Fréttablaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 40
Bjarnheiður Hallsdóttir er fyrsta konan sem kjörin er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. MYND/EYÞÓR
Bjarnheiður tekur við for-mennskunni af Grími Sæmundsen, forstjóra Bláa
lónsins, en hann hafði gegnt emb-
ættinu frá árinu 2014. Þrír fram-
bjóðendur voru í kjöri til formanns
en auk Bjarnheiðar gáfu Margeir
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
bílaleigunnar Geysis, og Þórir
Garðarsson, stjórnarformaður Gray
Line Iceland, kost á sér.
Bjarnheiður segist hafa sóst eftir
þessu embætti vegna þess að hún
hafi verið í ferðaþjónustu í meira
en þrjátíu ár og hafi mikinn áhuga
á félagsstörfum. „Ég tel mig hafa eitt
og annað fram að færa á þessu sviði.
Ferðaþjónustan stendur á kross-
götum, margt þarf að framkvæma
og taka ákvarðanir sem fyrst. Þetta
eru samtök atvinnurekenda í ferða-
þjónustu en mjög víðtæk starfsemi
heyrir undir SAF, alls kyns innra
starf til að bæta gæði, þróunarstörf,
rannsóknir og þess háttar. Síðan
eru samskipti við stjórnvöld ríkur
þáttur í starfseminni og mikilvægt
atriði.
Mörg mikilvæg mál
Eins og staðan er í dag fara þessi
samskipti fram í gegnum Stjórnstöð
ferðamála þar sem eiga sæti þrír
ráðherrar, fulltrúar frá sveitar-
stjórnum og Samtök ferðaþjónust-
unnar. Samstarfið hófst árið 2015
og mun standa til ársins 2020. Við
vonumst til að það eigi eftir að skila
áfram góðum árangri. Það er gríðar-
lega mikilvægt að koma málum
sem hraðast í gegn og auka skilning
á milli manna, þess opinbera og
ferðaþjónustunnar. Ríkið er stærsti
hagsmunaaðilinn í ferðaþjónustu
á Íslandi og þetta er í fyrsta skipti
sem beint samtal er á milli þessara
aðila,“ útskýrir Bjarnheiður og
bendir á að íslenska ríkið fái mestar
tekjur af ferðamönnum. „Ríkið
þarf auðvitað að koma að ýmsum
mikilvægum málum er varða þessa
starfsemi,“ segir hún.
Bjarnheiður hefur starfað á
ýmsum sviðum ferðaþjónustunnar
auk þess að reka ferðaskrifstofu
fyrir þýska ferðamenn. Hún segist
hafa valið þetta starfssvið af til-
viljun. „Mig langaði í skóla í Þýska-
landi, fór út og byrjaði að vinna á
hóteli. Þar heillaðist ég af ferða-
þjónustu og ákvað að mennta mig á
því sviði,“ segir hún.
Með þýskum ferðamönnum
Bjarnheiður er fædd og uppalin á
Akranesi, fædd árið 1967. Eftir að
hún lauk stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
árið 1987 og rekstrarhagfræði með
sérhæfingu í rekstri ferðaþjónustu-
fyrirtækja frá Fachhochschule
München 1994 starfaði hún hjá
þýska ferðaheildsalanum SET Rei-
sen frá 1992-1997. Þá stofnaði hún
eigin ferðaskrifstofu í München,
Katla Travel. Hennar aðalstarf hefur
verið við ferðaskipulagningu og
ferðaheildsölu Íslandsferða í fyrir-
tækjunum Katla Travel GmbH, Via-
tor Summerhouses GmbH og Katla
DMI ehf. „Ég kunni ávallt gríðarlega
vel við mig í Þýskalandi. Það var þó
aldrei ætlunin að setjast þar að. Ég
eignaðist mitt fyrsta barn á meðan
ég var í námi og þá breytist lífið
talsvert,“ segir hún.
Bjarnheiður er framkvæmda-
stjóri Kötlu DMI ehf. en fyrirtækið
er með starfsstöð í Reykjavík og í
München. „Við sérhæfum okkur
í ferðum Þjóðverja um Ísland.
