Fréttablaðið - 05.04.2018, Qupperneq 22
ÍR - Tindastóll 82-89
ÍR: Danero Thomas 33 Matthías Orri
Sigurðarson 13, Hákon Örn Hjálmarsson
10, Sæþór Elmar Kristjánsson 6, Trausti
Eiríksson 6, Kristinn Marinósson 4.
Tindastóll: Sigtryggur Arnar Björnsson 25,
Antonio Hester 20, Björgvin Hafþór Rík-
harðsson 12, Pétur Rúnar Birgisson 10, Viðar
Ágústsson 9, Axel Kárason 7.
Staðan er 1-0 í einvíginu fyrir Tindastól
Nýjast
Domino’s-deild karla, undanúrslit
Valur - Haukar 22-xx
Valur: Kristín Guðmundsdóttir 6, Díana
Dögg Magnúsdóttir 5, Ólöf Kristín Þor-
steinsdóttir 3, Ragnhildur Edda Þórðar-
dóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2,
Morgan Marie Þorkelsdóttir 2.
Haukar: Guðrún Erla Bjarnadóttir 5, Maria
Pereira 4, Sigrún Jóhannsdóttir 3, Bertha
Rut Harðardóttir 3, Hekla Rún Ámunda-
dóttir 2, Ragnheiður Sveinsdóttir 2.
Staðan er 1-0 í einvíginu fyrir Val
Olís-deild kvenna, undanúrslit
Liverpool - Man. City 3-0
1-0 Mohamed Salah (12.), 2-0 Alex Oxlade-
Chamberlain (21.), 3-0 Sadio Mane (31.).
Barcelona - Roma 4-1
1-0 Daniele De Rossi (Sjálfsmark, 38.), 2-0
Konstantinos Manolas (Sjálfsmark, 55.), 3-0
Gerard Pique (58.), 3-1 Edin Dzeko (80.), 4-1
Luis Suarez (87.).
Meistaradeild Evrópu, 8-liða
úrslit, fyrri leikir
Hildur hætt
körfubolti Hildur Sigurðardóttir
hefur ákveðið að taka sér frí frá
þjálfun. Hún lætur því af störfum
sem þjálfari kvennaliðs Breiðabliks
eftir tvö ár.
Hildur tók við Blikum 2016 og
kom þeim upp í Domino’s-deild-
ina á sínu fyrsta tímabili í þjálfun.
Breiðablik endaði í 7. sæti Dom-
ino’s-deildarinnar í vetur. Liðið
vann 11 leiki af 28.
Hildur vann fjölda titla á far-
sælum ferli sem leikmaður. Þá er
hún leikjahæsti leikmaður íslenska
kvennalandsliðsins frá upphafi með
79 leiki. – iþs
Hildur Sigurðardóttir stýrði Breiða-
bliki í tvö ár. FRéTTaBLaðið/Hanna
Handbolti Guðmundur Guð-
mundsson stýrir íslenska karla-
landsliðinu í handbolta í sínum
fyrstu leikjum síðan hann tók við
liðinu á nýjan leik þegar Ísland
tekur þátt í Gullmótinu í Noregi
um helgina.
Fyrsti leikur íslenska liðsins er
gegn heimamönnum í kvöld, þá
leikur íslenska liðið á móti Dan-
mörku á laugardaginn og síðan
Frakklandi á sunnudaginn. Guð-
mundur stýrði íslenska liðinu síðast
árið 2012, en honum líst vel á lands-
lagið í íslenskum handbolta.
Hann leggur hins vegar ríka
áherslu á að handboltafólk sýni
íslenska liðinu þolinmæði þar sem
liðið sé gríðarlega ungt og uppbygg-
ing muni taka drjúgan tíma. Það sé
hins vegar ríkur efniviður til staðar
og íslenska liðið geti hæglega verið
komið í fremstu röð eftir þrjú ár.
