Fréttablaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 97
Vodafone er í fremstu röð þegar kemur að þróun lausna fyrir fyrirtæki og
hefur til dæmis sett á markað
Vodafone Connect, lausn sem
slegið hefur í gegn og er m.a. í
notkun á íslenskum hótelum, gisti-
heimilum, veitingahúsum, sund-
laugum, söfnum og verslunum.
Vodafone Connect er meira en
þráðlaus tenging, eða svonefnt
hotspot, því hún býður einnig
fyrirtækjum að byggja upp dýr-
mætan gagnagrunn sem nýtist
vel þegar kemur að því að nálgast
viðskiptavini á nýjan leik og veita
þeim þannig enn betri þjónustu.
Meðal þess sem Vodafone Connect
hefur upp á að bjóða er sá mögu-
leiki að tengja ánægða notendur
beint við TripAdvisor á meðan
þeir eru í skýjunum með upplifun
sína af þjónustunni. „Þannig má
betur tryggja að jákvæð umsögn
um góða upplifun skili sér á rétt
fyrirtæki á TripAdvisor,“ segir
Sigurður Pétur Oddsson, vöru-
stjóri hjá Vodafone, og bætir við
að annar möguleiki sé að senda
viðskiptavinum þjónustukann-
anir og þannig heyra ánægju- og
óánægjuraddir. „Þjónustufyrir-
tæki sem eru að nýta sér Vodafone
Conn ect hafa notað þjónustu-
kannanir til þess að bregðast við
góðri og slæmri reynslu við-
skiptavina sinna. Þannig hefur
þeim tekist að breyta óánægðum
kúnnum í ánægða, og ánægðum
í enn ánægðari.“ Fyrirtæki hafa
einnig notað Vodafone Connect
til þess að senda viðskiptavinum
sínum tilboð í gegnum tölvupóst
eða SMS.
Greinir flæði viðskiptavina
um þjónusturými
Búnaðurinn sem Vodafone Connect
keyrir á gerir fyrirtækjum kleift að
greina ýmislegt, þar á meðal flæði
notenda í þjónusturýmum. Hita-
kort sýnir flæði notenda um rýmið
á ákveðnum tímum og á mæla-
borði er til að mynda hægt að sjá
upplýsingar um það hversu margir
eru tengdir, hversu margir eru ekki
að tengjast, hversu lengi viðskipta-
vinir staldra við og hversu margir
hafa komið áður. Þá geta fyrirtæki
klæðskerasniðið útlit Vodafone
Connect og sett í sinn búning.
Þannig birtist útlit hvers fyrirtækis í
notendaviðmótinu þegar viðskipta-
vinir skrá sig inn á þráðlausa netið.
„Vodafone Connect hefur notið
mikilla vinsælda hingað til og við
finnum enn fyrir mikilli eftirspurn
frá fyrirtækjum sem vilja taka til í
netmálum sínum, bjóða viðskipta-
vinum sínum upp á hágæða þráð-
laust net og fá öll þau tól sem fylgja
Vodafone Connect,“ segir hann.
Mikilvægur þáttur
í þjónustu Jamie’s Italian
Einn þeirra fjölmörgu veitingastaða
sem nýta sér Vodafone Connect
er Jamie’s Italian á Hótel Borg og
hefur kerfið fengið gríðarlega góðar
viðtökur tugþúsunda gesta sem
sótt hafa staðinn síðan hann var
opnaður í fyrra. Jón Haukur Bald-
vinsson, framkvæmdastjóri Jamie’s
Italian, segir að Vodafone Con-
nect sé mikilvægur þáttur í þeirri
þjónustu sem staðurinn kýs að
veita viðskiptavinum sínum. „Það
er mjög mikilvægt fyrir okkur að
bjóða upp á þráðlaust net sem hægt
er að treysta og skilar viðskipta-
vinum virðisaukandi þjónustu.
Þá gefur Vodafone Connect okkur
ítarlegar upplýsingar sem nýtast
við almennan rekstur og til þess að
bæta þjónustu okkar enn frekar.“
Vodafone Connect keyrir á gæða
nettengingu með búnaði í heims-
klassa sem dreifir þráðlausu neti
vel og þannig er samband notenda
tryggt. „Í heimi fjarskipta leggur
Vodafone mikla áherslu á stöðuga
þróun, þannig að þjónustan mæti
ávallt kröfum viðskiptavina,“ segir
Sigurður Pétur.
Vodafone Connect leiðir
notendur inn á TripAdvisor
Vodafone Connect gerir fyrirtækjum kleift að greina flæði notenda í þjónusturýmum, senda út
þjónustukannanir og byggja upp dýrmætan gagnagrunn. Íslensk hótel hafa nýtt sér þessa tækni.
Sigurður Pétur Oddsson, vörustjóri hjá Vodafone, segir að hjá Vodafone sé
kappkostað að þjónustan mæti ávallt þörfum viðskiptavina fyrirtækisins og
þá um leið viðskiptavina þeirra. MYND/EYÞÓR
Fyrirtækjalausnir
Vodafone
„Vodafone Connect gefur okkur mikilvægar
upplýsingar sem nýtast við almennan rekstur
og bæta þjónustu staðarins enn frekar.“
Jón Haukur Baldvinsson
framkvæmdastjóri Jamie’s Italian
Nánar á: vodafone.is/fyrirtaeki
Ánægðari
viðskiptavinir með
Vodafone Connect
KYNNINGARBLAÐ 11 L AU G A R DAG U R 2 4 . M A R S 2 0 1 8 ALLT FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
D
-4
3
7
8
1
F
4
D
-4
2
3
C
1
F
4
D
-4
1
0
0
1
F
4
D
-3
F
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K