Almennt eru Þjóðverjar áhuga-
samir um landið okkar og mjög
góðir viðskiptavinir. Þeir hafa
áhuga á náttúru og menningu
landsins og ferðast gjarnan um allt
land. Því miður finnum við fyrir
samdrætti vegna þess hversu sterkt
gengi krónunnar er um þessar
mundir. Ég vil meina að krónan sé
orsökin, hún er allt of sterk fyrir
útflutningsgreinar en auðvitað eru
einhverjir innan ferðaþjónustunnar
að verðleggja sig of hátt,“ svarar
Bjarnheiður þegar hún er spurð
hvort við séum að verðleggja okkur
út af markaðnum. „Íslendingar eru
með hótel og veitingahús í miklum
gæðum. Við gerum þjónustukann-
anir og ferðamenn eru sérstaklega
ánægðir með veitingahús hér á
landi og maturinn þykir í háum
gæðaflokki. Við höfum upplifað á
síðustu misserum að neyslumyn-
staur ferðamanna er að breytast og
þeir neyta veitinga og afþreyingar,
svo eitthvað sé nefnt, í minni mæli.
Þetta sjáum við greinilega. Vissu-
lega búa atvinnurekendur í ferða-
þjónustu við mjög háan fjármagns-,
rekstrar- og launakostnað.“
Óþægileg gjaldtaka
Nýja formannsembættið leggst vel
í Bjarnheiði. „Ég hlakka mikið til
að takast á við þau stóru verkefni
sem eru fram undan. Það sem
brennur mest á greininni er óreiðan
í gjaldheimtumálum. Við höfum
áhyggjur af gjöldum sem er byrjað
að innheimta hér og þar um landið.
Þau eru mjög tilviljunarkennd, til
dæmis var allt í einu sett gjald við
Jökulsárlón. Ferðaþjónustan þarf
meiri aðlögunartíma fyrir svona
skyndihækkanir þar sem erlendir
ferðamenn skipuleggja ferðir með
löngum fyrirvara og ferðaskrif-
stofur hafa fyrir löngu selt þessar
ferðir. Það er mjög óþægilegt þegar
kostnaður hækkar eftir á. Menn
eru því miður aldrei sammála
um hverjir eigi að kosta uppbygg-
ingu innviða í ferðaþjónustu en ég
vonast til að geta haft áhrif á þessu
sviði, enda teljum við að ferðamenn
séu þegar að greiða hátt verð fyrir
ferðalög innanlands og þeir eru
stórir skattgreiðendur.“
Þegar Bjarnheiður er spurð hvort
forsvarsmenn ferðaþjónustu-
fyrirtækja séu áhyggjufullir vegna
fækkunar ferðamanna til landsins,
svarar hún því játandi. „Það eru
greinileg merki um samdrátt, sér-
staklega þeirra sem staldra lengur
á landinu og ferðast um það. Þeir
eru okkur mikilvægastir. Margir
koma hingað og staldra við í tvo
daga í Reykjavík og eru síðan farnir.
Það vantar tilfinnanlega áreiðan-
legri gögn um fjölda ferðamanna til
landsins til að vinna eftir. Núna eru
til dæmis pólskir verkamenn taldir
til ferðamanna.“
Baráttukona
Bjarnheiður ætlar að leggja sig alla
fram sem formaður Samtaka ferða-
þjónustunnar. Hún hefur alltaf
verið virk í félagsmálum og tekið
þátt í ýmsum baráttumálum. Bjarn-
heiður var fyrsti formaður Félags
háskólamenntaðra ferðamálafræð-
inga. Hún hefur setið í stjórn Rann-
sóknarmiðstöðvar ferðamála og
var lengi í stjórn knattspyrnufélags
ÍA. Þá er hún ein þeirra sem hafa
barist fyrir bættu ástandi Vestur-
landsvegar um Kjalarnes enda fer
hún daglega á milli Akraness og
Reykjavíkur til að sækja vinnu. Hún
segir að rætur sínar liggi á Akranesi
og þar ætlar hún að búa áfram. „Ég
hlakka til að takast á við krefjandi
verkefni í ferðaþjónustunni og
vinna með góðu fólki að framförum
í greininni. Þetta verða mjög spenn-
andi en um leið krefjandi tímar.“
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Því miður finnum
við fyrir samdrætti
vegna þess hversu sterkt
gengi krónunnar er um
þessar mundir.
Framhald af forsíðu ➛
Útgefandi:
365 miðlar
Veffang:
frettabladid.is
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumaður auglýsinga:
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433
2 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RALLt fYRIR HÓtEL oG VEItINGAHÚS
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
C
-A
A
6
8
1
F
4
C
-A
9
2
C
1
F
4
C
-A
7
F
0
1
F
4
C
-A
6
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K