna skakkafallanna. Ég hef hins vegar verið mjög ánægður með æfingarn- ar og það hvernig leikmenn eru að nálgast verkefnið. Það er hins vegar ómögulegt að dæma liðið eða meta hversu langt það er komið í alþjóð- legum handbolta. Við verðum að kasta mönnum út í djúpu laugina og láta þá spila við sterka leikmenn til þess. Það munum við gera um kom- andi helgi og ég er mjög spenntur eins og leikmenn liðsins og allir í kringum liðið. Staðan á íslenska liðinu er allt önnur en þegar ég var með það síð- ast. Við erum í uppbyggingarfasa þar sem ekki er möguleiki að stytta sér leið. Þetta tekur tíma þar sem þarf að leggja á sig mikla vinnu, en um leið verður þetta mjög skemmtilegur tími sem fram undan er. Þessir ungu leikmenn þurfa að fá að spila um það bil 30 landsleiki til þess að komast á sama stað og reyndari leikmenn liðs- ins. Þolinmæði verður lykilorðið,“ sagði Guðmundur. hjorvaro@frettabladid.is Þolinmæði er lykilorðið okkar Guðmundur Guðmundsson stýrir íslenska landsliðinu á ný í fyrsta sinn í kvöld gegn Noregi í Gullmótinu. Guðmundur hlakkar mikið til þess að henda efnilegum leikmönnum íslenska liðsins út í djúpu laugina. Guðmundur Guðmundsson ræðir málin við aðstoðarmenn sína, þá Gunnar Magnússon og Tomas Svensson, á æfingu liðsins í vikunni. FRéTTaBLaðið/EyþóR Við erum í uppbygg- ingarfasa þar sem ekki er möguleiki að stytta sér leið. Guðmundur Guðmundsson Sjö nýliðar eru í íslenska hópnum sem fór til Noregs. fótbolti Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu æfir þessa dagana í Króatíu og er það hluti af undirbún- ingi liðsins fyrir leik gegn Slóveníu á föstudaginn. Er leikurinn liður í undankeppni HM 2019. KSÍ greindi frá því að allir leik- menn liðsins hefðu tekið þátt í fyrstu æfingu í Króatíu. Ísland er í 2. sæti riðilsins, tveim- ur stigum á eftir Þýskalandi sem mætir Tékkum á föstudaginn, en Stelpurnar okkar eiga einn leik til góða á Þjóðverja. – kpt Æft í Króatíu 5 . a p r í l 2 0 1 8 f i M M t u d a G u r22 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð Sport 0 5 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 B -E 5 C C 1 F 5 B -E 4 9 0 1 F 5 B -E 3 5 4 1 F 5 B -E 2 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.