„Mér líst bara mjög vel á hlutina
hérna fyrstu dagana. Það er góður
andi í hópnum og menn eru að gefa
sig alla í verkefnið. Við fórum yfir
varnarleikinn á fyrstu æfingunni
og á æfingunni daginn þar á eftir
fórum við yfir sóknarleikinn. Það er
vissulega mikil vinna fram undan,
en þetta byrjar vel og leikmenn eru
fljótir að meðtaka áherslurnar,“
sagði Guðmundur.
„Það verður svo bara að koma
í ljós hversu langt þessir ungu og
efnilegu leikmenn eru komnir og
hvernig þeir standa í samanburði
við marga af bestu leikmönnum
heims. Eins og ég sagði við HSÍ og á
fyrsta blaðamannafundinum þegar
ég tók við starfinu þá mun það taka
um það bil þrjú ár að koma þessum
leikmönnum í fremstu röð.“
Miklar breytingar hafa orðið á
leikmannahópi íslenska liðsins
síðan Guðmundur var síðast við
stjórnvölinn hjá því. Ofan á það fékk
Guðjón Valur Sigurðsson frí frá þessu
verkefni og Ásgeir Örn Hallgrímsson
glímir við meiðsli og er fjarri góðu
gamni.
Leikmannahópurinn yngdist
svo enn frekar þegar sex leikmenn
sem Guðmundur hafði valið til
þess að leika í Noregi heltust úr
lestinni ýmist vegna meiðsla, veik-
inda eða persónulegra ástæðna.
Aron Rafn Eðvarðsson, Theodór
Sigurbjörnsson, Ólafur Andrés Guð-
mundsson, Ólafur Bjarki Ragnars-
son, Ólafur Gústafsson og Ýmir Örn
Gíslason voru þeir leikmenn sem
drógu sig út úr hópnum. Guðmund-
ur segist hafa breytt hugmynda-
fræðinni í kringum B-landsliðið, en
sá leikmannahópur samanstandi
af leikmönnum sem séu að banka á
dyrnar hjá A-landsliðinu.
Líklega yngsta lið frá upphafi
„Þessi forföll gera ungt lið enn yngra
og ég er ekki frá því að þetta sé
yngsta landslið í sögunni sem Ísland
hefur sent til leiks sem A-landslið í
keppnis leiki. Nú sýnir það sig svart
á hvítu hversu mikilvægt það er að
starfrækja B-landslið. Ég kalla þetta
B-landslið, en ekki afrekshóp til
þess að undirstrika að þessir leik-
menn eru næstir inn í A-landsliðið.
Það sýnir sig svo enn frekar þegar
ég tek fjóra leikmenn úr B-lands-
liðinu inn í A-landsliðið þegar for-
föll verða.“
Guðmundur fékk góða innsýn
í starf B-landsliðsins á dögunum
þegar hann hafði umsjón með
æfingu liðsins.
„Ég kom að æfingunum hjá
B-landsliðinu í síðustu viku og við
erum að fara yfir sömu hluti þar og
í A-landsliðinu. Leikmenn eru því
meðvitaðir um hvernig við erum
að vinna hlutina og þurfa ekki að
byrja á núllpunkti þegar þeir koma í
A-landsliðið. Það er gríðarlega mikil-
vægt, ég fæ betri tilfinningu fyrir
getu leikmanna og þetta stækkar
hóp þeirra sem eru klárir í slaginn í
verkefni með A-landsliðinu,“ sagði
Guðmundur um samvinnuna á milli
A- og B-landsliðanna.
Getum komist í hæstu hæðir
Ísland ræðst ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur á Gullmótinu, en
mótherjar íslenska liðsins eru afar
sterkir. Frakkar og Danir léku um
bronsverðlaun á Evrópumótinu sem
fram fór í Króatíu í janúar á þessu
ári. Frakkar fóru með sigur af hólmi
í þeim leik. Þá urðu Norðmenn í
sjöunda sæti á því móti.
Guðmundur telur mikilvægt að
máta sig á móti jafn sterkum þjóð-
um og íslenska liðið mætir á mótinu
til þess að finna út hvar liðið stend-
ur og hvað þurfi að laga til þess að
komast nær því að vera á efsta stalli
í handboltaheiminum.
