Fréttablaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 48
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is Hér má sjá
Guinness heims-
metið í því þegar
saman komu
fleiri kokkar í
kokkabúningi
en áður hefur
gerst en við-
burðurinn átti
sér stað í Daej-
eon í Kóreu.
Með Ragnari á
myndinni eru
Anton Mosiman,
fyrsti þriggja
stjörnu kokkur-
inn á Dor chester
hótelinu í
Bretlandi og
Rick Moonen,
stjörnukokkur
í Las Vegas sem
tekur meðal
annars þátt í
keppninni um
Járnkokkinn.
Alheimssamtök matreiðslu-manna eða Worldchefs eru eins konar Sameinuðu þjóðir
matreiðslumanna. Þetta eru sam-
bönd landssamtaka kokka í 105
löndum, þar á meðal eru samtök
íslenskra matreiðslumanna og saga
þeirra nær aftur til 1919. „Okkar
takmark er að hækka staðla á
fagmennsku innan geirans,“ segir
Ragnar. „Við störfum að ýmsum
málum sem tengjast menntun, mat-
reiðslukeppnum, og ráðstefnum.
Einnig vinnum við að sjálfbærni og
mannúðarmálum í samstarfi við
Sameinuðu þjóðirnar og World Food
Program.“
Ragnar bjó og starfaði í kampa-
vínshéraðinu í Frakklandi þegar
leitað var til hans um að taka að sér
framkvæmdastjórastöðuna fyrir
níu árum. „Gissur Guðmundsson
var kosinn forseti samtakanna 2008
ásamt Hilmari B. Jónssyni og Einari
Helgasyni. Þá var starfsemi sam-
takanna frekar óskipulögð og þeir
voru kosnir gegn því kosningaloforði
að þeir myndu opna höfuðstöðvar
samtakanna í París. Íslenska sendi-
ráðið kom Gissuri í samband við mig
en ég starfaði þá sem ljósmyndari
og útgefandi matreiðslubóka ásamt
því að vera með menntun tengda
faginu frá Íslandi, Noregi, Englandi
og Frakklandi. Ég heillaðist strax
af verkefninu og hef nú starfað hjá
samtökunum í níu ár. Á þeim tíma
höfum við ráðið sex manns í vinnu,
fimmfaldað veltuna og sett af stað
ýmis ný verkefni.“
Matur er mannsins megin
Ragnar segir starfið hafa verið marg-
breytilegt gegnum árin og ýmis
verkefni á borði samtakanna. „Til
að mynda stofnuðum við kennslu-
stofnun fyrir bágstadda í Brasilíu í
samstarfi við Electrolux og Sodexo
og stefnan er að endurtaka leikinn
í Egyptalandi og Rússlandi í ár. Við
erum að undirbúa heimsþing í
Matur er mannsins megin
Ragnar Friðriksson hefur verið framkvæmdastjóri alheimssamtaka matreiðslumanna, WACS
Worldchefs. í níu ár og fengið að smakka mat úr öllum heimshornum. Samtökin leggja sitt af
mörkum fyrir bágstadda í heiminum og hugsa í sjálfbærum og náttúruvænum lausnum.
Malasíu í sumar, erum með fjórar
vefsíður og tímarit í framleiðslu. Sem
framkvæmdastjóri er ég ábyrgur fyrir
samningaviðræðum við stuðnings-
aðila, ráðningum og fjármálunum
yfirhöfuð. Þannig að það er nóg að
gera og ég er alltaf á ferðinni. Ég hef
verið svo heppinn að fá að ferðast
um allan heim í þessu starfi, hef
kynnst ótrúlegasta fólki og fengið að
upplifa margt, bæði erfitt og ánægju-
legt. Eftirminnilegastar eru ferðir til
Palestínu og Ísraels, Filippseyja, Ind-
lands og nokkurra héraða í Kína.“
Aðspurður hvar sé besti matur í
heimi segir Ragnar að hver staður
hafi sín spennandi sérkenni. „Það er
nú svo skemmtilegt við þennan geira
að matur er alltaf mannsins megin.
