Fréttablaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 10
Stundum er gott
að gera sér dagamun
Mjúk og bragðgóð jógúrt með stökkum
kornkúlum. Tilvalinn kostur sem
sparimorgunverður, gómsætur millibiti
eða ljúengur eftirréttur.
… hvert er þitt eftirlæti?
1
6
-0
9
5
3
-H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
50%
OPIÐ ALLA DAGA Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | 108 Reykjavík | Sími: 585 2888
KASTARA-
DAGAR AFSLÁTTUR AF
KÖSTURUM
Sýrland „Í desember höfðum við
ekki áttað okkur á að ég var í raun-
inni veikur. Ég var alltaf þreyttur
og átti erfitt með að fara fram úr á
morgnana. Viðbrögð þín við þessu
sleni voru „mild agaviðurlög“ svo
ég noti þín orð. Á fyrsta fundi fórstu
rækilega yfir af hverju hverjum her-
manni og byltingarmanni er nauð-
synlegt að komast fram úr á morgn-
ana. Við hlógum okkur eiginlega í
gegnum þennan fyrsta fund vegna
nálgunar þinnar á þetta og áhersl-
unnar á mikilvægi þess sem ætti
ekki að vefjast fyrir okkur sjálfum,
byltingarmönnunum. Þessi refsing
þróaðist svo yfir í eins konar bóka-
klúbb um rit Che Guevara, skæru-
hernað og Kúbubyltinguna. Þessi
agaviðurlög sem lögð voru á mig af
liðsforingja mínum, af því ég komst
ekki nógu snemma á fætur, þróuð-
ust yfir í frábærar stundir sem við
nutum allir, ekki síst fyrir
eldmóð þinn og hrifningu á
Che og ritum hans.“ Þannig
lýsir einn liðsmanna félaga
Hauks Hilmarssonar, liðsfor-
ingja sínum, Sahin.
Hauki er, af félögum sínum,
lýst sem mildum foringja,
traustum vini og eldheitum
hugsjónamanni. Þeir segja frá
lýðræðislegum stjórnarháttum
hans og hvernig hann hlustaði
á ólík viðhorf og sjónarmið um
fyrirliggjandi verkefni deildarinnar,
hvernig hann sagði frá sjálfum sér
af mikilli hógværð, hvernig hann
notaði húmor og glettni til að hjálpa
félögum sínum í gegnum erfið verk-
efni og þeir lýsa samskiptum hans
við óbreytta borgara í Rojava.
„Eftir frelsun Raqqa átti her-
deildin nokkurra vikna friðsælt og
afslappað tímabil. Margir fóru aftur
Las í Che Guevara fyrir
félagana í herdeildinni
Myndirnar tóku félagar Hauks í YPG
og þær eru birtar með leyfi þeirra.
Félagar Hauks Hilmars-
sonar minnast liðþjálfa
síns og segja frá Che
Guevara bókaklúbbn-
um, áherslu á líkams-
rækt, vináttu, húmor og
léttleika í allri stjórnun
herdeildar Hauks.
heim til Evrópu og Bandaríkjanna og
aðrir yfirgáfu herdeildina og fóru að
sinna borgaralegum störfum í Rojava.
Sahin var einn fárra sem urðu eftir
með herdeildinni. Hann hélt lífi í
henni og viðhélt hreysti deildarinnar
með skipulagðri stjórnmálafræðslu
og líkamsrækt.“
Einn félaganna lýsir síðustu sam-
verustund sinni með Hauki en þeir
urðu samferða yfir óvinasvæði á leið
herdeildarinnar inn til Afrin. „Ég hef
upplifað fátt meira streituvaldandi
og ógnvekjandi en að vera smyglað
í gegnum yfirráðasvæði óvinanna
en Sahin var með mér allan tímann,
grettandi sig og segjandi brandara
alla leiðina, í þeim eina tilgangi að
róa mig niður.
Eftir nokkurra klukkutíma bið í
Aleppo, var Sahin settur í annan bíl
og ekið burt. Nokkrar klukkustundir
liðu og annar bíll sótti mig og ég var
falinn undir töskum og öðru fólki.
Eftir spennuþrungna ferð í bílnum
með tilheyrandi hjartslætti við
hverja varðstöð komst ég loks yfir
víglínuna. Um leið og ég kom inn um
hlið fyrstu YPG-stöðvarinnar kom
Sahin hlaupandi á móti mér með
breiðasta sólskinsbrosi sem ég hef
séð og ómengaða gleði og hamingju í
báðum augum. Nákvæmlega þannig
mun ég alltaf minnast hans. Þegar ég
heyri nafn hans nefnt, sé ég alltaf fyrir
mér þetta bros sem mætti mér þá.“
Minningar vina Hauks má lesa í
heild á frettabladid.is.
2 4 . m a r S 2 0 1 8 l a U G a r d a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
C
-F
4
7
8
1
F
4
C
-F
3
3
C
1
F
4
C
-F
2
0
0
1
F
4
C
-F
0
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K