„Það er ekki sanngjarnt að mínu
mati að ætlast til þess að þeir leik-
menn sem mynda þennan leik-
mannahóp séu fullmótaðir og klárir
í það að standa fremstu leikmönn-
um heims á sporði. Ég tel hins vegar
að það sé klárlega möguleiki á því að
koma þessu liði í hæstu hæðir og
þessir leikir eru byrjunin á því
verkefni að bæta liðið og þróa leik-
menn og spilamennsku liðsins.
Við erum að fara að leika gegn
þremur af fimm bestu þjóðum
heims í handboltanum í dag.
Það verður spennandi að sjá
hvar við stöndum í samanburði við
þær og fróðlegt að meta hvar okkar
styrkleikar og veikleikar eru,“ sagði
Guðmundur.
„Við erum til að mynda með tvo
mjög unga nýja miðjumenn, Gísla
Þorgeir [Kristjánsson] og Hauk
[Þrastarson], það verður til dæmis
gaman að sjá hvernig þeir standa
sig,“ sagði Guðmundur sem er með
nýtt lið í höndunum.
„Þetta er gjörbreytt lið og þetta
hefur verið smá púsluspil vegna
skakkafallanna. Ég hef hins vegar
verið mjög ánægður með æfingarn-
ar og það hvernig leikmenn eru að
nálgast verkefnið. Það er hins vegar
ómögulegt að dæma liðið eða meta
hversu langt það er komið í alþjóð-
legum handbolta. Við verðum að
kasta mönnum út í djúpu laugina og
láta þá spila við sterka leikmenn til
þess. Það munum við gera um kom-
andi helgi og ég er mjög spenntur
eins og leikmenn liðsins og allir í
kringum liðið.
Staðan á íslenska liðinu er allt
önnur en þegar ég var með það síð-
ast. Við erum í uppbyggingarfasa þar
sem ekki er möguleiki að stytta sér
leið. Þetta tekur tíma þar sem þarf að
leggja á sig mikla vinnu, en um leið
verður þetta mjög skemmtilegur
tími sem fram undan er. Þessir ungu
leikmenn þurfa að fá að spila um það
bil 30 landsleiki til þess að komast á
sama stað og reyndari leikmenn liðs-
ins. Þolinmæði verður lykilorðið,“
sagði Guðmundur.
hjorvaro@frettabladid.is
Þolinmæði er lykilorðið okkar
Guðmundur Guðmundsson stýrir íslenska landsliðinu á ný í fyrsta sinn í kvöld gegn Noregi í Gullmótinu.
Guðmundur hlakkar mikið til þess að henda efnilegum leikmönnum íslenska liðsins út í djúpu laugina.
Guðmundur Guðmundsson ræðir málin við aðstoðarmenn sína, þá Gunnar Magnússon og Tomas Svensson, á æfingu liðsins í vikunni. FRéTTaBLaðið/EyþóR
Við erum í uppbygg-
ingarfasa þar sem
ekki er möguleiki að stytta
sér leið.
Guðmundur Guðmundsson
Sjö nýliðar eru í íslenska
hópnum sem fór til Noregs.
fótbolti Íslenska kvennalandsliðið
í knattspyrnu æfir þessa dagana í
Króatíu og er það hluti af undirbún-
ingi liðsins fyrir leik gegn Slóveníu
á föstudaginn. Er leikurinn liður í
undankeppni HM 2019.
KSÍ greindi frá því að allir leik-
menn liðsins hefðu tekið þátt í
fyrstu æfingu í Króatíu.
Ísland er í 2. sæti riðilsins, tveim-
ur stigum á eftir Þýskalandi sem
mætir Tékkum á föstudaginn, en
Stelpurnar okkar eiga einn leik til
góða á Þjóðverja. – kpt
Æft í Króatíu
5 . a p r í l 2 0 1 8 f i M M t u d a G u r22 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
Sport
0
5
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
B
-E
5
C
C
1
F
5
B
-E
4
9
0
1
F
5
B
-E
3
5
4
1
F
5
B
-E
2
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
4
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K