Hvert sem ég fer eiga allir það sam-
eiginlegt að njóta góðs málsverðar og
það er fátt skemmtilegra en að upp-
götva matarmenningu lands með
matgæðingum þess. Skemmtilegasta
matarminningin mín er frá Asíu þar
sem við fórum á lítinn veitingastað í
þröngri hliðargötu þar sem einn úr
vinahópnum þekkti til. Þar var hægt
að velja sér fisk beint úr kari sem var
svo matreiddur og eldaður að hætti
landsmanna á meðan við biðum.“
Kokkar eru rokkstjörnur
Þegar Ragnar kemur heim fer
hann beint út í búð að finna besta
hráefnið og dundar sér í eldhúsinu
heima hjá mömmu sem hann segir
vera uppáhalds íslenska veitinga-
staðinn sinn. „Íslenska lambið er
alltaf alveg einstakt og þegar ég
mæti á Frón finnst mér gaman að
hægsjóða lambaskanka og grilla
humarhala og hafa með íslenskar
kartöflur sem eru í heimsklassa.
Bleikjan frá Laugarvatni er líka alveg
frábær. Skemmtilegasta sagan er
frá Keflavík. Þegar ég var þar síðast
fór ég með börnin að veiða makríl á
bryggjunni þar sem var fullt af fólki
við sömu iðju og ég sá að Íslend-
ingarnir ýmist hentu makrílnum
eða gáfu erlendu veiðimönnunum.
Þeir göptu þegar ég sagðist ætla að
fara með minn makríl heim og elda
hann og enginn trúði því að makríll
væri mannamatur. Makríll er nýttur
um allan heim og er næringarríkasti
og sjálfbærasti fiskur sem völ er á.
Það er kominn tími til að Íslend-
ingar gefi honum tækifæri."
Hann segir spennandi tíma í
matargerðarlistum. „Kokkar eru
orðnir rokkstjörnur og ná til meiri
fjölda og hafa meiri áhrif en nokk-
urn tíma áður. Hvert land á sína
spennandi kokka og matarhefðir og
nú á dögum er mikil áhersla á sjálf-
bærni, virðingu við náttúruna og
heilsusamlega nálgun ð hráefninu.
Staðan í umhverfismálum gerir
það að verkum að við þurfum að
borða minna kjöt af betri gæðum
og minnka sóun á hráefni. Þar geta
kokkar haft áhrif með að kenna
fólki að gera góðan mat úr aðgengi-
legu og oft ódýrara hráefni eða að
nýta hráefni sem annars hefði verið
hent. Við höfum til dæmis sett upp
námskeið til að kenna hvernig er
hægt að búa til ljómandi gott brauð
úr bananahýði eða súkkulaðiköku
þar sem notaður er gamall kúrbítur í
staðinn fyrir hveiti.“
Hann segir íslenska kokka standa
sig frábærlega á alheimsvísu. „Það
er svo gaman að fylgjast með þeirri
jákvæðu þróun sem hefur orðið á
matargerðarlist á Norðurlöndum
undanfarin tuttugu ár sem nú vekur
athygli um allan heim og snýst um
að nota ferskt hráefni og láta ein-
faldleikann njóta sín. Við þurfum
ekki að leita langt yfir skammt þegar
allt sem við þurfum er við nefið
á okkur. Hefur einhver smakkað
hundasúrur nýlega? Spretta út um
allt og bragðast dásamlega!“
Hér má sjá Ragnar gæða sér á góm-
sæti á hinum heimsfræga Da Dong’s
veitingastað í Beijing.
Hljóðeinangrun hefur oftar en ekki verið ábótavant á íslenskum hótelum og gisti-
stöðum, hvort sem það er fram á
ganga úr herbergjum eða hreinlega
herbergja á milli,“ segir Sverrir Krist-
finnsson, söluráðgjafi hjá Idex, en
fyrirtækið sérhæfir sig í að þjónusta
byggingariðnaðinn með gæðavöru á
hagkvæmu verði. Idex hóf í fyrra að
bjóða upp á innréttingar og húsgögn
fyrir hótel og gististaði, þar á meðal
hljóðeinangrandi hurðir frá fyrir-
tækinu Neuform-Türenwerk Hans
Glock GmbH & Co. KG. sem stofnað
var 1933 og býr því að langri reynslu
og þróun í hurðasmíði.
Sverrir segir að það séu ekki mörg
fyrirtæki á markaðnum hérna heima
sem bjóði upp á 42-47 db hljóðein-
angrandi hurðir.
Neuform hurðir hafa verið settar
upp víða um heim á hótelum og
gistiheimilum og eru þær sérsniðnar
að kröfum viðskiptavina. Sér-
stakar hurðir eru í boði sem eru með
hljóðvörn og um leið innbyggðri
loftræstingu. Sverrir segir að einnig
sé boðið upp á eldvarnarhurðir með
30, 60 og 90 mínútna brunaþoli. Þær
eru einnig frá Neuform og geta verið
sérstaklega hljóðeinangraðar.
Húsgögn og innréttingar
Idex er ekki aðeins með hurðir fyrir
hótel og gististaði því fyrirtækið
hefur einnig hafið sölu á vönduðum
húsgögnum og innréttingum. Sverrir
segir að um sé að ræða ítalska fram-
leiðslu eins og hún gerist best en
sé engu að síður á góðu verði. Idex
býður upp á fjölbreytt úrval og má
þar nefna náttborð, höfðagafla, skrif-
borð, skápa, töskustanda, stóla, sófa,
ljós og rúm sem uppfylla alla staðla
og kröfur sem gerðar eru hér á landi.
Þrátt fyrir að hafa ekki
boðið upp á húsgögn
og innréttingar
fyrir íslensk hótel
og gististaði
nema í á annað
ár má þegar
finna lausnir
frá Idex víða, til
dæmis í Hótel
Kríunesi, Light
House Inn og
Lilja Guest house.
Sverrir segir að
fyrirtækið geti tekið
að sér vinnu fyrir allt frá
smæstu gistihúsum og upp í
stærstu hótel landsins og sérhannað
lausnir eftir þörfum hvers og eins.
Smáíbúðalausnir:
Einnig eru í boði frá Mobilspazio
mjög hentugar lausnir fyrir litlar
íbúðir og gististaði eins og smáeld-
húsinnréttingar sem hægt er að loka
auðveldlega og fellirúm sem breytist
í sófa með einu
handtaki. Eldhús-
innréttingarnar
eru í mörgum
útfærslum og
hægt að velja um
tvær eða fjórar
hellur, ísskáp, vask
ásamt uppþvottavél
eftir því sem plássið
leyfir og fylgja öll tækin
með. Að geta svo rennt hurð
fyrir eldhúsið þegar það er ekki í
notkun er snilldarlausn. „Allt sem
hefðbundin hótel eða gististaðir
þurfa, það getum við gert,“ segir
Sverrir
Hægt er að fá samband við söluráð-
gjafa Idex í síma 412-1700 og skoða
úrvalið á idex.is
Hágæða hurðir og húsgögn
Idex er rótgróið fyrirtæki með áratuga reynslu á íslenskum byggingamarkaði. Idex býður upp á há-
gæða hljóðeinangrandi hurðir frá þýska fyrirtækinu Neuform auk innréttinga og húsgagna.
Sverrir Kristfinnsson,
söluráðgjafi hjá Idex.
MYND/ANTON BRINK
Glæsilegar smáinnréttingar frá Mobilspazio eru góð lausn fyrir gististaði.
10 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RALLT FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
D
-4
3
7
8
1
F
4
D
-4
2
3
C
1
F
4
D
-4
1
0
0
1
F
4
D
-3
F
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K